Morgunblaðið - 04.01.2010, Qupperneq 36

Morgunblaðið - 04.01.2010, Qupperneq 36
36 | MORGUNBLAÐIÐ Þótt margir ætli að byrja á heilsusamlegra líferni á nýju ári er þó alltaf þessi löngun í sætindi. Henni má eyða með því að búa sér til eitt- hvað hollt sem er sætt en möguleikarnir eru marg- víslegir. Þannig er hægt að búa til ferskt ávaxtasalat með sýrðum rjóma, bökuð epli með kanil og margt fleira. Oft er hægt að breyta uppskriftum að sætum rétt- um þannig að þær verði holl- ar og góðar. Eins er hægt að nota þurrkaða ávexti og hnetur í alls kyns eftirrétti en sætir ávextir gefa mikið sætindabragð. Hnetur og ávextir Það er ýmislegt til sem er hollt en samt mjög sætt á bragðið. Sætt og hollt Eftir Svanhvíti Ljósbjörgu svanhvit@mbl.is Þ rátt fyrir nafnið, þá er ekki bara meðferð fyrir barns- hafandi konur á heilsu- miðstöðinni 9 mánuðir. Þó segir Guðlaug María Sigurðardóttir ljósmóðir að þegar hún stofnaði fyrirtækið árið 2002 þá hafi það aðal- lega verið ætlað barnshafandi kon- um. „Heilsumiðstöðin hefur þróast þannig að við tökum á móti öllum en kappkostum ennþá að þjónusta sér- staklega meðgöngu og fæðingu. Okkur hefur til dæmis fundist eldra fólk og sérstaklega eldri konur hafa orðið út undan hjá heilsumið- stöðvum almennt og við erum því að fara af stað með jóga fyrir konur sem eru eldri en 65 ára. Margar af þessum konum vilja ekki fara á nám- skeið því þeim finnst hóparnir oft of stórir en við erum með lítinn hóp, 10-12 manns sem verða í litlum og huggulegum sal. Þannig er það í öll- um okkar jógatímum. Við höfum þétt og gott utanumhald þannig að það myndist góð stemning.“ Myndapakki úr móðurkviði Það er ýmislegt sem 9 mánuðir bjóða upp á og þar á meðal þrívíddarsónar sem á einmitt fjög- urra ára afmæli í janúar. „Það er alltaf hæg aukning í þrívíddarsónar sem reyndar má tengja við fjölgun fæðinga. Þegar fyrst var boðið upp á þrívíddarsónar hér á landi var fólk hrætt og fannst þetta skrýtið en þetta er framtíðin. Þrívíddarsónar er framkvæmdur nákvæmlega eins og venjulegur sónar, sett er gel á magann og nema er strokið yfir magann. Eini munurinn er sá að í tvívíddinni fara allar bylgjur á einn stað en í þrívíddinni þá dreifast þær. Markmiðið með þrívídd er nátt- úrlega annað en í tvívídd vegna þess að í tvívídd geturðu skoðað inn í lík- amann, hægt að skoða heilahólf, hjarta, blöðrur og nýru og það til- heyrir greiningunum en við erum ekki í greiningum. Okkar markmið er að kíkja á barnið og gefa for- eldrum tækifæri á að fá fyrsta myndapakkann úr móðurkviði.“ Sjálfsdáleiðslutækni Á árinu munu 9 mánuðir bjóða upp á svokallað Hipno Birth sem gengur undir nafninu sjálfsdá- leiðslutækni á íslensku. „Hipno Birth er tækni fyrir konur til að tak- ast á við sjálfan sig og hræðsluna við fæðingu. Í rauninni er þetta sjálfsdáleiðslutækni þannig að þegar konan fær hríðar og verki sem hún er hrædd við þá er hún búin að læra ákveðna tækni til að fara inn í sig og takast á við það sem er að gerast,“ segir Guðlaug og bætir við að það séu fleiri nýjungar á miðstöðinni. „Fríða Hauksdóttir er nýbyrjuð hjá okkur en hún er osteópati en osteó- patían er mjög vanmetin grein á Ís- landi því hún er svo lítið þekkt. Sjálfri finnst mér osteópatían mjög spennandi en osteópatar læra að greina og meðhöndla stoðkerfis- vandamál. Þetta er nokkurra ára nám sem er skylt sjúkraþjálfun en þó er meira unnið með höndunum.“ Tekist á við hræðslu við fæðingu Morgunblaðið/Golli Guðlaug María Sigurðardóttir: Þrívíddarsónar er framkvæmdur nákvæmlega eins og venjulegur sónar, sett er gel á magann og nema er strokið yfir magann. Munurinn er sá að í tvívíddinni fara allar bylgjur á einn stað.“ Heilsumiðstöðin 9 mán- uðir var í upphafi ætlað einungis barnshafandi konum en tekur nú á móti öllum, enda segir Guð- laug María Sigurðardóttir ljósmóðir, sem stofnaði miðstöðina, að hún hafi mikið af góðu og hæfi- leikaríku fólki með sér á miðstöðinni. Þar má til dæmis fara í jóga fyrir 65 ára konur, þrívíddarsónar og margt fleira. » Í raun er þetta sjálfsdáleiðslu- tækni þannig að þegar konan fær hríðir þá er hún búin að læra ákveðna tækni til að fara inn í sig. Fréttir á SMS

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.