Morgunblaðið - 24.02.2010, Side 6

Morgunblaðið - 24.02.2010, Side 6
6 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. FEBRÚAR 2010 Eftir Andra Karl andri@mbl.is UTANRÍKISRÁÐHERRA fékk á Alþingi í gær tæki- færi til að svara fyrir minnisblað Steves Watsons, sendi- fulltrúa Bandaríkjanna hér á landi, sem lak til fjölmiðla í síðustu viku. Össur bað þingmenn að vara sig á því að taka of mikið mark á fundargerðum af þessu tagi, sem skrifuð væru upp einhliða eftir minni. Margt væri ekki rétt sem þar kæmi fram og hefði það komið fram í sam- ræðum við þá fulltrúa sem voru viðstaddir fundinn. Minnisblaðið var af fundi með fulltrúum utanríkisráðu- neytis frá því 12. janúar sl. og í því segir að rætt hafi verið um að Norðmenn tækju fjárhagslega ábyrgð á Icesave- skuldinni og myndu svo lána Íslendingum fyrir skuldinni, og einnig að ráðuneytisstjóri hafi greint frá því að Ísland stefndi allt eins í greiðsluþrot ef Icesave-málið yrði ekki leyst. Össur sagði á þingi í gær að ráðuneytisstjórinn hefði sagt það fráleitt að hann hefði lýst yfir greiðslufalli íslensku þjóðarinnnar. Hins vegar hefði verið farið yfir þau mál sem hæst bar í samfélaginu, m.a. bréfið sem sent var forseta fyrir ákvörðun hans um að synja Icesave- lögunum staðfestingar. Þar var minnst á hugsanlegt greiðslufall yrði samningurinn felldur í þjóðaratkvæða- greiðslu. Ekki náðist í Sam Watson í gær til að fá við- brögð við ummælum utanríkisráðherra á þingi. Túlkun sendifulltrúa Banda- ríkjanna einhliða og röng  Ekkert sagt á fundinum sem áður hafði ekki komið fram Stuðningur Íslands óbreyttur ÖSSUR Skarp- héðinsson utan- ríkisráðherra þakkaði á Alþingi í gær fyrir að tek- in væri upp um- ræða um stuðning Íslands við Fær- eyjar, þegar kem- ur að hugsanlegri aðildarumsókn þeirra að EFTA. Össur sagði alveg ljóst að allir þingmenn, sama í hvaða flokki, stæðu sameinaðir að baki Færeyingum og myndu taka á með þeim í hverju sem þeir vildu. Guðlaugur Þór Þórðarson, þing- maður Sjálfstæðisflokks, spurði út í málið og vísaði til fréttar Morgun- blaðsins í gær. Í henni segir að frá því að Ísland sótti um aðild að Evrópu- sambandinu hafi umræður um hugs- anlega aðild Færeyinga að EFTA verið lagðar til hliðar. Þórunn Sveinbjarnardóttir, þing- maður Samfylkingarinnar, tjáði sig einnig um málið og minnti á að Fær- eyjar hefðu ekki lagt inn formlega að- ildarumsókn. Einnig virtist sem þeir hefðu sjálfir lagt málið á ís, og það vegna þess að beðið væri eftir skýrslu þar sem gerð er úttekt á sambandi og samskiptum Færeyinga við EFTA og ESB. andri@mbl.is Össur Skarphéðinsson Þingmenn allir að baki Færeyingum FYRIRTÆKIN Hagkaup og Bónus auglýsa mun meira á sjónvarps- stöðvum 365 en á RÚV eða Skjá ein- um. Munurinn jókst á árunum 2008 og 2009. Á síðasta ári voru um 80% af öllum sjónvarpsauglýsingum sem fyrirtækin birtu birt á stöðvum 365. Aðeins 5-6% fóru til RÚV. Samantekt upp úr gögnum Capa- cent sýnir að árið 2005 fóru um 50% auglýsinga Bónuss og Hagkaupa til Stöðvar 2 og Stöðvar 2 sports. Um 24% fóru til RÚV og um 26% til Skjás 1. Á síðasta ári hafði þessi skipting breyst þannig að um 80% fóru til sjónvarpsstöðva 365, en að- eins um 5% fóru til RÚV og 14% til Skjás 1. Bónus og Hagkaup eru í eigu Haga, en eigendur fyrirtæk- isins hafa verið Jóhannes Jónsson og Jón Ásgeir Jóhannesson. Jón Ásgeir er langstærsti eigandi 365. Meira áhorf á RÚV en Stöð 2 Samkvæmt nýjustu áhorfstölum er hlutdeild RÚV í heildaráhorfi 48,3%, en áhorf á fjórar rásir 365, þ.e. Stöð 2, Stöð 2 extra, Stöð 2 sport og Stöð 2 sport 2 er samtals 34,2% (þar af 29,6% á Stöð 2). Á síðasta ári fóru 22-24% af sjón- varpsauglýsingum Hagkaups og Bónuss til Stöðvar 2 extra og 41-45% fóru til Stöðvar 2. Áhorf á Stöð 2 extra er 1,8% samkvæmt tölum frá Capacent. Tölur frá Capacent sýna einnig að stærstu fyrirtæki Haga auglýstu nær eingöngu í Fréttablaðinu á árinu 2009, þegar litið er til auglýs- inga í tveimur útbreiddustu dag- blöðum landsins. Heilsíðuauglýs- ingar Haga í Fréttablaðinu voru 1.131 talsins, en 49 í Morgunblaðinu. 96% auglýsinga Haga birtust því í Fréttablaðinu, en 4% í Morg- unblaðinu. Sambærilegt hlutfall fyr- ir 50 stærstu auglýsendurna var 62/ 38, Fréttablaðinu í vil, en inni í þeirri tölu eru fyrirtæki Haga. egol@mbl.is 80% auglýsinga fara til 365-miðla  Hagkaup og Bónus beina langmestu af sínu auglýsingafé til sjónvarpsstöðva í eigu 365  Aðeins um 5% fóru til RÚV *Samanlagðar sekúndur hjá Stöð 2, Stöð 2 extra, Stöð 2 sport og Stöð 2 sport 2 Hagkaup RÚV Skjáreinn Stöðvar 365* 2005 24,04% 25,36% 50,59% 2006 19,52% 14,45% 66,02% 2007 23,08% 27,8% 49,12% 2008 16,46% 35,03% 48,51% 2009 4,67% 14,33% 80,99% Bónus RÚV Skjáreinn Stöðvar 365* 2005 23,9% 26,83% 49,26% 2006 19,97% 27,79% 52,24% 2007 22,99% 28,24% 48,78% 2008 20,60% 27,21% 52,18% 2009 6,02% 13,93% 80,06% Auglýsingar í sjónvarpi Hlutfall af keyptum sekúndum í auglýsingatímum Á r Á r HJÓNUM sem pantað höfðu ferð til Tenerife í lok apríl hjá Úrval-Útsýn var nýlega tjáð að ferðin félli niður vegna ónógrar þátttöku. En þegar þau könnuðu málið í bókunarvél fé- lagins stóð eftir sem áður að ferðin væri uppseld. Fannst þeim að fyr- irtækið væri þannig að veita almenn- ingi villandi upplýsingar. Steinunn Tryggvadóttir, þjón- ustustjóri hjá Úrval-Útsýn, segir að skýringin sé að enn sé ekki búið að hringja í alla sem pantað höfðu ferð- ina og bjóða þeim annaðhvort endur- greiðslu eða aðra ferð. „Kerfið er þannig að ekki er hægt að breyta úr „uppseld“ í „felld niður“ fyrr en búið er að ná í alla,“ segir hún og bætti við að þannig væri þetta líka hjá öðrum ferðskrif- stofum. kjon@mbl.is Uppseldri ferð aflýst MYND sem tekin var úr gervihnetti í fyrradag sýnir Ís- land mjög skýrt. Snjór er yfir meginhluta landsins en snjólaust var víða á Suðurlandi og suðvesturhorninu. Veðurfræðingar spá því að það byrji að snjóa á þessu svæði í kvöld og jafnfallinn snjór geti orðið 10 til 20 sm á morgun. Samkvæmt athugunum var tiltölulega hvasst í Vestmannaeyjum en á sama tíma var nánast logn á Steinum undir Eyjafjöllum. Sandfok var frá Landeyjum og út í eyjar og einnig á söndunum milli Skaftafells og Mýrdalsjökuls, eins og myndin sýnir. Gervihnattamynd/Bandaríska geimvísindastofnunin SNJÓR GÆTI LAGST YFIR SUÐURLAND Ögmundur Jónasson, þingmaður Vinstri grænna, kom starfsmönnum utanríkisráðuneytis til varnar við sömu umræðu á Alþingi í gær. Sagðist hann ekki þekkja Sam Watson, sendirráðsritara, og væri hann eflaust ágætur maður en fengi varla Nóbelsverð- launin í sagnfræði. „Þeir véfengja hans vitnisburð og ég ætla að láta starfsmenn íslenska utanríkisráðuneytisins og sendirherrann [íslenska í Bandaríkjunum] njóta vaf- ans. Og ég vil þakka utanríkisráðherra fyrir að taka upp hanskann fyrir þá,“ sagði Ögmundur og tóku fleiri þingmenn undir. Fær ekki Nóbelinn í sagnfræði BROTIST var inn í vinnubúðir við Herdísarvík í fyrrinótt sem eru á veg- um verktaka við Suðurstrandarveg. Úr vinnubúðunum var stolið mörgum tækjum svo sem stórri uppþvottavél, þremur frystikistum, tveimur þvotta- vélum, tveimur þurrkurum, gaseldavél, gufuofni, iðnaðarhrærivél, örbylgju- ofni, flatskjá og fjöldanum öllum af pottum, pönnum og ýmsum bús- áhöldum og iðnaðarvélum. Í þetta verk hefur þurft stóran vöruflutningabíl. Lögreglan biður þá sem veitt geta upp- lýsingar um þjófnaðinn í síma 480 1010. Miklu stolið úr vinnubúðum ódýrt & gott! Núðlur með kjúkling og chinese wo k með grísa kjöti898kr.kg

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.