Morgunblaðið - 16.02.2010, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 16.02.2010, Qupperneq 22
22 Umræðan MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. FEBRÚAR 2010 KREPPAN eftir hrunið er í algleymi og enn eru skiptar skoð- anir um hvernig á að bregðast við ástandinu. Vegna mismunandi sjónarmiða hjá máls- metandi fólki í landinu hef ég verið að velta fyrir mér hvort það væri ástæða fyrir venjulegan Íslending að blanda sér í þá umræðu á op- inberum vettvangi, ég er svona kaffitímauppreisnarmaður með fullt af skoðunum. Nú hef ég ákveðið að stíga fram því mér ofbýður alger- lega. Það er svo komið að í þessu þjóðfélagi okkar búa greinilega tvær þjóðir, þ.e.a.s. þeir sem hagnast á ástandinu og lágu gengi krónunnar og vilja engu breyta og við hin sem töpum þúsundum króna í hverjum mánuði vegna þess að lítið er gert til að leysa málin. Hvað er það sem veldur því að ekkert gerist til end- urreisnar þjóðfélaginu og til hjálpar okkur fólkinu í landinu sem á enga sök aðra en þá að hafa trúað stjórn- málamönnum sem lof- uðu stöðugleika og bankamönnum sem máluðu svart malbikið grænt? Jú, það sem veldur þessu er að við erum föst í helj- argreipum pólitísks valds (studds af auð- valdinu) sem hefur ekki víðari sýn en sem snýr að því að halda stöðu sinni og fylgja stefnu flokksins með hvaða ráðum sem er og hvaða afleiðingum sem það hefur og á það bæði við um stjórn og stjórnarandstöðu. Samfylkingin er við völd og hefur aðeins eitt stefnumál að því er virð- ist en það er að ganga í Evrópu- bandalagið og til þess hafa þau svín- beygt Vinstri græna sér til fulltingis. En til að umsóknin verði tekin til skoðunar þarf að ganga frá þeim arma samningi sem kallast Icesave, en þann samning eigum við ekki að skrifa upp á eins og er. Það sem við eigum að gera er að „deponera“ fyr- ir Icesave-kröfunni eins og gert var stundum hér áður fyrr þegar skuld- ari var ekki sáttur við innheimtuna gat hann lagt tilsvarandi upphæð inn á reikning og farið í samninga við hlutaðeigandi og ef það endaði með málaferlum og tapaðist/vannst var upphæðin til reiðu í banka. Þetta er það sem við eigum að gera, rík- issjóður á að fá lánað hjá lífeyr- issjóðunum upphæð eða aðgengi að eign sem samsvarar Icesave kröf- unni, leggja veðið inn hjá hlutlausri þjóð (t.d. Kanada) láta síðan AGS, Breta, Hollendinga og Norð- urlandaþjóðirnar vita að tryggingin sé komin, þá ætti að vera svigrúm til að snúa sér að uppbyggingunni og láta lögfróða aðila sjá um Icesave. Við eigum ekki að ganga í Evrópu- bandalagið, ég tel okkur ekkert hafa þangað að gera (en að sjálfsögðu má fá inntökuskilyrðin upp á borðið svo allir sjái hverju við erum að hafna.) Við eigum að ganga til samninga við Norðmenn, Grænlendinga og Færeyinga (jafnvel Kanada) um að mynda einslags Norðurhafs- bandalag því að við og þessar þjóðir sitjum að eftirsóknarverðustu auð- æfum jarðar, fiskinum í hafinu, hreinu vatni, olíu, hreinni orku og ekki síst að á þessu svæði er minnsta loftmengun í heimi sem tryggir líf- ræna ræktun á landbúnaðarvörum. Við eigum að taka þjóðareignina kvótann til okkar aftur, útgerð- armenn verða bara að sætta sig við að taka meiri þátt í uppbyggingunni þó að hagnaðurinn hjá þeim minnki, við verðum að hafa eitthvað annað en skattpeninga til að semja með. Við eigum að bjóða Noregi og/eða Kanada hluta af kvótanum og olíu- vinnslurétt á landgrunninu í skipt- um fyrir það að þeir standi á bak við íslensku krónuna til að hún styrkist. Restina af kvótanum á síðan að leigja út til íslenskra útgerða á föstu verði með skilyrði um fullvinnslu ákveðins hluta hér heima. Verði eitt- hvað eftir þá verður það boðið hæst- bjóðanda til nýtingar, útgerðir megi ekki framleigja ónýttan kvóta held- ur skila honum inn til þjóðarinnar aftur sem þá leigir hann öðrum. Við eigum að klára uppbyggingu þeirrar stóriðju sem komin er í gang ef það tryggir tekjur og vinnu, og að taka þátt í að fullnýta afurðirnar en ekki senda þær óunnar úr landi. Við eigum nóg af ósnertri náttúru og hreinu lofti til að markaðssetja okk- ur sem náttúruparadís enda á sér- staða okkar Íslendinga að vera þeg- ar til framtíðar er litið, hreint umhverfi og fullvinnsla allra afurða til sjávar og sveita, í því liggur fjör- egg þjóðarinnar og sjálfstæði. Af hverju gerist ekki neitt? Eftir Ægi Björgvinsson » Það sem við eigum að gera er að „depo- nera“ fyrir Icesave- kröfunni eins og gert var hér áður fyrr, þegar skuldari var ekki sáttur við innheimtuna. Ægir Björgvinsson Höfundur er rennismiður. MATVÆLA- STOFNUN boðaði til fundar um varnarlínur og sauðfjársjúkdóma á Heimalandi undir Eyjafjöllum 13. janúar sl. Fundarmenn voru um 50. Allnokkrar um- ræður urðu. Í fund- arlok voru samþykkt með þorra atkvæða Rangæinga og Skaft- fellinga, sem fundinn sátu, harðorð mótmæli til ráðuneytis landbún- aðarmála og Matvælastofnunar við niðurfellingu varnarlínanna Ytri- Rangár og Jökulsár á Sólheima- sandi með auglýsingu nr 793/2009. Umræður um afleiðingarnar og fræðsla áður höfðu verið of litlar, jafnvel engar sögðu menn. Fimm voru á móti samþykktinni. Nokkrir sátu hjá. Þeir sem búa austan Ytri- Rangár skilja flestir og láta sig varða hættuna, sem að svæði þeirra steðjar, þegar Ytri-Rangá er felld niður sem varnarlína. Flutningar á fé byrjuðu strax í haust með og án vitundar Matvælastofnunar. Eftir fá ár kann smitsjúkdómaástand að verða hið sama austan og vestan megin. Enn er hægt að afstýra slysi. Langur meðgöngutími bjarg- ar því. Hliðstæð mótmæli hafa heyrst frá Hornafirði og Aust- fjörðum, einnig úr Borgarfirði vestra. Varað er við því að slaka um of á vörnum gegn smit- sjúkdómum. Það er of snemmt. Skorað er á forustumenn bænda á þessum svæðum og stjórn Landssamtaka sauðfjárbænda að beita sér fyrir því að auglýsingin verði dregin til baka, málið undirbúið betur. Ýmsar varnarlínur má leggja niður. Ekki þessar. Um er að ræða garnaveiki, sem er landlæg vestan Ytri-Rangár frá Landsveit og niður í Ásahrepp, síðast 2009. Garnaveiki hefur fund- ist á aðeins einum bæ austan ár síð- ustu 10 árin. Með því að einbeita sér að þessum eina bæ og næstu bæjum mætti uppræta veikina þar fyrr en ella og hætta þá bólusetn- ingu á svæðinu frá Ytri-Rangá að Markarfljóti. Það væri hagsbót fyr- ir bændur þar. Riðuveiki gæti bor- ist yfir Þjórsá við fjársamgang á af- rétti. Framkvæmdir við virkjanir gætu spillt vörnum. Ytri-Rangá hefur verið líflína svæðisins austan ár að Markarfljóti varðandi riðu- veiki og tryggir öruggari viðbrögð, ef illa fer. Þegar riðuveiki kom upp á Reynifelli um 1982 þurfti að elta uppi fjárhópa, sem seldir höfðu ver- ið um svæðið milli Ytri-Rangár og Markarfljóts. Þá fannst Land- og Holtamönnum gott að hafa Y- Rangá sem varnarlínu. Tannlos og kýlaveiki hafa ekki greinst austan Ytri-Rangár en eru útbreidd um allt svæðið vestan ár: Landsveit, Holt, Ásahrepp og Þykkvabæ. Út- breiðslu þeirra er auðvelt að verj- ast, ef ekki eru felldar niður varn- arlínur. Áin hefur í 30 ár varið svæðið austur til Markarfljóts gegn þeim pestum og gæti kannske dug- að í önnur 30 ár til. Lungnapest og kregða eru land- læg í Rangárvallasýslu. Varist eins og heitan eldinn að hýsa afbæjarfé með heimafé og takið ekki heim fé, sem hýst hefur verið á sýktum bæ eða svæðum. Rangæingar og Skaft- fellingar þurfa að standa saman um varnir sýslnanna, hvorum megin varnarlínu sem þeir búa. Jökulsá á Sólheimasandi hindrar útbreiðslu lungnapestar og kregðu til Skafta- fellssýslu, sem aldrei hafa sést þar. Jökulsá á Sólheimasandi hefur stór- mikla þýðingu til framtíðar, ef nýir sjúkdómar koma fram eða berast á svæðið. Nefnd landbúnaðarráðherra lagði mat á varnir gegn smitsjúkdómum (skýrsla 2006). Hún skildi þetta við- horf og vill halda Jökulsá sem varn- arlínu. Ekki má slaka á vörnum, þar sem Rangárvallasýsla og V- Skaft. mætast á afrétti. Garnaveiki, tannlos, kýlapest, lungnapest, kregða og stutt í riðuveiki vestan frá, en enginn þessi sjúkdómur er í Vestur-Skaftafellssýslu, nema riða í Skaftártungu, síðast fyrir um 20 ár- um, óvarlegt er að gleyma því strax. Fluttar hafa verið óskoðaðar geitur til Vestur-Skaftafellssýslu úr Þistilfirði frá bæ þar sem geit er að drepast úr lungnaveiki en tannlos og kýlaveiki landlæg. Ótrúlegt! Fræðsla gefin fyrr hefði vakið sveitarstjórnir og bændur til skiln- ings á hugsanlegri hættu. Sveitarstjórnirnar ættu að end- urskoða afstöðuna frá því í vor og taka við mikilvægum línum, ef rík- isvaldið vill engu breyta. Enginn viðhaldskostnaður fylgir viðtöku Ytri-Rangár og lítill Sólheimasand- slínu. Landvættirnar sjá um að- alvörnina. Sérstök reglugerð no 423/1979 um varnir gegn smitandi búfjársjúkdómum í Rang- árvallasýslu er í gildi að mati Sig- urðar Líndals prófessors, þrátt fyr- ir auglýsinguna. Voru varnarlínurnar Ytri-Rangá og Sól- heimasandslína lagðar niður í heim- ildarleysi? Sé svo, ættu Matvæla- stofnun og landbúnaðarráðuneyti að hlutast til um flutning til baka eða förgun strax á því fé, sem flutt var í góðri trú í haust yfir Ytri- Rangá og Sólheimasandslínu. Það sem gerst hefur tel ég vera herfileg mistök bæði hvað varðar lögfræði og sjúkdómafræði. Verst er, ef bændur skilja þetta ekki og vinna gegn eigin hagsmunum. Þetta er ekki andstaða gegn yfirdýralækni, ekki gegn lögfræðingum Mat- vælastofnunar eða ráðuneytis, ekki gegn ráðuneyti og ráðherra land- búnaðarmála. Þetta er andstaða gegn útbreiðslu smitsjúkdóma og sérhyggju fárra. Árangur, sem náðst hefur á mörgum áratugum með miklum tilkostnaði ríkis og fjölda bænda, er í húfi. Bændur mótmæla Eftir Sigurð Sigurðarson »Hinn 22. sept. 2009 auglýsti ráðuneyti landbúnaðarmála varn- arlínur gegn sauð- fjársjúkdómum. Um 16 varnarlínur féllu út. Lögmæti þessa er dreg- ið í efa. Sigurður Sigurðarson Höfundur er dýralæknir, sérfróður um sauðfjársjúkdóma og með 40 ára reynslu af sjúkdómavörnum. ÞETTA er saga af ríki þar sem mikil velmegun ríkti og var öfundað af nágrönn- um sínum vegna vel- gengni sinnar. Íbúar þess voru vel mennt- aðir og stjórn helstu auðlinda þess var með þeim hætti að mikil auðæfi voru sköpuð, þvert á þá venju sem ríki í nágrannaríkjum þess. Af þeim ástæðum var litið til þessa lands í allri umræðu í nágrannaríkjunum um betri auð- lindanýtingu. Þrátt fyrir vel- gengni ríkti mikil óánægja vegna skiptingar og eignarhalds á hin- um takmörkuðu auðlindum, þá sérstaklega þeirri sem viðkom matvælaframleiðslu. Stór hluti al- mennings hafði lengi krafist þess að auðlindin yrði tekin af þeim sem réðu yfir henni og yrði skipt upp á nýtt á meðal almennings á sanngjarnan hátt, sem svo var kallaður. Útbreidd skoðun var að auðlindinni hefði verið rænt af þjóðinni, þó svo að það hefði gerst löngu áður. Þeir sem nú fóru með reksturinn komu ekki nálægt því hvernig staðið var að upphaflegri útdeilingu á þessum takmörkuðu gæðum en voru þó samt þjóf- kenndir. Ráðamenn höfðu lengi nýtt sér þessa óánægju sér til framdráttar með allskyns loforðum um breyt- ingar en aldrei tekið af skarið eða haft vilja til þess að breyta neinu að ráði. Á þessu varð breyting þegar niðursveifla hófst í efna- hagslífinu og deilur stóðu yfir við voldug erlend ríki. Ráðamenn sáu sér þá leik á borði, til að auka eigin vinsældir og sefa reiði al- mennings vegna ástands efna- hagsmála, með því að fara í end- urúthlutun á auðlindinni. Almenningur fagnaði ákaft og voru ráðamenn hvattir til að fara hraðar í endurúthlutunina. Þeir sem áður höfðu farið með stjórn auðlindarinnar hrökkluðust frá. Stjórnvöld endurúthlutuðu auð- lindinni til nýrra aðila sem tóku við rekstrinum. Oft á tíðum voru þessir nýju aðilar flokksgæðingar, ættingjar eða aðrir aðilar ná- komnir ráðamönnum. Árangurinn af beinni aðkomu stjórnvalda á nýtingu auðlind- arinnar, og svo afskipti af því hverjir fóru með rekstur hennar, var ekki bara slæmur heldur hreint út sagt hræðilegur. Þjóð- arframleiðsla hrundi á nokkrum árum, gjaldmiðill landsins hrundi í verði og verðbólgan fór á flug og náði nýjum hæð- um. Upphófst svo hrina gjaldþrota og atvinnuleysi óx upp að því marki að auðveldara var að telja þá sem höfðu vinnu en þá sem voru atvinnulausir. Þetta leiddi síðan til þess að þriðjungur þjóðarinnar flúði land í leit að tækifærum til betra lífs. Margir telja sig eflaust kannast við þessa umfjöllun og því ber að taka fram að hér er ekki verið að fjalla um Ísland eða mögulega framtíð- arsýn ef fyrningarleiðin og end- urúthlutun á auðlindum hafsins yrði farin. Þetta er söguleg lýsing á þeim ákvörðunum og afleið- ingum þeirra sem teknar voru af ráðamönnum í ríkisstjórn Ro- berts Mugabe, forseta Zimbabwe, þegar ákveðið var að hefja eign- arnám og endurúthlutun á jarð- næði þar í landi. Hér á Íslandi hafa margir kvatt sé hljóðs um að við ættum að taka önnur ríki okk- ar til fyrirmyndar í hinu ýmsu málum, reyna að læra af reynslu þeirra og jafnvel gengið svo langt að segja að við ættum að miða löggjöf og skattamál okkar við það sem gerist öðrum ríkjum. Það er gott að geta lært af reynslu annarra í því sem vel hef- ur tekist. Mikilvægara er þó að læra af reynslu þeirra sem gert hafa afdrifarík mistök. Við eigum ekki að endurtaka mistök ann- arra og vonast til að niðurstaða okkar verði öðruvísi og að hjá okkur gildi önnur lögmál. Sú orð- ræða um ný lögmál og að þau gömlu gildi ekki lengur heyrist ávallt rétt fyrir hrun. Afleiðing endurút- hlutunar auðlinda Eftir Fannar Hjálmarsson Fannar Hjálmarsson » Þetta leiddi síðan til þess að þriðjungur þjóðarinnar flúði land í leit að tækifærum til betra lífs. Höfundur er nemi og er áhugamaður um stjórnmál og sögu Afríku sunnan Sahara.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.