Morgunblaðið - 24.02.2010, Side 4

Morgunblaðið - 24.02.2010, Side 4
4 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. FEBRÚAR 2010 Eftir Ómar Friðriksson omfr@mbl.is FORSVARSMENN lífeyrissjóða taka vel í ályktun stjórnar Kennara- sambands Íslands um fjárfestingar sjóðanna. Stjórn KÍ hefur skorað á lífeyrissjóði landsins að fjárfesta ekki í fyrirtækjum í eigu eða undir stjórn aðila sem áður hafa valdið sjóðunum alvarlegu fjárhagstjóni. Ályktun KÍ var m.a. beint til Landssamtaka lífeyrissjóða en stjórn samtakanna fundaði í gær og tók þessa ályktun KÍ til umræðu. Ákveðið var að halda sérstakan fund um þessi mál innan skamms. „Þetta er mjög brýnt mál og við munum ræða það nánar á næstunni,“ segir Arnar Sigurmundsson, for- maður landssamtakanna. Mikil um- ræða fer fram á vettvangi lífeyris- sjóða bæði um hvort lífeyrissjóðum sé stætt á því að fjárfesta í fyrirtækj- um þar sem svokallaðir útrásarvík- ingar koma enn við sögu og hins veg- ar og ekki síður um aðild sjóðanna að nauðasamningum vegna fyrirtækja sem komin eru í þrot með að mark- miði að endurheimta sem mest af því fé sem lífeyrissjóðir lögðu fram á sín- um tíma. Oftast í hópi minni kröfuhafa Arnar segir unnið að þessum mál- um á vettvangi samtakanna og gott sé að fá þessa ályktun KÍ inn í þá umræðu. Einstakir lífeyrissjóðir móta sér eigin fjárfestingarstefnu og verk- lagsreglur en sjóðirnir vinna þó einnig þétt saman. Arnar segir að rætt verði nánar á næstunni að hve miklu leyti sjóðirnir geta stuðst við sameiginlegar verklagsreglur um meginatriði slíkra reglna. Hann bendir á að þegar um nauðasamn- inga er að ræða séu það yfirleitt bankarnir sem ráði ferðinni, jafnvel erlendir bankar í einstaka tilvikum og lífeyrissjóðirnir tilheyri oftast hópi minni kröfuhafa. „Engu að síð- ur finnst okkur þetta vera mál þar sem við þurfum alltaf að horfa á hvernig staðið er að málum út frá siðferðislegu sjónarmiði,“ segir hann. Sextán lífeyrissjóðir standa að Framtakssjóði lífeyrissjóða sem hef- ur það hlutverk að fjárfesta í fyr- irtækjum og liggja nú fyrir drög að fjárfestingarstefnu sjóðsins. Fullyrt er að þar séu gerðar mjög ríkar kröf- ur um að siðferðis sé gætt við fjár- festingar. „Þetta er mjög brýnt“  Landssamtök lífeyrissjóða taka vel áskorun KÍ um að fjárfesta ekki í fyrirtækj- um í eigu og undir stjórn útrásarvíkinga  Fara ítarlega yfir verklagsreglur » KÍ skoraði á lífeyrissjóði að hafa varann á sér » Vísaði til ákvarðana Arion um Haga og Samskip » Framtakssjóður mótar sér fjárfestingarstefnu NÚ styttist óðum í það að landsmenn vakni í björtu. Þegar höfuðborgarbúar halda nú til vinnu er morgunbirta á austurhimninum og það er órækt vitni um að styttast fari í sumarið. Sól- arupprás í Reykjavík í gær var kl. 08:56 og sól- arlag kl. 18:27. Sólargangurinn lengist nú um 6,6 mínútur á dag og hækkun hádegissólar nemur tæplega 0,4° á dag, samkvæmt upplýsingum Þor- steins Sæmundssonar, stjörnufræðings hjá raun- vísindastofnun Háskóla Íslands. Í Almanaki HÍ má sjá að í Reykjavík er stysti sólargangur árs- ins 4 stundir og 9 mínútur en sá lengsti 21 stund og 10 mínútur. Í Grímsey er stysti sólargangur 2 stundir og 15 mínútur en á sumrin er þar sól á lofti í heilan mánuð án þess að setjast. STYTTIST Í AÐ LANDSMENN VAKNI Í BJÖRTU Morgunblaðið/Ernir Eftir Önnu Sigríði Einarsdóttur annaei@mbl.is ÞEIM brá efalítið í brún mörgum við- skiptavinum Eddu útgáfu er þeir fengu innheimtuviðvörun senda í pósti þrátt fyrir að telja sig standa að fullu í skilum. Mikið álag hefur enda verið á símalínum fyrirtækisins eftir að bréfið barst, en orsök innheimtuviðvörunar- innar skrifast á tæknileg mistök. Að sögn Jóns Axels Ólafssonar, eins eigenda Eddu útgáfu, sendi við- skiptabanki fyrirtækisins, MP banki, innheimtuviðvörunina út fyrir mistök. „Þetta er mjög bagalegt og við getum lítið gert nema leiðrétta þetta við okk- ar viðskiptavini sem við höfum átt í mjög góðu sambandi við.“ Hann segir einhverjar þúsundir viðskiptavina hafa fengið bréfið og eins og skilj- anlegt sé bregðist þeir misvel við bréfasendingunni. „Það er til fullt af heiðvirðu fólki sem ekki vill fá inn- heimtubréf og við skiljum það mjög vel. Þetta hefur valdið bæði ónæði og angist sem er óafsakanlegt.“ Fá senda afsökunarbeiðni „Þetta eru tæknileg mistök sem eiga sér stað og valda því að einhver hluti viðskiptavina Eddu fékk tilkynn- ingu um að hann væri í vanskilum með áskrift sína þrátt fyrir að vera það ekki,“ segir Lárus Sigurðsson, útibús- stjóri MP banka í Borgartúni. Ekki lá enn fyrir nákvæmlega hversu margir fengu bréfið sent, né heldur hvað olli sendingunni. „Við erum að vinna að því að greina þetta núna og það verður sent bréf á alla þá sem innheimtu- viðvörunina fengu þar sem við biðj- umst afsökunar á þeim óþægindum sem viðkomandi kann að hafa orðið fyrir og skýrum hvernig þetta gerð- ist.“ Mistök geti því miður alltaf orðið. „En auðvitað er alltaf reynt að lág- marka svona mistök.“ Innheimtuviðvörun send þúsundum áskrifenda Andrés Önd Er vinsæll hjá áskrif- endum Eddu en öndin hefði líklega sjálf reiðst innheimtuviðvöruninni. Bréfin send skuld- lausum fyrir tæknileg mistök ÁKÆRA á hend- ur hópi einstakl- inga sem réðst inn í Alþingis- húsið hinn 8. des- ember 2008 með- an á þingfundi stóð verður að öll- um líkindum gefin út í þessari viku, að sögn Láru V. Júlíusdóttur, setts ríkissaksóknara í málinu. Ann- ars strax eftir helgina. Lára segist vera að leggja loka- hönd á ákæruna og vill ekki upplýsa um efnisatriði hennar fyrr en sak- borningum verður birt ákæran. Því er enn á huldu hvort ákæruliðir verði þeir sömu og þegar síðast var ákært, 30. desember sl., og hvort fjöldi sak- borninga verður sá sami. Níu einstaklingar voru ákærðir fyrir brot gegn Alþingi, brot gegn valdstjórninni, almannafriði og alls- herjarreglu og húsbrot. Sé einstakl- ingur sakfelldur fyrir brot gegn Al- þingi skal hann sæta fangelsi ekki skemur en eitt ár. Málið var þingfest 21. janúar en ákæra afturkölluð þegar í ljós kom að þingvörður sem krafðist skaðabóta í málinu er hálfsystir eiginkonu ríkis- saksóknara. Taldi ríkissaksóknari sig því vanhæfan til meðferðar málsins. Dómsmálaráðherra setti Láru V. Júlíusdóttur ríkissaksóknara í málinu og hefur hún unnið að því undanfar- inn mánuð. andri@mbl.is Ákæra út- gefin á ný í vikunni Lára V. Júlíusdóttir Verður aftur ákært fyrir sömu brot? EFTIRLITSNEFND með fjár- málum sveitarfélaga hélt fund í gær en nefndin hefur að undanförnu fengið ýmis gögn frá nokkrum sveit- arfélögum, að sögn Jóhannesar Tómassonar, upplýsingafulltrúa samgönguráðuneytisins. Ekki tókst að ljúka fyllilega umfjöllun um öll gögnin sem kallað var eftir og verð- ur því aftur haldinn fundur í nefnd- inni á morgun, fimmtudag. Álftanes er eina sveitarfélag landsins sem er í gjörgæslu nefnd- arinnar en samið var um lausn á vanda Bolungarvíkur í fyrra. Að sögn Jóhannesar er talið að vel gangi að vinna úr málum Bolvíkinga. Athuga fleiri sveitarfélög www.noatun.is GRILLAÐUR KJÚKLINGUR KR./STK. 998 MEÐ HEIM HEITT Ódýrt, fljótlegt og gott!

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.