Morgunblaðið - 04.01.2010, Qupperneq 32
Eftir Svanhvíti Ljósbjörgu
svanhvit@mbl.is
O
ft vill fólk tengja fimleika
við börn eða afreksmenn
en þó er töluvert um að
fólk sem hefur aldrei
stundað fimleika ákveði að æfa þá á
fullorðinsaldri. Það er í raun sífellt
að verða vinsælla eins og Erlendur
Kristjánsson, yfirþjálfari hjá
Gerplu, tjáði Morgunblaðinu: „Við
erum með tvo stóra hópa af fólki
sem hefur ekki stundað fimleika áð-
ur en þetta er fólk frá aldrinum 14
og upp í 50 ára. Það eru alls um 80
manns sem eru skráðir í hópana og
það skiptist í tvo tíma en við skiptum
í tímana eftir getu. Það er alltaf að
bætast við tímana og fólk virðist al-
veg vera tilbúið að leggja frekar
mikið á sig. Við erum til dæmis með
morguntíma á þriðjudögum og
fimmtudögum en þá er mætt korter
í sjö og hamast í klukkutíma.“
Byggður upp styrkur
Aðspurður hvernig æfingarnar
séu uppbyggðar segir Erlendur að
fyrsti klukkutíminn fari í að hita upp
með styrktaræfingum. „Fimleikar
geta verið hættuleg íþrótt en þeir
eru mun hættulegri ef viðkomandi
er ekki með styrkinn til að fram-
kvæma hlutina. Það er ekki sjálf-
gefið að allir geti gert kollhnís rétt
svo fyrri hluti tímans fer í grunnæf-
ingar þannig að við getum byggt á
því. Með því að byggja upp góðan
styrk og liðleika eru minni líkur á að
slys verði,“ segir Erlendur og bætir
við að utan þess séu þetta bara hefð-
bundnar fimleikaæfingar. „Þá skipti
ég hópnum eftir getu og við reynum
að fara á öll áhöldin en þetta eru þó
ekki bara áhaldaæfingar heldur
reynum við að blanda öllu saman.“
Öðruvísi heilsurækt
Erlendur talar um að fólk sé mjög
fljótt að taka framförum í tímunum
ef það hefur verið duglegt að mæta
og tekur vel á því. „Við erum með
mjög traustan hóp af þjálfurum sem
halda við fólk ef það er að gera eitt-
hvað sem það hefur ekki gert áður,
til dæmis á trampólíninu. Ef fólk á
til að mynda að gera tvöfalt heljar-
stökk í fyrsta skipti þá erum við með
tvo þjálfara sem standa við og fylgja
aðilanum alveg eftir. Æfingarnar
eru mjög skiptar því við byggjum
upp styrk og einblínum á allan búk-
inn, sem er kannski um 60% af æf-
ingunum, og restin er brennsla,“
segir Erlendur og bætir við að fólk
virðist sækja í fimleikana því þetta
sé ólíkt því sem flestir eru vanir.
„Þetta er öðruvísi og er ekki eins og
þetta hefðbundna strandvöðva-
pump. Fólk er að prófa nýja hluti og
mórallinn er mjög góður. Þau eru öll
mjög jákvæð og oft er þetta fólk sem
vildi prófa fimleika sem börn en
hafði sig ekki út í það enda voru
boltaíþróttir alltaf vinsælli.“
Morgunblaðið/Kristinn
Erlendur Kristjánsson: „Það er ekki sjálfgefið að allir geti gert kollhnís svo fyrri hluti tímans fer í grunnæfingar
þannig að við getum byggt á því. Með því að byggja upp góðan styrk og liðleika eru minni líkur á að slys verði.“
Fjölbreytt Um 80 manns sem hafa ekki æft fimleika sem börn æfa nú hjá Gerplu en fólkið er á aldrinum 14-50 ára.
Öðruvísi heilsurækt
fyrir fólk á öllum aldri
Hópur fullorðins fólks stundar fimleika þrátt fyrir að hafa aldrei æft fimleika sem
börn en hópurinn er á aldrinum 14-50 ára. Í fimleikunum er mikið um styrktaræf-
ingar og þjálfarinn segir hópinn tilbúinn að leggja mikið á sig.
32 | MORGUNBLAÐIÐ
Sigurpáll Örn Birgisson er einn af
þeim sem æfa fimleika í GGG en það
stendur fyrir Gamlir góðir Gerplu-
félagar. Hann segist þó ekki hafa
stundað fimleika sem barn. „Ég var
í öllum öðrum íþróttum en fim-
leikum. Bróðir minn plataði mig á
æfingu með Halastjörnunum í
Garðabæ en þar var hann að æfa
fimleika með félögum sínum. Þaðan
fór ég í Björkina því það er aðeins
öflugri hópur og síðan endaði ég í
GGG-hópi hjá Gerplu þar sem ég hef
verið í eitt og hálft ár. Alls er ég bú-
inn að vera í þrjú ár í fimleikum,“
segir Sigurpáll og viðurkennir að
margir verði mjög hissa þegar hann
segist æfa fimleika. „Ég verð 41 árs
á þessu ári þannig að fólk er mjög
hissa á að ég skuli vera að hoppa og
skoppa í þessu.“
Góð brennsla
Sigurpáll segir að það sé rosalega
gaman að æfa fimleika og hann ætli
sér að halda því áfram. „Það er fólk-
ið sem ég æfi með og metnaðurinn í
þjálfurum sem gerir þetta skemmti-
legt. Það þarf allavega mikið að
gerast hjá mér til að ég missi úr æf-
ingu. Það er líka mjög góð brennsla
í tímunum. Það læra náttúrlega allir
ákveðna grunntækni og maður fær
Sigurpáll Birgisson: „Það læra
náttúrlega allir ákveðna grunntækni
og maður fær mjög góða hreyfingu,
að hoppa á trampolíni, gera heljar-
stökk og fara í handahlaup.“
Morgunblaðið/Ómar
Skemmtilegt Sigurpáll Birgisson hefur æft fimleika í rúmlega þrjú ár en
hann segir fimleika vera einstaklega skemmtilega líkamsrækt.
mjög góða hreyfingu, hoppar á
trampólíni, fer heljarstökk og
handahlaup. Síðan sér Elli þjálfari
um að passa upp á að við fáum nóg
þrek. Ég kunni ekkert svona áður
og hugsaði bara um neyðarlínuna
þegar ég þurfti að hoppa í fyrsta
sinn á trampólíni en þetta er rosa-
lega gaman.“
Missi nær
aldrei af
æfingu
STAFG
ANGA
ÁHRIFA
RÍK LE
IÐ
TIL LÍK
AMSRÆ
KTAR
Stafgöngunámskeið hefjast 12. janúar 2010
stafgönguþjálfi, 616 85 95.
stafgönguþjálfi, 694 35 71.
Þriðjudaga & fimmtudaga, kl. 17:30.
Þriðjudaga & fimmtudaga, kl. 17:30.
SKRÁNING & NÁNARI UPPLÝSINGAR Á:
BYRJENDANÁMSKEIÐ ERU AÐ HEFJAST
Upplýsingar eru veittar í síma 551 4003
og á heimasíðu félagsins www.thorshamar.is