Morgunblaðið - 24.02.2010, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 24.02.2010, Blaðsíða 2
2 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. FEBRÚAR 2010 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Ívar Páll Jónsson, fréttastjóri, ivarpall@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins | Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is SAMTÖKIN Nýtt Ísland mótmæltu innheimtu bílalána fyrir utan höfuðstöðvar Íslandsbanka við Kirkjusand í gær. Samtökin vilja leiðréttingu á „stökkbreyttum höfuðstól bílalánasamninga“. Þetta er í áttunda sinn sem samtökin mótmæla lánunum. Mótmælin eru farin að vekja athygli erlendra fréttastöðva. Bloomberg-fréttaveitan fylgdist t.d. með mótmælunum við Íslandsbanka í gær. Mótmæltu hækkun höfuðstóls á bílalánum Morgunblaðið/Ernir Þeyttu flauturnar fyrir utan Íslandsbanka Eftir Baldur Arnarson baldura@mbl.is „ÞAÐ er það að frétta að ég átti með þeim símafund og við erum í við- bragðsstöðu ef okkur tekst að koma á fundi eða einhverjum samskiptum. Þeir hafa verið að lesa í okkar bréf og átta sig á því og við höfum líka verið að reyna að átta okkur á því hver staðan er til að reyna að hafa áframhaldandi hreyfingu í málinu,“ sagði Steingrímur J. Sigfússon fjár- málaráðherra um stöðuna í Icesave- málinu síðdegis í gær. Skýrist á allra næstu dögum Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins innan stjórnarráðsins var staðan þá metin þannig að það myndi skýrast á næstu dögum hvort samn- ingaviðræður myndu hefjast á ný en þar er horft til þess að Bretar séu viljugir til að ljúka málinu sem fyrst og því e.t.v. líklegri til eftirgjafar en Hollendingar. Sú breyting varð í samningavið- ræðunum í gær að Wouter Bos, frá- farandi fjármálaráðherra Hollands, lét þá af embætti eftir stjórnarslitin um helgina en úr hollenska stjórn- kerfinu bárust þær upplýsingar að Icesave-tilboðið um helgina væri lokatilboð sem ekki yrði hvikað frá. Steingrímur víkur að upplausninni í Hollandi og áhrifum hennar. „Það er óvissuástand Hollands- megin sem er svolítið að vefjast fyrir okkur. Ég ræddi við Wouter Bos […] er hann var á síðustu metrun- um í embætti. Ég átti ágæt símtöl við ráðherrana báða, Bos og Paul Myners [banka- málaráðherra Breta]. Þetta er miklu meira í höndum Myners núna.“ – Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins er um lokatilboð að ræða af hálfu Hollendinga. Hvað viltu segja um það? „Við erum að reyna að tryggja að það geti orðið frekari samskipti á milli ríkjanna. Og ég tel að það séu sæmilegar horfur um það en ég tel of snemmt að segja hvenær það gæti orðið.“ – Telurðu að það sé svigrúm til eftirgjafar af hálfu Hollendinga, þrátt fyrir pólitískan óstöðugleika? „Þetta er auðvitað viðkvæmt ástand sem er snúið við að eiga en það er áfram til staðar í báðum lönd- unum mikill vilji til að leysa þetta og klára þetta núna. Og auðvitað hjá okkur líka því að við höfum tækifæri til þess núna sem er ekkert víst að komi upp í hendurnar á okkur í bráð […] Ég átti gott samtal við Myners og lagði áherslu á að næsta skref væri að okkar fulltrúar gætu hist.“ – Hvenær? „Það verður að koma í ljós. Við er- um að vinna að því,“ sagði Stein- grímur sem vildi að öðru leyti ekki víkja að samtölunum við ráðherrana. Önnur samningalota í vændum  Vonir bundnar við að afstöðubreyting Breta í Icesave-deilunni skapi svigrúm fyrir frekari tilslakanir  Bretar eru taldir ráða för og hafa vilja til að ljúka málinu  Hollendingar segja um lokatilboð að ræða Meiri líkur en minni eru taldar á því að Bretar og Hollendingar fallist á að koma að samninga- borðinu á ný. Verði raunin önnur er talið að það yrði fyrir áhrif Hollendinga. Bretar vilji semja. Paul Myners Wouter Bos Steingrímur J. Sigfússon 80,1% aðspurðra er frekar eða mjög andvígt því að Jóhannes Jónsson, starfandi stjórnarformaður Haga, fái að kaupa allt að 10% hlut í Hög- um af Arion banka. Þetta kemur fram í nýrri könnun MMR. 59,1% sagðist mjög andvígt, 21% sagðist frekar andvíg, 12,9% frekar fylgjandi og 7% sögðust mjög fylgj- andi því að Jóhannes fengi að kaupa 10% hlut í Högum. 902 tóku þátt í könnuninni en um net- og síma- könnun var að ræða. Finnur Sveinbjörnsson, banka- stjóri Arion banka, sagði að miðað við umræðuna sem verið hefði um málefni Haga kæmi þessi nið- urstaða ekkert sérstaklega á óvart. Stjórn Kenn- arasambandsins hefur samþykkt ályktun þar sem lífeyrissjóðirnir eru hvattir til að fjárfesta ekki í fyrirtækjum sem eru í eigu eða und- ir stjórn aðila sem hafa valdið sjóð- unum alvarlegu fjárhagstjóni. Finn- ur var spurður hvort hann hefði áhyggjur af því að það gæti haft áhrif á það verð sem Arion banki fengi fyrir Haga ef lífeyrissjóðirnir sýndu fyrirtækinu engan áhuga. Finnur sagðist engu vilja svara um þetta, en benti á að Hagar yrðu ekki seldir á næstunni. Í yfirlýsingu sem Jóhannes sendi frá sér í gær segir: „Ég er þakk- látur fyrir þann stuðning, sem ég fæ úr öllum áttum frá fjölmörgum við- skiptavinum Haga, fólki sem kemur að máli við mig eða sendir mér línu. Ég mun halda áfram að vinna að hag fólks í landinu með lágu vöru- verði, hér eftir sem hingað til.“ 80% vilja ekki að Jóhannes í Bónus fái hlut í Högum  Niðurstaðan kemur bankastjóra Arion banka ekki á óvart Jóhannes Jónsson TRÚNAÐARRÁÐ Félags flug- umferðarstjóra ákvað í gærkvöldi að efna til at- kvæðagreiðslu um heimild til verkfalls til að fylgja eftir kjara- kröfum félagsins. Að sögn for- mannsins, Ottós Eiríkssonar, verður um leið kosið um alla tilhögun verkfallsins, þ.á m. hvenær það muni hefjast. Félags- menn eru 114, kosið verður á fé- lagsfundi og er búist við niðurstöðu í málinu á laugardag. | 16 Fara flugum- ferðarstjórar í verkfall? Flugturninn í Reykjavík. RÍKISSTOFNUNUM ber að fara eftir sömu sjónarmiðum við ráðn- ingar háskólanema í auglýst sum- arstörf á vegum stofnana og þegar um önnur auglýst störf er að ræða. Þetta er meginniðurstaða frum- kvæðisathugunar umboðsmanns Alþingis. Fellst umboðsmaður ekki á það sjónarmið tiltekinnar ríkis- stofnunar að leyfilegt sé að fara með umsóknir í gegnum „einfald- ara ráðningarferli“ hafi slík störf verið auglýst, þrátt fyrir undan- þágu um auglýsingaskyldu á störf- um til styttri tíma í senn. Athugasemd við sumarráðningar ERFIÐ færð var vegum á Vest- fjörðum og víða á Norðurlandi í gær- kvöldi. Veðurstofan gaf út storm- viðvörun í gær en búist var við hvössum vindhviðum norðvestantil á landinu og á sunnanverðu Snæfells- nesi. Færð á vegum var farin að spillast á Djúpvegi þegar leið á kvöldið, en ekki var vitað um óhöpp vegna veðurs eða færðar er blaðið fór í prentun. Stórhríð skall á í gærkvöldi í Ísa- fjarðardjúpi, á Steingrímsfjarð- arheiði og um Þröskulda. Ófært var um Vatnsfjarðarháls. Snjóþekja og skafrenningur var á Ströndum. Þæf- ingsfærð og skafrenningur var á milli Ísafjarðar og Súðavíkur, um Gemlufallsheiði og á Klettshálsi. Hálkublettir og skafrenningur var á öðrum leiðum í Barðastrandarsýslu. Á Norðurlandi vestra var snjóþekja, skafrenningur og snjókoma víðast hvar. Á Norðurlandi eystra var snjó- þekja, snjókoma eða skafrenningur á öllum leiðum í kringum Akureyri. Snjóþekja og éljagangur var í kring- um Húsavík, þungfært og éljagang- ur á Hólasandi. Stórhríð á vegum í Ísafjarðardjúpi Ófærð Búast má við að færð verði víða erfið á vegum á Vestfjörðum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.