Morgunblaðið - 04.01.2010, Page 30
30 | MORGUNBLAÐIÐ
Eftir Svanhvíti Ljósbjörgu
svanhvit@mbl.is
S
vokölluð TFT-meðferð eða
Thought Field Therapy
hefur verið í þróun í
Bandaríkjunum í meira en
aldarfjórðung en Jóhanna Harð-
ardóttir, hjúkrunarfræðingur og
Bowen-tæknir, er eini Íslending-
urinn sem hefur lært og boðið upp
á TFT. Að sögn Jóhönnu beinist
meðferðin gegn ýmiss konar sál-
rænum, andlegum og tilfinninga-
legum vandamálum og er ætlað að
hjálpa fólki við að yfirvinna þrösk-
ulda eða hindranir sem geta haft
verulega hamlandi áhrif á daglegt
líf þess. „TFT-meðferðin nýtir
vökvaþrýstingspunkta sem ein-
staklingurinn virkjar með því ein-
faldlega að banka eða pikka létt
með fingurgómunum um leið og
hann einbeitir sér að vandamálinu
sem ætlunin er að leysa. Notast er
við ákveðið kerfi eða röð aðgerða
eftir því sem við á hverju sinni.
Þessi aðferð getur gert tilfinn-
ingaleg og sálræn vandamál óvirk
og oft jafnvel útrýmt þeim alveg.
Markmiðið með TFT-meðferðinni
er að koma á jafnvægi í orkukerfi
líkamans.“
Varanleg meðhöndlun
Jóhanna talar um að Roger J.
Callahan sálfræðiprófessor hafi
útbúið þessa meðferð sem gengur
út á að banka á líkamann á
ákveðna staði. „Á meðan það er
gert er viðkomandi að hugsa um
vandamál sitt og við það opnast
orkubrautir í líkamanum. En til
þess að þetta virki er nauðsynlegt
að hugsa um vandamálið á meðan
en þetta gerir ekkert gagn ef verið
er að banka og á meðan er hugsað
um hvað eigi að vera í matinn,“
segir Jóhanna og bætir við að í
raun banki viðkomandi sjálfur á sig
en hún sýni á hvaða staði eigi að
banka og í hvaða röð. „Oftast er
nóg að gera þetta einu sinni og þá
er kvíðinn eða vandamálið horfið.
Það er bara í undantekningar-
tilfellum sem þessi lausn er ekki
varanleg en stundum getur þurft
að meðhöndla vandann í aðstæð-
unum sjálfum, til dæmis eins og
fólk sem er flughrætt.“
Tekur á kvíða og þráhyggju
Jóhanna talar um að TFT-
meðferðin geti tekið á öllu mögu-
legu, þar á meðal afleiðingum
áfalla, kvíða, hræðslu, þunglyndi,
líkamlegum verkjum og þráhyggju.
Í raun sé þetta mjög einföld tækni
sem virki en Jóhanna segist hafa
kannað virkni meðferðarinnar,
bæði á háskólanemum sem og
börnum sínum. „Þegar ég var
nýbúin að læra TFT tók ég þrettán
nemendur í Háskólanum á Akur-
eyri í meðferð og lét þá banka fyrir
prófkvíða og hann fór niður um
67%. Ég prófaði þetta líka á börn-
unum mínum því þau eru svo
hrædd við flugur og fóru til dæmis
ekki að pissa ef það var fluga á
baðherberginu. Ég lét þau ímynda
sér að það væri stór röndótt fluga
að labba á hendinni og þá sást
hræðslusvipur koma í andlit þeirra.
Svo lét ég þau banka fyrir kvíð-
anum og aftur að ímynda sér að
það væri fluga að labba á hand-
leggnum á þeim og þá kom enginn
skelfingarsvipur,“ segir Jóhanna
sem kynntist TFT-meðferðinni fyr-
ir tilviljun. „Ég var að panta mér
bækur á Amazon og rakst þá á bók
um meðferðina. Svo fór ég til Chi-
cago og sótti námskeið hjá Callah-
an Techniques í notkun meðferð-
arinnar.“
Líkamleg viðbrögð
Jóhanna rekur stofu á Akureyri
þar sem hún tekur fólk í TFT-
meðferð sem og Bowen-meðferð.
Auk þess hefur hún haldið nám-
skeið til að kenna fólki TFT-
meðferðina og hyggst halda annað
bráðlega. „Þar kenni ég hvar stað-
irnir eru sem þarf að banka á og
hvernig röðin er því það er mis-
munandi röð og staðir eftir því
hvert vandamálið er. Meðferðin er
kennd nákvæmlega eins og upp-
hafsmaðurinn vill láta kenna þetta
en meðferðin er alls staðar kennd
eins og eftir ákveðinni bók sem bú-
ið er að þýða yfir á íslensku. Það
sem meðferðin gengur út á er að
slíta tengslin á milli hugsunar og
líkamlegu viðbragðanna, því þegar
maður verður hræddur fer maður
að svitna, skjálfa eða hleypur í
burtu. Með því að slíta þessi tengsl
á milli hugsunarinnar og líkamlegu
viðbragðanna þarf maður ekki að
bregðast svona við þó að maður
hugsi um það sem maður er
hræddur við.“
Tengsl á milli hugsunar og
líkamlegra viðbragða slitin
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Jóhanna Harðardóttir: „Það er í undantekningartilfellum sem þessi lausn
er ekki varanleg en stundum þarf að meðhöndla vandann í aðstæðunum.“
Það eru margir sem þjást
af alls kyns kvíða, þrá-
hyggju eða hræðslu en
Jóhanna Harðardóttir
segir að hægt sé að
lækna slíkt á einfaldan
hátt með TFT-meðferð. Þá
eru vökvaþrýstings-
punktar virkjaðir með ein-
földu banki á rétta staði
um leið og hugsað er um
vandamálið. Að sögn Jó-
hönnu er meðferðin var-
anleg.
»Meðferðin er kennd
nákvæmlega eins og
upphafsmaðurinn vill
láta kenna þetta en
meðferðin er alls staðar
kennd eins.
Meðferð TFT-meðferðin nýtir vökvaþrýstingspunkta sem einstaklingur-
inn virkjar með því einfaldlega að banka eða pikka létt með fingurgóm-
unum um leið og hann einbeitir sér að vandamálinu sem hann vill leysa.
®
HEILSURÆKT FYRIR KONUR
ÞAÐ EINA SEM ÞÚ ÞARFT ERU 30 MÍNÚTUR!
Brennsla, þol- og styrktarþjálfun sérsniðin fyrir konur. Reglulegar mælingar,
persónuleg og góð þjónusta. Komdu og æfðu í þægilegu og heimilislegu umhverfi.
Komdu í Curves, Þarabakka 3, og sjáðu hvernig aðeins 30 mín. geta breytt lífi þínu.
Þarabakki 3 | 109 Reykjavík | sími 566 6161 | www.cfk.is
Curves líkamsrækt er ein mest rannsakaða líkamsþjálfum í heimi. Yfir 4.000.000 kvenna eru meðlimir í Curves á yfir
10.000 stöðvum víðsvegar um heiminn.