Morgunblaðið - 16.02.2010, Qupperneq 6
6 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. FEBRÚAR 2010
Eftir Unu Sighvatsdóttur
una@mbl.is
BJÖRGUNARSVEITARMENN lýsa því sem
mikilli heppni að skosk kona og 11 ára sonur
hennar hafi fundist við leit á Langjökli aðfara-
nótt mánudags. Aðstæður voru afar erfiðar,
kolniðamyrkur, kuldi, úrkoma, hvassviðri og
skyggni lítið sem ekkert.
„Maður er þakklátur fyrir að finna fólkið
svo það þyrfti ekki að hafast þarna við um
nóttina,“ segir Guðmundur Arnar Ástvalds-
son, einn þriggja félaga úr Flugbjörgunar-
sveitinni í Reykjavík sem fundu mæðginin um
klukkan hálftvö um nóttina.
„Við vorum heppnir. Tveir sleðar í miðjunni
ramba beint á týnda sleðann og hinir fóru rétt
framhjá. Við sáum þarna þúst, en trúðum
þessu varla og þurftum að hemla til að lenda
ekki á henni. Við stukkum af sleðunum og
sáum strax hreyfingu.“
Rúmar 8 klukkustundir liðu frá því mæðg-
inin urðu viðskila við vélsleðahópinn sem þau
ferðuðust með á Langjökli og þar til þau fund-
ust. Þrátt fyrir hrikalegar aðstæður, um 10°C
frost og 18-20 metra vind á sekúndu, voru þau
ótrúlega vel á sig komin og má það þakka hár-
réttum viðbrögðum konunnar sem björguðu
sennilega lífi þeirra beggja. Þau höfðu búið sér
til skjól með því að velta vélsleðanum á hliðina.
Konan lagðist ofan á drenginn til að halda á
honum hita og skýldi þeim með vélarhlífinni.
Þau fundust um 40-50 metrum frá þeirri línu
sem ferðahópurinn var á og skipti miklu máli
að þau höfðu haldið kyrru fyrir.
Konan þrekuð og kalin á hendi
Björgunarsveitarmenn voru hinsvegar
orðnir vonlitlir þegar þarna var komið sögu og
töldu tvísýnt að þau hefðu nóttina af enda að-
stæður erfiðar. Það braust því út mikil gleði
þegar mæðginin komu í leitirnar. Konan er
þrekuð og auk þess kalin á hendi og dvaldi á
Landspítalanum í nótt til aðhlynningar.
Svo virðist sem nokkurra sekúndna mistök
hafi ráðið því að mæðginin týndust, þegar hún
náði ekki beygju og missti sjónar á hópnum,
sem taldi alls 13 manns auk fjögurra leiðsögu-
manna. Veður hafði þá skipast skjótt í lofti og
skyggni ekki nema 3-4 metrar.
Hvarf hennar uppgötvaðist nánast strax en
þá sást hvergi til hennar. „Veðrið skellur á
fyrirvaralaust á 5 mínútum, fólkinu var sýndur
íshellir og eftir það var skyndilega komið fár-
veður,“ segir Nikulás Þorvarðarson hjá Snow-
mobile.is, sem stóð fyrir ferðinni.
Veðurspá hafi verið skoðuð ítarlega áður en
lagt var af stað og samkvæmt henni hafi
óveðrið ekki verið væntanlegt fyrr en síðar um
kvöldið. Því var talið að óhætt yrði að ljúka
síðustu ferðum dagsins þótt öllum ferðum
mánudagsins hafi þegar verið aflýst. Vél-
sleðaleigan mun fara yfir öryggisreglur en auk
þess hyggst sýslumaðurinn á Selfossi rann-
saka atvikið og af hverju farið var af stað þrátt
fyrir spána.
Fólki aldrei stefnt vísvitandi í hættu
Skilmálar hjá flestum vélsleðaleigum eru
m.a. þeir að ef aflýsa þarf ferð vegna veðurs
eru þær endurgreiddar með öllu. Nikulás seg-
ir að oft verði ferðamenn mjög óánægðir þeg-
ar hætt sé við ferðir og vissulega sé litið til
kostnaðarins en hann ráði aldrei úrslitum þeg-
ar ákveðið sé hvort aflýsa eigi ferð eða ekki.
„Við myndum aldrei nokkurn tíma stefna
fólki vísvitandi í hættu vegna þessa. Maður
teflir ekkert í tvísýnu, við vitum að það væri
dauðadómur yfir fyrirtækinu auk þess sem
það er mikið andlegt áfall að týna fólki og ekki
eitthvað sem við leikum okkur að.“
Römbuðu á týnda sleðann
Leitarmenn voru orðnir vonlitlir þegar skosk kona og sonur hennar fundust eftir að hafa verð týnd í
10 tíma á Langjökli í ofsaveðri Hárrétt viðbrögð konunnar við aðstæðum björguðu lífi þeirra beggja
Ljósmynd/Þór Kjartansson
Blindbylur Skyggnið var lítið sem ekkert á Langjökli í fyrrinótt og því ótrúleg heppni að mæðginin skyldu finnast. Rúmlega 300 björgunarsveit-
armenn tóku þátt í leitinni en veðurskilyrði voru slík að það var á mörkunum að stætt væri úti. Til stóð að efla leitina til muna þegar í birtingu.
Bláfell
Kj
alv
eg
ur
Þórisjökull
Geitlandsjökull L
AN
GJ
ÖK
UL
L Hrútfell
Eiríksjökull
Húsafell
Hveravellir
10 km
Hvítárvatn
Skálpanes
Morgunblaðið/RAX
Bjargvættir Guðmundur Arnar Ástvaldsson og Þór
Kjartansson óku fram á mæðginin á Langjökli.
ENGAR samræmdar reglur eru um
jöklaferðir á Íslandi og er það því
undir hverju og einu ferðaþjónustu-
fyrirtæki komið við hvað er miðað.
Grundvallaratriðin sem þurfa að
vera í lagi eru ýmis, s.s. að klæðn-
aður og búnaður sé við hæfi, farið
sé yfir rétt viðbrögð við neyðar-
tilvikum áður en lagt er af stað og
að ekki séu of margir óreyndir á
hvern leiðsögumann.
Jón Gauti Jónsson, leið-
sögumaður hjá Íslenskum fjallaleið-
sögumönnum, segir að öryggis-
vitund á fjöllum fari vaxandi, jafnt
hjá göngufólki, jeppa-, og vél-
sleðamönnum. Sú menning að fara
með ferðamenn á fjöll og jökla sé þó
þrátt fyrir allt mjög ung á Íslandi.
Hjá Íslenskum fjallaleiðsögumönn-
um er hið almenna viðmið að jökla-
göngum á skriðjöklum er aflýst ef
vindhraði fer yfir 15 metra á sek-
úndu. Hins vegar eru spálíkönin til
fjalla ekki orðin nógu góð, að sögn
Jóns Gauta, víða fáist t.d. ekki stað-
arspá eða snjóflóðaeftirlit.
„Ég vil ekki meina að það eigi að
horfa blint í veðurspána upp á
hvort ferð sé aflýst eða ekki, þetta
er reynsla sem þarf að safna.
Sem betur fer er það mjög sjald-
gæft að við þurfum að snúa við og
sumpart er það vegna þess að við
erum orðnir ansi vanir að eiga við
veðrið og vitum hvernig það er á
svæðinu sem við ferðumst um mið-
að við veðurspá á stöðvum í kring.“
Sem dæmi nefnir Jón Gauti að á
Sólheimajökli sé veðrið afleitt þeg-
ar það er hvass vindur af suðaustri
en sé vindur meira af austri séu
ferðamenn jafnvel í algjöru skjóli.
Spá um vindhraða á veðurstöðvum í
kring segi því e.t.v. ekki alla sög-
una. M.a. vegna þessa segir Jón
Gauti erfitt að samræma viðmið-
unarreglur í ferðaþjónustu.
Hins vegar sé það staðreynd að
þegar slysin verði hafi oftast eitt-
hvað mátt betur fara. „Þegar mað-
ur lendir í slysum, og ég upplifði nú
eitt síðasta vetur, þá dæmir maður
það oft fyrst sem tilviljunarkennt
óhapp, en eftir á að hyggja má allt-
af finna eitt eða tvö atriði sem
hefðu getað afstýrt slysi, hvort sem
það er vanmat á veðri eða ofmat á
sjálfum sér og samferðamönnum.
Það er auðvelt að vera vitur eftir
á, en hlutverk leiðsögumanns er
ekki að koma fólki á toppinn heldur
að koma því öruggu heim.“
„Hlutverk leiðsögumanns að
koma fólki öruggu heim“