Morgunblaðið - 16.02.2010, Side 31

Morgunblaðið - 16.02.2010, Side 31
Minningar 31 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. FEBRÚAR 2010 Tölvur Bílaþjónusta Blekhylki f. Canon prentara. Tölvuleikir - Ódýr ný prenthylki fyrir Canon prentara (HP). Sjá vefsíðu www.ishof.is. Erum einnig með úrval tölvuleikja: PS2, PS3 ... Á góðum verðum. Sjá vefsíðu www.ishof.is. Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl Bækur www.gvendur.is Gvendur dúllari hefur opnað fornbókabúð á vefnum. Gott úrval bóka. Gvendur dúllari Alltaf góður Spádómar ÞÓRA FRÁ BREKKUKOTI – Spámiðill Spái í spil og kristalskúlu Heilunartímar Fyrirbænir Algjör trúnaður Sími 618 3525 www.engill.is Þjónusta Hreinsa þakrennur hreinsa veggjakrot, vörudreifing, akstur, vélavinna og ýmis smærri verk. Uppl. 847 8704 eða manninn@hotmail.com Vélar & tæki Sand- og saltdreifarar Til sölu vandaðir sand- og saltdreifar- ar í ýmsum stærðum. Orkuver ehf. www.orkuver.is Sím: 534 3435. Sendibílar Til leigu stór sendibíll Tilvalinn til langflutninga. Sanngjörn leiga. Trygging. S. 845-0454. Húsviðhald Þak og utanhússklæðningar og allt húsaviðhald Ragnar V Sigurðsson ehf Sími 892 8647. Skipti um rennur og bárujárn á þökum, einnig smávægilegar múrviðgerðir og ýmislegt fl. Þjónum landsbyggðinni einnig. Upplýsingar í síma 659-3598. Pípulagnir Pípulagnameistarar geta bætt við sig verkefnum. Allar almennar pípulagnir. Óttar s: 695 0170 - Gunnar s: 695 8615. G.Ó. Pípulagnir. Smáauglýsingar augl@mbl.is Farðu inn á mbl.is/smaaugl Ég hefði viljað byrja þessa grein á öðrum orðum en „nú er komið að þessu“ en þau orð koma því mið- ur upp í huga mér núna. Ég hef samið þessa grein í huganum í mörg ár en undanfarið var ég farin að vona að þessi grein yrði óþörf og þú myndir verða gamall maður og ég myndi hitta þig á förnum vegi eftir mörg ár og við gætum rifjað upp gamla tíma. Við Björgvin bjuggum saman fyr- ir þó nokkrum árum og við ætluðum okkur að vera saman alla ævi en ýmislegt fer öðruvísi en ætlað er. Ég kynntist honum á góðum tíma en hann var á sjó og ég nýflutt til landsins aftur árið 2001. Ég hafði vitað af honum í mörg ár en þetta haust smullum við saman og við tóku langir mánuðir þar sem Björg- vin var á sjó á Flæmska hattinum lengst norður í hafi. Og ekki voru gervihnattasímtölin ódýr þar sem mínútan kostaði eitthvað í kringum 200 krónur að mig minnir. Fyrstu jólin okkar fengum við lánaðan jeppa hjá pabba og fórum austur og ég kynntist fjölskyldunni hans, yndislegu fólki sem þarf að kveðja son sinn núna vegna sjúk- dóms sem gefur ekkert eftir. Við áttum góðan tíma saman, ferðuð- umst um landið, fluttum til Eyja þar sem ég fór að kenna og þú fékkst loks pláss á humarbát, en það var ekki auðvelt að koma nýr inn í fiski- samfélagið þar og fá vinnu. Það var ansi ljúft líf að fá humarveislu nokkrum sinnum í viku. Við höfðum það gott í Eyjum, þar var rólegt og gott að vera. Bökunar- og skáld- hæfileikar þínir komu í ljós og við Björgvin Ómarsson ✝ Björgvin Óm-arsson fæddist í Reykjavík 21. ágúst 1971. Hann lést í Reykjavík 25. janúar 2010. Björgvin var jarð- sunginn frá Fella- og Hólakirkju 3. febrúar 2010. vorum búin að rúnta hvern einasta veg- slóða sem í boði var 20 sinnum á gamla Pontiacnum. En svo fór að halla undan fæti og ljóst varð að sambúðin væri ekki á réttri leið. Við héldum samt vin- skap lengi eftir sam- búðarslit og vorum kannski bara í nokk- urs konar fjarbúð næsta árið eða svo. Síðustu ár heyrði ég ekki oft í þér, hringdi samt alltaf á afmælinu þínu en í hittiðfyrra hef- urðu fengið þér nýtt númer og ég varð mér aldrei úti um það nýja. Ég heyrði síðast í þér fyrir um tveimur árum og það var reyndar mjög gott samtal, við náðum að útkljá ýmis- legt. Þú sagðir að þú hefðir bara ekki vitað almennilega hvernig ætti að bera sig að í sambandi en sam- gladdist mér fyrir að vera komin með góðan mann og mér þótti mjög vænt um það. Ég sagði honum að ég óskaði þess að hann tæki sig á og kynntist góðri konu því Björgvin var góður maður og hafði upp á ým- islegt að bjóða ef allt var með felldu. Við töluðum líka um dreng sem lést um þetta leyti og hversu sorglegt það væri að svona ungur maður skyldi deyja, en þú þekktir ófáa sem höfðu látist vegna of- neyslu og líklega hefurðu verið orð- inn hræddur sjálfur. Þú þekkir allt of marga sem hafa látist svo við vit- um að þú verður ekki einmana þar sem þú ert núna og loks geturðu hitt systur þína sem þú saknaðir svo mikið, sem lést í bílslysi 1994. Ég trúi því að þú hafir það gott núna og þurfir ekki að berjast við fíknir lengur. Kæra Hanna Stína, Ómar, Dagný, Kristrún og fjölskylda, megi Guð gefa ykkur styrk á þess- um erfiða tíma. Margrét Sævarsdóttir. ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang- amma, JÓNA BERGÞÓRA HANNESDÓTTIR, Reynigrund 81, Kópavogi, sem lést miðvikudaginn 10. febrúar, verður jarðsungin frá Dómkirkjunni miðvikudaginn 17. febrúar kl. 13.00. Þeim sem vildu minnast hennar er bent á líknardeild Landspítalans í Kópavogi. Steinar Vilberg Árnason, Guðrún Norðfjörð, Þyri Kap Árnadóttir, Trausti Leósson, Jón Atli Árnason, Salvör Jónsdóttir, ömmubörn og langömmubörn. ✝ Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og amma, STELLA OLSEN, Suðurási 32, Reykjavík, sem andaðist á líknardeild Landspítalans í Kópavogi þriðjudaginn 9. febrúar, verður jarðsungin frá Keflavíkurkirkju fimmtudaginn 18. febrúar kl. 14.00. Birgir Ólafsson, Telma Birgisdóttir, Finnur Kolbeinsson, Snorri Birgisson, Martha Sandholt Haraldsdóttir og barnabörn. ✝ Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, bróðir og mágur, INGI JÓN JÓHANNESSON, sem lést sunnudaginn 7. febrúar, verður jarðsunginn frá Hafnarkirkju Hornafirði laugar- daginn 20. febrúar kl. 14.00. Minningarathöfn verður í Hjallakirkju Kópavogi miðvikudaginn 17. febrúar kl. 15.00. Birna Kristín Ómarsdóttir, Haraldur Smári, Björn Ómar, Valgerður Jóhannesdóttir, Valgeir Birgisson, Íris G. Valberg, Trausti Guðlaugsson, Anna Bj. Samúelsdóttir, Bjarni Danival Bjarnason. ✝ Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, bróðir, afi og langafi, PÁLL JÓSTEINSSON, verður jarðsunginn frá Safnaðarheimilinu Sand- gerði miðvikudaginn 17. febrúar kl. 14.00. Sérstakar þakkir til starfsfólks á D-deild Heil- brigðisstofnun Suðurnesja fyrir frábæra umönnun. Fyrir hönd aðstandenda, Guðmundur Pálsson, Ólöf Bolladóttir, Jóna Björg Pálsdóttir, Birgir Elíasson, Páll Kristberg Pálsson, Ása Guðný Árnadóttir, Kristinn Jónsson, Lucyna Augustynowicz, Nanna Jónsdóttir, Vífill Björnsson, Jón B. G. Jónsson, Ingibjörg Guðmundsdóttir. ✝ Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð, vináttu og hlýhug við andlát og útför elsku- legrar eiginkonu, móður, tengdamóður, ömmu og langömmu, BIRNU BJÖRNSDÓTTUR, Ægisgötu 15, Akureyri. Bestu þakkir til starfsfólks á dvalarheimilinu Hlíð fyrir góða umönnun. Axel Jóhannesson, Ásdís Axelsdóttir Colbe, Anker Colbe, Björn Þröstur Axelsson, Anna Halldóra Karlsdóttir, Steingerður Axelsdóttir, Jóhannes Axelsson, Sigrún Arnsteinsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær móðir okkar, ÓLÖF GUÐRÚN JÓNSDÓTTIR TRAMPE, lést á Sjúkrahúsinu á Akureyri þriðjudaginn 9. febrúar. Hún verður jarðsungin frá Akureyrarkirkju fimmtu- daginn 18. febrúar kl. 13.30. Börn hinnar látnu. ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ANNA MARGRÉT ELÍASDÓTTIR, Hrafnistu, Hafnarfirði, áður Boðahlein 26, andaðist á heimili sínu föstudaginn 12. febrúar. Útför verður auglýst síðar. Ragnar Stefán Magnússon, Guðlaug P. Wíum, Svanhvít Magnúsdóttir, Elín Guðmunda Magnúsdóttir, ömmubörn og langömmubörn. Morgunblaðið birtir minningar- greinar endurgjaldslaust alla út- gáfudaga. Skil | Greinarnar skal senda í gegnum vefsíðu Morgunblaðsins. Smellt á reitinn Senda inn efni á for- síðu mbl.is og viðeigandi efnisliður valinn. Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstu- degi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein ber- ist áður en skilafrestur rennur út. Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.