Morgunblaðið - 04.01.2010, Síða 23

Morgunblaðið - 04.01.2010, Síða 23
Útsölustaðir: Heilsuhúsið, Fræið Fjarðarkaupum, Maður lifandi, Blómaval, Á grænni grein, Lyfja og Apótekið, Lyf og heilsa og Apótekarinn, Sólarsport Ólafsvík, Lyfjaver, Femin.is, Náttúrulækningabúðin, Hagkaup, Lyfjaval, Yggdrasill, Reykja- víkur apótek, Árbæjarapótek, Apótek Vesturlands, Barnaverslanir og sjálfstætt starfandi apótek um allt land. Ekki gleyma að drekka Birkisafann frá eftir jólahátíðina Safinn virkar vel á eðlilega úthreinsun líkamans Lífrænt ræktaður, án aukaefna Losar bjúg Léttir á liðamótum Losar óæskileg efni úr líkamanum Góður fyrir húð, hár og neglur Blanda má safann með vatni Má einnig drekka óblandað Velkomin að skoða www.weleda.is MORGUNBLAÐIÐ | 23 Morgunmaturinn er mikilvægasta máltíð dagsins en margir verða leiðir á því að borða yfirleitt eða alltaf það sama og sleppa því þá kannski frekar að borða. Það er ekki gott fyrir meltingu og brennslu líkamans og hér koma nokkrar hugmyndir að nýstár- legum morgunverðaruppskriftum sem vert er að prófa. Prófaðu þig áfram og breyttu reglulega til, það ætti að virka vel. Bragðbættur hafragrautur Til að lífga upp á hafragrautinn er upplagt að setja út á hann smápúðursykur eða niðurskornar döðlur, rúsínur eða möndlur. Hafragrautur fyllir vel upp í mag- ann og næringarefnin í honum sí- ast hægt og rólega út í blóðið. Ávaxtablanda Gufusoðnir ávextir eru einföld og fljótleg aðferð við að fá sér ávexti á morgnana. Blöndu af niðurskornum ávöxtum má útbúa og eiga í ísskápnum og nota síðan í nokkra daga eftir þörfum. Epli og perur með rúsínum, og þurrk- uðum apríkósum eru til dæmis til- valin í þessa blöndu. Látið ávext- ina malla í potti í ávaxtasafa eða vatni þar til þeir eru orðnir mjúk- ir og volgir. Út í má setja smá- hunang eða agavesíróp eftir smekk og borða síðan með hreinni jógúrt eða nota með morgunkorni. Appelsínujógúrt Búa má til nýja bragðtegund af jógúrt og breyta þannig til með því að blanda sjálfur hreinni jóg- úrt saman við ákveðna bragðteg- und. Það er til dæmis sniðugt að nota appelsínuna sem er ein eftir inni í ísskáp til að kreista út í hreina jógúrt og nota smáhunang með ef vill svo og appelsínubörk- inn. Gott er að dreifa kókosmjöli og/eða þurrkuðum ávöxtum yfir jógúrtið. Ávaxta-crêpes Inn í þunnar pönnukökur að hætti Frakka má setja í ávexti og fá sér í morgunmat. Það getur verið sniðugt að nota afganginn af pönnukökum á þennan hátt og hita þær þá stutta stund í ör- bylgjuofninum áður en sett er inn í þær. Hægt er að setja kalda ávexti eins og banana og jarð- arber inn í pönnukökurnar eða gufusjóða ávexti og nota þá. Brauð og álegg Það er alltaf þægilegt að grípa í brauð á morgnana og ótalmargt sem má nota sem álegg ofan á brauð, til dæmis banana og smá hnetusmjör, ýmiss konar sultu með afgangi af fínt skornu kjöti svo og tómat og gúrku. Leyfðu hugmyndafluginu að ráða og fáðu þér brauð með góðu áleggi í stað- góðan morgunverð. maria@mbl.is Gott morgunsnarl fyrir alla Fjölbreytt Það er tilvalið að breyta aðeins til og setja hunang, hnetur, rús- ínur eða jafnvel þurrkaða ávexti út í jógúrt fyrir morgunmatinn. Það eru ekki allir sem nenna að fara inn á líkamsræktarstöð til að æfa og því tilvalið að nýta náttúruna. Ef það er snjór úti þá er enn betra að æfa sig úti því öll hreyfing reynir þeim mun meira á þar. Það má til dæmis fara út að ganga í miklum snjó en allir sem hafa reynt það vita að það tekur mjög á. Hvert skref verður erfiðara sem þýðir enn meiri brennslu. Í miklum snjó má líka fara á gönguskíði en þau geta tekið mjög á, sérstaklega ef skíðað er í dágóðan tíma. Á gönguskíðum er allur líkaminn á hreyfingu og brennslan því töluverð. Það getur líka tekið á að fara á skauta og mikilvægt að passa sig að vera alltaf á ferð. Enn skemmtilegra er að renna sér niður háa brekku á sleða en þá er það einungis ferðin upp sem tekur á. Það er því ýmislegt sem má gera í snjó sem er bæði skemmtilegt og tekur á. Morgunblaðið/Golli Hreyfing Það getur verið góð hreyfing að skella sér út á gönguskíði. Líkamsrækt úti við

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.