Morgunblaðið - 24.02.2010, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 24.02.2010, Blaðsíða 1
M I Ð V I K U D A G U R 2 4. F E B R Ú A R 2 0 1 0 STOFNAÐ 1913 45. tölublað 98. árgangur Landsprent ehf. MBL.IS Morgunblaðið hvar sem er hvenær sem er 95 ára mbl.is «AF RÚV OG ÍSLENSKU SJÓNVARPSEFNI MESTA VIRÐIÐ ER Í INN- LENDRI DAGSKRÁRGERÐ «VÍKINGUR HEIÐAR ÓLAFSSON Svipað að vera píanó- leikari og íþróttamaður 6 MIKIL náttúrufegurð leynist umhverfis jöklana okkar og ekki er útsýnið af þeim síðra. Það sem færri vita er að mikil fegurð getur líka leynst inni í íshellum jöklanna. Þrír ísklifrarar enduðu hringferð sína um landið í Öræfasveit- inni þar sem þeir heimsóttu þennan fagra íshelli í Breiða- merkurjökli. Loft hellisins minnir á himingeiminn og þau ótrúlegu stjarn- fræðilegu undur sem þar má sjá og sýnir svo ekki verður um villst að undrin fyrirfinnast einnig í næsta nágrenni við okkur. ÓTRÚLEGT LITASAMSPIL Í BREIÐAMERKURJÖKLI Ljósmynd/Guðmundur Freyr Jónsson  Um 80% af auglýsingum sem Hagkaup og Bónus birtu á síðasta ári birtust í sjónvarpsstöðvum í eigu 365. Að- eins um 5% birtust á RÚV og 14% á Skjá einum. Þetta má lesa út úr gögnum frá Capacent. Hagkaup og Bónus hafa í auknum mæli beint auglýs- ingum til sjónvarpsstöðva 365, því að árið 2005 fóru um 50% auglýs- inganna í þessa miðla. Áhorfstölur Capacent sýna enn- fremur að áhorf á RÚV er meira en á Stöð 2 eða aðrar sjónvarpsstöðvar í eigu 365. »6 Um 80% auglýsinganna birtust á stöðvum 365  Landssamtök lífeyrissjóða taka vel í áskorun Kennarasambands Ís- lands um að fjárfesta ekki í fyr- irtækjum í eigu og undir stjórn út- rásarvíkinga. Stjórn samtakanna fundaði í gær og m.a. var ákveðið að fara ítarlega yfir verklagsreglur sjóðanna. Formaður samtakanna, Arnar Sigurmundsson, segir þetta vera mjög brýnt mál. »4 Lífeyrissjóðir taka áskorun KÍ um fjárfestingar vel Eftir Agnesi Bragadóttur agnes@mbl.is Í NIÐURLAGI bréfs Breta og Hollendinga frá því sl. föstudagskvöld, sem inniheldur gagntilboð landanna til Íslendinga um Icesave-samninginn, segir orðrétt „Þetta er okkar besta boð“ (e. This is our best offer). Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins spunnust talsverðar um- ræður um það á fundum forystumanna stjórnmálaflokk- anna og íslensku viðræðunefndarinnar í Icesavemálum nú um helgina, hvort líta bæri á þessa setningu sem af- dráttarlausa yfirlýsingu breskra og hollenskra stjórn- valda í þá veru að þetta væri þeirra lokatilboð og um ann- að yrði ekki samið af hálfu bresku og hollensku þjóðanna. Ef marka má fyrstu en óformlegu viðbrögð Breta og Hol- lendinga við bréfi fjármálaráðherra, er talið allt eins lík- legt að nýr samningafundur Breta, Hollendinga og Ís- lendinga verði í dag eða á morgun í Lundúnum. Samningatæknilegt atriði? Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins kvaðst Lee Buchheit, bandaríski sérfræðingurinn sem fer fyrir ís- lensku viðræðunefndinni, vera undrandi á því orðalagi sem Bretar og Hollendingar notuðu í tilboði sínu, um sitt besta boð. Slíkt orðalag væri óvenjulegt á þessu stigi málsins. Hann mun jafnframt hafa greint forystumönn- um stjórnmálaflokkanna frá þeirri skoðun sinni að hugs- anlega væri hér um samningatæknilegt atriði að ræða hjá Bretum og Hollendingum og það þyrfti einfaldlega að koma í ljós hvort Bretar og Hollendingar væru reiðubún- ir til þess að setjast að samningaviðræðum með Íslend- ingum á nýjan leik. Persónulega kvaðst Buchheit telja að Bretar og Hollendingar vildu halda áfram viðræðum við Íslendinga. Buchheit mun einnig telja að Bretum og Hol- lendingum sé mikið í mun að ekki fari fram þjóð- aratkvæðagreiðsla á Íslandi um Icesave-samninginn. Sið- ferðilega standi Íslendingar vel að vígi, þar sem þeir hafi sýnt sanngirni og ábyrgð með þeim drögum að tilboði sem kynnt hafi verið í Lundúnum í síðustu viku. Enn er beðið eftir formlegum viðbrögðum frá Bretum og Hollendingum, en eins og áður segir gefa hin fyrstu óformlegu viðbrögð þjóðanna frá í gær vísbendingar um að enn sé svigrúm til þess að ræða saman. Í gærkvöldi var allt eins búist við nýjum viðræðufundi í Lundúnum í dag eða á morgun. Buchheit er nú þegar kominn til Lundúna.  Önnur samningalota í vændum | 2 „Okkar besta boð“  Óformleg viðbrögð Breta og Hollendinga gefa til kynna að nýr viðræðufundur þjóðanna fari fram í dag eða á morgun » Beðið eftir formlegum viðbrögðum » Buchheit undrandi á orðalagi » Viðræðunefnd komin til Lundúna » Ekki fari fram atkvæðagreiðsla SKOTAR gætu misst yfirráð yfir aflaheimildum í eigin lögsögu nái breytingartillögur á Sameiginlegri sjávarútvegsstefnu Evrópusam- bandsins (CFP) fram að ganga á Evrópuþinginu en stefnt er að því að greiða atkvæði um þær í dag. Þetta er mat Struan Stevenson, þingmanns skoska Íhaldsflokksins á Evrópuþinginu, sem varar við afleið- ingunum fyrir skoskan sjávarútveg. Spænskir togarar geti sótt sjó í skoskri landhelgi og landað aflanum í heimahöfn þannig að tekjurnar kæmu aldrei inn í landið. Með breyt- ingunum geti Spánverjar haldið því fram að þeir eigi sama nýtingarrétt og Skotar á veiðisvæðum þeirra. | 14 Reuters Óttast um fiskimiðin Skoskur þingmaður óttast tillögur ESB RÚV 5% 365 miðlar 80%

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.