Morgunblaðið - 24.02.2010, Síða 10
10 Fréttir
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. FEBRÚAR 2010
Sigurgeir Sindri Sigurgeirsson,varaþingmaður Framsókn-
arflokksins, spurði Össur Skarphéð-
insson utanríkisráðherra á Alþingi
út í umsóknina um aðild að ESB.
Spurningin var borin fram í tilefniþess að varaforseti Evrópu-
þingsins sagði Íslendinga ekki mega
líta á inngöngu í ESB eða evru sem
skyndilausn á efnahagsvanda. Önn-
ur ástæða var nýlegar kannanir sem
sýna lítinn stuðning við aðild.
Sigurgeir nefndi einnig minnkandistuðning innan Alþingis og
minnti á nýleg orð Ögmundar Jón-
assonar um að hann hefði aldrei ver-
ið andvígari aðild en einmitt nú.
Lítið gagn var í svörum Össurar,sem sagði m.a. að ef Alþingi end-
urskoðaði afstöðu sína um að sækja
um aðild „hefur það ákveðnar afleið-
ingar eins og hv. þingmaður hlýtur
að skilja“. Össur útskýrði þessar af-
leiðingar ekki frekar.
Þó að Össur láti þannig að þvíliggja að stórhættulegt væri að
hætta við umsókn þá er það vita-
skuld ekki svo. Það hefur engar nei-
kvæðar afleiðingar að láta ESB vita
af því að hér sé ekki áhugi á aðild.
Jákvæðu afleiðingarnar eru hinsvegar töluverðar. Beinn fjárhags-
legur sparnaður er heilmikill. Enn
meiri sparnaður væri þó fólginn í því
að þá gætu íslenskir ráðherrar farið
að einbeita sér að hagsmunum Ís-
lands í stað þess að vera sífellt með
hugann við Brussel.
Sigurgeir Sindri
Sigurgeirsson
„… ákveðnar afleiðingar …“
Össur
Skarphéðinsson
Byggt á upplýsingum frá Veðurstofu Íslands
Veður víða um heim kl. 18.00 í gær að ísl. tíma °C Veður
Reykjavík -3 léttskýjað Lúxemborg 9 skúrir Algarve 19 léttskýjað
Bolungarvík -6 snjókoma Brussel 3 þoka Madríd 8 skúrir
Akureyri -5 skýjað Dublin 1 slydda Barcelona 17 léttskýjað
Egilsstaðir -12 þoka Glasgow 3 léttskýjað Mallorca 17 léttskýjað
Kirkjubæjarkl. -3 heiðskírt London 2 skúrir Róm 16 léttskýjað
Nuuk -2 heiðskírt París 12 skýjað Aþena 16 léttskýjað
Þórshöfn -1 heiðskírt Amsterdam 3 léttskýjað Winnipeg -24 heiðskírt
Ósló -12 snjókoma Hamborg 0 skýjað Montreal 1 snjókoma
Kaupmannahöfn -3 alskýjað Berlín 2 skýjað New York 2 skúrir
Stokkhólmur -9 heiðskírt Vín 6 skýjað Chicago -1 alskýjað
Helsinki -7 snjókoma Moskva -5 léttskýjað Orlando 19 alskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://morgunbladid.blog.is/
HALLDÓR STAKSTEINAR
VEÐUR
24. febrúar Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 2.02 3,0 8.38 1,4 14.47 2,8 21.05 1,3 8:53 18:30
ÍSAFJÖRÐUR 4.06 1,7 10.52 0,7 16.54 1,5 23.08 0,6 9:05 18:28
SIGLUFJÖRÐUR 6.07 1,1 12.54 0,4 19.32 1,1 8:48 18:11
DJÚPIVOGUR 5.28 0,8 11.29 1,3 17.45 0,6 8:24 17:58
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið
Á fimmtudag
Austan og norðaustan 10-15
m/s og sums staðar hvassari
syðst á landinu. Víða snjókoma,
en hægari vindur og dálítil él
norðaustantil. Frost 3 til 15 stig,
minnst syðst.
Á föstudag
Norðaustanátt með snjókomu,
en úrkomulítið á Vesturlandi.
Dregur úr frosti.
Á laugardag og sunnudag
Austlæg átt og ofankoma með
köflum víða um land. Frost 0 til
8 stig, minnst við suðurströnd-
ina.
Á mánudag
Útlit fyrir suðaustlæga átt og
úrkomulítið, en líkur á slyddu
og hlýnandi sunnanlands.
VEÐRIÐ NÆSTU DAGA
SPÁ KL. 12.00 Í DAG
Norðaustan 5-13 m/s en all-
hvasst NV-lands. Áfram of-
ankoma á norðanverðu landinu
og einnig sums staðar sunn-
anlands þegar líður á daginn.
Frost 2 til 14 stig, mest inn til
landsins.
Eftir Ágúst Inga Jónsson
aij@mbl.is
FULLTRÚAR frá Íslandi sækja
fund um heildarstjórnun makríl-
veiða í Álasundi í Noregi um miðjan
næsta mánuð. Hrefna M. Karls-
dóttir, deildarsérfræðingur á Al-
þjóðaskrifstofu sjávarútvegsráðu-
neytisins, segir Íslendinga sækja
þennan fund sem fullgilt strandríki
hvað varðar makrílveiðar.
Í lok nóvember slitnaði upp úr við-
ræðum Noregs, Evrópusambands-
ins og Færeyja um stjórnun makríl-
veiða í ár. Norðmenn og ESB deildu
þá um heimild Norðmanna til veiða á
makríl í lögsögu ESB. Tvíhliða sam-
komulag náðist síðan milli Norð-
manna og ESB í lok janúar um veiði-
heimildir. Færeyingar vildu fá
aukna hlutdeild í makrílkvótanum.
Í frétt frá sjávarútvegsráðuneyt-
inu í byrjun desember kemur fram
að á fundinum í næsta mánuði verði
m.a. rætt um aflahámark, skiptingu
afla milli aðila, aðgang að lögsögu,
vísindasamstarf og eftirlit með veið-
um. Ráðherra hefur ákveðið að ís-
lenskum skipum verði í ár heimilað
að veiða 130 þúsund lestir af makríl í
ár, en var í fyrra rúmlega 116 þús-
und lestir.
Í dag verður haldin opin málstofa
á vegum sjávarútvegs- og landbún-
aðarráðuneytisins um veiðar og
vinnslu á makríl.
Ræða stjórn makrílveiða í næsta mánuði
Norðmenn og ESB hafa náð tvíhliða
samkomulagi um veiðiheimildir
Verðmæti Í fyrra veiddust rúmlega
116 þúsund lestir af makríl.
VINNUHÓPUR sem sjávarútvegs-
og landbúnaðarráðherra skipaði í
ágúst í fyrra um makrílveiðar og
vinnslu hefur skilað af sér. Í nið-
urstöðum kemur fram að reynslan af
því fyrirkomulagi sem viðhaft var
við makrílveiðar í fyrra var ekki góð
og fullyrt að veruleg verðmæti hafi
farið í súginn. Því skipti öllu máli að
betur takist til í framtíðinni og að
skipulag og fyrirkomulag veiðanna
verði með öðrum og betri hætti.
Sem flestir geti veitt
Í greinargerð vinnuhópsins segir:
að til að hámarka verðmæti þessarar
auðlindar sé nauðsynlegt að útgerðir
viti hve mikið magn af makríl þær
hafi til ráðstöfunar þannig að unnt
sé að skipuleggja veiðar og vinnslu
sem best. Það sé einnig mikilvægt
við skipulagningu á veiðum og
vinnslu á norsk-íslenskri síld. Bent
er á að því fyrr sem fyrirkomulag
veiðistjórnunar næsta veiðitímabils
liggur fyrir þeim mun betur geta út-
gerðir og vinnslur skipulagt starf-
semi sína þannig að sem mest verð-
mæti fáist við veiðar og vinnslu á
makríl.
Starfshópurinn telur að tryggja
beri möguleika sem flestra til að
taka þátt í veiðunum með sem fjöl-
breyttustum hætti og að hluta leyfi-
legs aflamagns verði ráðstafað í
þeim tilgangi.
Formaður vinnuhópsins var
Steinar Ingi Matthíasson, sjávar-
útvegsráðuneytinu, og aðrir í hópn-
um voru Friðrik J. Arngrímsson,
LÍÚ, Sigurjón Arason, MATÍS,
Sveinn Sveinbjörnsson, Hafrann-
sóknastofnun, og Þórhallur Ottesen,
Fiskistofu. aij@mbl.is
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Makríll Vilja betra veiðiskipulag.
Veruleg verð-
mæti í súginn
Skipulag og fyrirkomulag makrílveiða
þarf að verða með öðrum og betri hætti