Morgunblaðið - 04.01.2010, Page 28

Morgunblaðið - 04.01.2010, Page 28
28 | MORGUNBLAÐIÐ Eftir Maríu Ólafsdóttur maria@mbl.is Á huginn á hreyfingu kvikn- aði snemma en ég var í fimleikum frá níu ára aldri og hef alltaf verið í íþróttum. Síðan byrjaði ég að kenna Jane Fonda-leikfimi þegar hún var sem vinsælust og þá var ég 15 ára. Það er einmitt skemmtilegt frá því að segja að ég verð með Jane Fonda-flipp á laugardögum á stöðinni til að fífl- ast dálítið og hafa gaman,“ segir Sigríður Halldóra Matthíasdóttir, betur þekkt sem Sigga Dóra. Hún hefur í áratugi starfað sem einka- þjálfari og opnaði líkamsræktar- stöðina Heilsumiðstöðina í nóv- ember síðastliðnum. Að halda heilsu og eldast vel Sigga Dóra hefur í nokkur ár haldið með hópa til Flórída í heilsubúðir þar sem hún leggur áherslu á reglulega næringu auk hreyfingar. Upp úr því varð til námskeiðið Lifðu lífinu lifandi. Námskeiðið er byggt á klukkutíma fræðslu einu sinni í viku þar sem Sigga Dóra tekur meðal annars fyrir hvað hægt sé að gera til að auka brennslu, hvað séu andox- unar- og sindurefni og hvað kol- vetni og prótein geri fyrir líkam- ann. Auk þess verða þátttakendur að mæta tvisvar í viku í rope- action-æfingatíma. „Eftir að hafa þjálfað konur í tugi ára sá ég að fólk kann ekki að næra sig og heldur að það sé í góðum málum ef það spriklar og hamast. Það gerist þó í raun ekkert af viti nema mataræðið sé í lagi þar sem það verður alltaf 70% af þessu öllu saman. Lykilatriðið er að vita að líkaminn er ein formúla sem við breytum ekki og hann þarf alltaf að fá sitt. Í Flórídaferðunum lærir fólk af því að sjá og gera og þann- ig fer smám saman að síast inn í kollinn á því hvað næringin skiptir miklu máli. Það þýðir ekkert að henda í fólk stórum möppum og treysta því að það lesi sér til. Til að geta leyft sér ýmislegt verður fólk að hafa grunninn góðan og þetta námskeið snýst um að kenna hvað er auðvelt að hafa líkamann í lagi og bera ábyrgð á honum. Þetta snýst ekkert um töluna á vigtinni heldur er lykilatriði að halda heilsu og eldast vel,“ segir Sigga Dóra. Brennslunni komið af stað Á námskeiðinu er notaður svo- kallaður Body Composition Moni- tor til að mæla ástand líkamans. Það er öflugt mælitæki sem segir nákvæmlega til um í hvernig ásig- komulagi líkaminn er með því að sýna hlutföll vatns, fitu og vöðva. Með þessari mælingu er konum sýnt hvernig þær geta komið brennslunni af stað aftur og borð- að sig grannar. Sigga Dóra segir mjög skemmtilegt að hjálpa fólki á þennan hátt því það viti ótrúlega lítið um það hvernig líkaminn starfar. „Dæmigerð kona í dag sem fer oft í megrun skemmir að endingu brennsluofn líkamans. Hann hætt- ir að mestu að starfa og konan verður feitari og feitari. Þetta skilja þær ekki og segja að þær borði ekkert en séu samt feitar og það er einmitt vandamálið. Þessi mæling er góður mælikvarði þar sem ég get séð nákvæmlega hvernig konan nærir sig. Ef vöðvamassinn er ekkert að stækka og brennslan minnkar þá er konan í svelti eða borðar allt of mikið af kolvetnum. Þetta snýst ekki um að missa mörg kíló á stuttum tíma því það er bara jójó-ferli heldur viljum við frekar þetta fyrir lífstíð eða eins og ég segi: vertu þyngri á vigtinni en flottari í laginu! Í slæmu líkamsástandi er magn vatns og fitu nærri eins í lík- amanum en í góðu ástandi er vatnsmagnið mest, síðan vöðvar og loks fita,“ segir Sigga Dóra. Viðskiptavinir hjálpuðu til Það voru tryggir viðskiptavinir Siggu Dóru sem tóku sig til og komu húsnæðinu í stand og lögðu smiðir, píparar, rafvirkjar og fleiri hönd á plóg við verkið. Starfsemi stöðvarinnar byggist á nám- skeiðum sem öll eru kennd í litlum hópum þannig að stöðin hentar vel þeim sem kjósa persónulegt and- rúmsloft. Innan hennar er einnig dekurstofa þar sem finna má gufu- bað og annað til að slaka á eftir æfingar. Það geta einnig sauma- klúbbar og aðrir smærri hópar nýtt sér til útleigu. Þá er salsa og línudans kenndur á stöðinni og hægt að koma í nudd og höfuð- beina- og spjaldhryggjarmeðferð og heimsækja spámiðil. „Þetta er svona 2009-stöð þar sem góður hópur fólks kemur saman til að hugsa um sálartetrið, hlæja og fíflast og hafa gaman. Ég tel mig mjög heppna að fá að gera eitt- hvað sem mér finnst alltaf jafn- skemmtilegt,“ segir Sigga Dóra. Sólarfjör Sigríður Halldóra Matthíasdóttir þjálfari hefur haldið með hópa fólks í heilsuferðir til Flórída og en þar er næring helst í fyrirrúmi. Á góðri stund Sigga Dóra fyrir miðju með dóttur sinni Lindu (t.v.) og Helgu, sem báðar starfa sem þjálfarar. Líkaminn er ein formúla Á námskeiðinu Lifðu líf- inu lifandi er lögð áhersla á að fólk borði sig grannt. Unnið er að því að koma brennslu líkamans af stað og stuðla þannig að heil- brigðri líkamsstarfsemi. » Lykilatriðið er aðvita að líkaminn er ein formúla sem við breytum ekki og hann þarf alltaf að fá sitt. Polarolje Meiri virkni Hátt hlutfall Omega 3 fitusýrur Minn læknir mælir með Polarolíunni, en þinn ? Selolía, einstök olía Gott fyrir: Maga- og þarmastarfsemi Hjarta og æðar Ónæmiskerfið Kolesterol Liðina Polarolían fæst í: apótekum, Þín verslun Seljabraut, heilsuhúsum, Fjarðarkaupum, Fiskbúðinni Trönuhrauni og Melabúð Nú líka í hylkjum Nýtt! Pólarolía góð fyrir líkamann Í nýlegri doktorsrannsókn Lin- nAnne Bjelland Brun-borg kom í ljós að selolía sem var gefin í gegnum sondu beint niður í skeifu-görn linar liðverki og dregur úr liðbólgum og hefur að auki jákvæð áhrif á þarmabólgu. Fæða áVesturlöndum inniheldurhlutfallslega mikið magn af omega 6 fitusýrum í samanburði við omega 3fitusýrur. Þetta getur orsakað ójafnvægi í líkamanum, sem að einhverju leyti getur útskýrt af hverju margt fólk þjáist af offitu og ýmsum lífsstílstengdum sjúkdó- mum eins og hjarta- og æðasjúk- dómum, sykursýki og krabbameini. Besta leiðin til greiða úr þessu ójafn- vægi er að auka neyslu á sjávarfangi sem almennt er auðugt af langkeðju omegafitusýru og samtímisað minnka neyslu ámatvörum sem eru ríkar af omegafitusýrum. Þarmabólga og liðverkir Rannsókn Brunborgsáselkjöti bendir tilað þaðsé bæði holl og öruggfæða.Selspikið er mjög ríkt aflangkeðju omega fitusýrumsem hefur áhrif á staðbundinhormónsem meðalannarseru mikilvæg fyrir bólgu-viðbrögð líkamans.Virknisel- olíunnar á bólguviðbrögðvar prófuð í klínískri tilrauná sjúklingum með liðverkiog IBD. IBD-sjúklingarhafa oft minnkandi starfs-getu og lífsgæði vegnasjúkdómsins og möguleikará lækningueru litlir. Lyfsem dragaúr liðverkjumgeta gertþarmabólgu- naverri. Brunborgsýndi meðtil- raunum að selolía semvar gefin í gegnum sondulinar liðbólgur og liðverkiog hefur að auki jákvæðáhrif á þarmabólgu.Aðneyta nægilegs sjávarfangsmeð omega fitusýru geturhaft fyrirbyggjandi áhrifþegar um þróun sjúkdómaeins og IBD og annarrabólgusjúkdóma, hjarta- ogæðasjúkdóma er að ræða.Selolía fæst í öllum helstuapótekum og heilsubúðumog ber nafnið Polarolje. Linar verki og minnkar bólgur A U G L Ý S I N G

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.