Morgunblaðið - 16.02.2010, Blaðsíða 40
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. FEBRÚAR 2010
Ashton Kutcher,
Julia Roberts,
Jessica Alba,
Bradley Cooper,
Jamie Foxx,
Anne Hathaway,
Jennifer Garner,
Patrick Dempsey,
Queen Latifah
og fjöldi annarra
þekktra leikara
SUMIR ERU HEPPNIR Í ÁSTUM
AÐRIR EKKI!
FRÁBÆR, GAMANSÖM
OG RÓMANTÍSK MYND
SÝND Í ÁLFABAKKA OG KRINGLUNNI
FRÁ RAGNARI BRAGASYNI KEMUR
EIN BESTA GAMANMYND ÁRSINS! BJARNFREÐRobert Downey Jr. og Jude Law erustórkostlegir í hlutverki Sherlock
Holmes og Dr. Watson
Besti leikarinn,
Robert Downey Jr. 11 TILNEFNINGAR TIL ESÝND Í ÁLFABAKKA OG AKUREYRI
TILNEFND TIL
2 ÓSKARSVERÐLAU
NA
HHH
„BÍÓMYND SEM UNDIRRITAÐUR
GETUR MÆLT MEÐ...“
„SENNILEGA EINHVER ÖFLUGASTA
BYRJUN SEM ÉG HEF SÉÐ...“
- KVIKMYNDIR.IS – T.V.
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, AKUREYRI, KEFLAVÍK OG SELFOSSI
FRÁ SAMA LEIKSTJÓRA OG FÆRÐI
OKKUR PRETTY WOMAN
HHH
„Flottur stíll, góðar brellur, af-
bragðs förðun og MIKIÐ blóð. Ég
fékk semsagt allt sem bjóst við
og gekk alls ekki út ósáttur.”
T.V. -Kvikmyndir.is
SÝND Í ÁLFABAKKA
600 kr.
600 kr.
600 kr.
/ KRINGLUNNI
VALENTINE'S DAY kl. 5:40D - 8:10D - 10:40D L
MAYBE I SHOULD HAVE kl. 6 L
THE BOOK OF ELI kl. 8:10D - 10:40D 16
UP IN THE AIR kl. 10:20 L
BJARNFREÐARSON kl. 6 - 8:10 L
PLANET 51 m. ísl. tali Sýnd á föstudag L
/ ÁLFABAKKA
VALENTINE'S DAY kl. 5:30 - 8D - 10:40D L DIGITAL THE BOOK OF ELI kl. 10:20 16
VALENTINE'S DAY kl. 8 - 10:40 VIP-LÚXUS WHERE THE WILD THINGS ARE kl. 5:50 7
THE WOLFMAN kl. 5:50 - 8 - 10:20 16 UP IN THE AIR kl. 8 L
TOY STORY 2 - 3D m. ísl. tali kl. 5:50 3D L 3D-DIGITAL SHERLOCK HOLMES kl. 8 - 10:40 12
AN EDUCATION kl. 8 L BJARNFREÐARSON kl. 5:50 - 10:10 L
AN EDUCATION kl. 5:50 VIP-LÚXUS PLANET 51 m. ísl. tali Sýnd á föstudag L
GILDIR EKKI Á ÍSLENSKAR, VIP OG 3D MYNDIR
Eftir Helga Snæ Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
„ÞAÐ liggur fyrir ákvörðun um
það að Spaugstofan haldi sínu
striki og klári sitt prógramm fram
á vor. Það hafa ekki verið teknar
endanlegar ákvarðanir um næstu
vetrardagskrá, það er sú vetr-
ardagskrá og rekstraráætlun sem
verður end-
urgerð núna, í
ljósi aðstæðna.
Nýtt rekstrarár
tekur við hjá
okkur 1. sept-
ember með upp-
hafi vetrardag-
skrár og það
hafa engar
ákvarðanir verið
teknar um þá dagskrá,“ segir Páll
Magnússon útvarpsstjóri, spurður
að því hvort Spaugstofan verði á
dagskrá næsta vetur eða ekki.
Á forsíðu DV í gær blasti við
fyrirsögnin „Endalok Spaugstof-
unnar: Látnir fjúka“ og í grein í
blaðinu var vísað í heimildir um að
Spaugstofan yrði ekki á dagskrá
næsta vetur, en heimildarmaður
eða -menn þó ekki nefndir.
En veit útvarpsstjóri hvenær
það mun liggja fyrir hvort Spaug-
stofan verður á dagskrá næsta
vetur eða ekki?
„Þetta mun liggja fyrir núna í
vor og þá verða teknar endanlegar
ákvarðanir um þetta. Við erum að
vinna í alls konar drögum að vetr-
ardagskrá næsta árs, næsta
rekstrarár byrjar hjá okkur 1.
september og það liggja ekki fyrir
neinar endanlegar ákvarðanir um
það og þær endanlegu ákvarðanir
liggja ekki fyrir fyrr en í vor. En
auðvitað er verið að vinna að
þessu, drögin fyrir næsta vetur
liggja alveg fyrir og það er verið
að fínpússa og taka ákvarðanir um
einstaka þætti,“ svarar Páll og því
hafi ekki verið tekin ákvörðun um
einstaka þætti, hvorki Spaugstof-
una né aðra.
„Það er auðvitað verið að vinna
með alls konar drög, alls konar
hugmyndir og útreikninga, hvort
þessi þáttur eigi að vera frekar en
annar en við höfum heldur ekki
svarað þeim í þá veru að það sé
ákveðið að þeir verði,“ segir Páll.
Dýrasti fasti þátturinn
– Þetta er væntanlega dýrasti
þátturinn í framleiðslu í Sjónvarp-
inu?
„Þetta er dýrasti fasti þátturinn
í Sjónvarpinu, já. Af þeim þáttum
sem eru í fastri dagskrá og viku-
lega, alla vetrardagskrána, þá er
Spaugstofan auðvitað sá dýrasti.
Síðan eru til dýrari þættir auðvit-
að, leikið efni í stökum seríum,
þar er hærra mínútuverð nátt-
úrlega,“ segir Páll og nefnir sem
dæmi Hamarinn. Það sé þó ekki
aðeins hægt að rýna í fram-
leiðslukostnað af leiknu íslensku
sjónvarpsefni, það verði líka að
horfa á nettóáhrifin, áhorf og aug-
lýsingatekjur m.a. Margt þurfi að
vega og meta, til dæmis tekjur og
áhorf.
– En það hlýtur að vera fullur
vilji fyrir því að halda Spaugstof-
unni á dagskrá?
„Dagskrárlega séð þurfa menn
svo sem ekki að horfa á neitt ann-
að en tölurnar. Þessi þáttur er
náttúrlega búinn að halda 50%
áhorfi áratugum saman þannig að
það er auðvitað mikill akkur í því
að vera með svoleiðis þátt á dag-
skrá.“
Fremstir í flokki
– Og það er ekki búið að slá
Spaugstofuna af þannig að aðdá-
endur þurfa ekki að örvænta …
„Það er ekki búið að slá Spaug-
stofuna af. Hvað sagði ekki skáld-
ið: Þessar fréttir af dauða mínum
eru stórkostlega ýktar. Þetta eru
s.s. ótímabærar andlátsfréttir því
ákvörðunin hefur ekki verið tek-
in.“
– Spaugstofan hefur líka verið á
blússandi siglingu í kreppunni?
„Jájájájá og það má alveg segja
að það sé partur af þeim skyldum
sem við þurfum að uppfylla, að
vera með paródíu á þetta samfélag
sem við lifum í, og þeir hafa farið
fremstir í þeim flokki.“
„Ótímabærar andlátsfregnir“
Útvarpsstjóri segir ekkert ákveðið um framtíð Spaugstofunnar Má segja að
það sé partur af skyldum RÚV að vera með paródíu á samfélagið, segir Páll
Spaugstofan Örn, Sigurður og Karl við tökur á Spaugstofuþætti í vetur.
Páll Magnússon
Morgunblaðið/RAX
KARL Ágúst Úlfsson segir þær
líkur alltaf hafa verið fyrir hendi
að hver vetur yrði sá síðasti hjá
Spaugstofunni.
- Þið hljótið að vera dálítið
uggandi um stöðu ykkar vegna
fyrirhugaðs niðurskurðar RÚV?
„Já, já, nú ef svo fer að við
verðum ekki á dagskrá næsta
vetur þá er það bara þannig og
við myndum kveðja algjörlega
án alls biturleika.“
– Hafið þið rætt það að vera
annars staðar en hjá RÚV?
„Jú, jú, auðvitað höfum við
rætt það og svo er sjónvarp ekki
eini miðillinn sem við getum
hugsað okkur. En við höfum
haldið tryggð við RÚV í öll þessi
ár og RÚV haldið tryggð við okk-
ur þannig að þetta er svona
ákveðið hjónaband sem er
kannski engin ástæða til að
slíta á meðan ekki er allt upp í
loft.“ Spurður hvort hrunið,
kreppan og allt í kringum hana
sé ekki gósentíð fyrir Spaug-
stofuna, nóg að gera grín að,
segir Karl: „Sannarlega er mikið
í gangi og margt að koma upp á
yfirborðið sem aldrei hefur sést
áður á Íslandi, allt þetta misferli
eða hvaða nafni við kjósum að
nefna það, sem er núna að birt-
ast en hefur tekist að halda
undir yfirborðinu fram að
þessu, það er ákveðin gósentíð
fyrir okkur. Hins vegar liggur
ástandið sjálft svo þungt yfir
öllu þjóðlífinu að það er svo lítið
um annað efni, og oft óskar
maður þess að maður mætti
bara fjalla um sauðburð eða
rússneska skautaparið, eitt-
hvað svoleiðis, eitthvað sem
tengist ekki endilega kreppunni
eða hruninu.“
Myndu kveðja án
biturleika
BANDARÍSKU Razzie-kvikmynda-
skammarverðlaunin verða afhent 6.
mars næstkomandi, degi áður en
þekktustu kvikmyndaverðlaun
heims, Óskarsverðlaunin.
En hverjir skyldu nú
vera kóngur og drottn-
ing skammarverð-
launanna sem kennd
eru við hindber? Jú,
Sylvester Stallone
og Madonna.
Stallone hefur
oftast orðið fyrir
valinu sem versti
leikari ársins, alls átta sinnum en hef-
ur auk þess hlotið tvenn önnur verð-
laun fyrir afrek tengd hvíta tjald-
inu. Sly hlaut verðlaunin síðast
árið 2003 fyrir Spy
Kids 3-D: Game
Over. Verðlaunin
hefur hann einnig
hlotið fyrir Rhine-
stone, Rambo II og
Rocky IV (þar sem
hann þótti einnig
versti leikstjóri og
handritshöf-
undur), sem versti
leikari 9. áratugarins og þá var hann
helmingur versta kærustupars árs-
ins á hvíta tjaldinu árið 1994, þegar
hann átti vingott við Sharon Stone í
The Specialist. Næstversti leikari í
sögu verðlaunanna er Kevin Costner,
16 tilnefningar og sex verðlaun.
Í kvennadeildinni er það söng-
konan, barnabókahöfundurinn og
leikkonan Madonna. 15 tilnefningar
þar og 9 verðlaun. Seinast hlaut hún
verðlaun árið 2002 fyrir auka-
hlutverk í Die Another Day, en auk
þess hlaut hún verðlaun fyrir að vera
helmingur versta pars hvíta tjaldsins
það ár, í kvikmyndinni Swept Away.
Þá hefur hún verið verðlaunuð fyrir
frammistöðu sína í Shanghai Sur-
prise, Who’s that Girl?, Body of Evi-
dence og Four Rooms, svo nokkrar
séu nefndar. Næst á lista yfir verstu
leikkonur allra tíma, að mati Razzie,
er Bo Derek.
Versta kvikmynd allra tíma er I
Know Who Killed Me frá árinu 2007,
með leikkonunni Lindsay Lohan í
aðalhlutverki. Sú mynd fékk átta
verðlaun og þar af hlaut Lohan tvisv-
ar sinnum verðlaun fyrir verstan leik
í aðalhlutverki, en hún lék tvíbura.
Battlefield Earth er í öðru sæti og
Showgirls í þriðja.
Stallone og Madonna
hindberjakonungshjón
Sly Lék margar persónur í Spy Kids 3-D: Game Over og hlaut Gullhindber.
Lohan Heldur ráðvillt í verstu mynd
allra tíma, I Know Who Killed Me.