Morgunblaðið - 24.02.2010, Page 15
Eftir Kristínu Heiðu Kristinsdóttur
khk@mbl.is
Þ
að eru engin geimvísindi að búa til
feit smyrsl. Ég býð fólki upp á
námskeið þar sem ég kenni hvern-
ig það getur sjálft búið til sín eigin
smyrsl úr jurtum og það hefur
vakið mikla lukku,“ segir Anna Rósa Róberts-
dóttir grasalæknir sem undir lok síðasta árs
setti á markað nýja vörulínu þar sem finna má
krem, smyrsl og tinktúrur. Hún þvertekur fyr-
ir að það vinni gegn henni að kenna fólki að búa
til jurtasmyrsl þó að hún selji sjálf slík smyrsl.
„Ég kenni fólki einföldu útgáfuna að smyrsl-
uppskriftinni, sú sem ég nota í Önnu Rósu-
smyrslin er að sjálfsögðu miklu flóknari. Að
kenna fólki að búa til smyrsl úr jurtum vinnur
aldrei gegn mér, vegna þess að fólk kann að
meta þetta og það er ákveðin kynning á þeim
vörum sem ég er með á markaði. Það er mun
flóknara að búa til hvít krem og ég kenni það
ekki,“ segir Anna Rósa sem býður upp á hin
ýmsu námskeið en hún var nýlega með hundr-
að manna námskeið hjá Endurmenntun þar
sem hún kenndi fólki hvar og hvernig það get-
ur tínt algengustu jurtirnar.
Kreppan kallar á ódýrari vöru
„Ég fór meðal annars út í framleiðslu á þess-
ari vörulínu vegna þess að mér fannst vanta
hvít íslensk lífræn krem sem almenningur
hefði efni á. Fólk vill ekki þurfa að borga sjö til
tíu þúsund fyrir krukku af andlistkremi, það er
bara allt of mikið. Mér finnst það skipta öllu
máli núna í kreppunni og mér tekst að halda
verðinu niðri með því að gera þetta allt sjálf,“
segir Anna Rósa sem er mikill vinnuþjarkur og
hún neitar því ekki að það sé þó nokkuð starf
að sjá um alla þætti fyrirtækisins sjálf, hvort
sem það er bókhald, framleiðsla, markaðs-
setning, pökkun, námskeiðahald eða annað.
„En það vill svo til að ég er óhemju skipulögð,
annars væri þetta ekki hægt,“ segir Anna Rósa
og hlær að öllu saman.
Ætlar að rækta sjálf
„Ég vil sjá sjálf um framleiðsluna frá grunni,
þannig er ég með gæðin alveg á hreinu og veit
hvað ég er að gera. Mér finnst líka rosalega
gaman að standa í þessu, veit fátt skemmti-
legra en tína grös og ekki er síður gaman að
hræra í tveimur risastórum pottum í einu þeg-
ar heim er komið.“ Hún segir það koma sér vel
að vera með menntun á tveimur ólíkum sviðum
en hún lauk fjögurra ára háskólanámi í grasa-
lækningum árið 1992 í Bretlandi og starfaði
hér heima til nokkurra ára sem grasalæknir.
ana fyrir mig, af því að ég hef ekki tíma til þess
sjálf.“ Önnu Rósu finnst skipta miklu máli að
hafa gagnsæi og því er hægt að finna á heima-
síðu hennar allar upplýsingar um vörurnar og
þar er hægt að lesa sér til um öll þau efni sem
eru í vörunum. Eins eru þar almennar upplýs-
ingar um lækningajurtir, grasalækningar og
fleira. „Ég er með 9.000 manns á Facebook og
inni á þeim vef er ég með ráðgjöf á kvöldin. Svo
er ég líka með stofu í Heilsuhvoli þar sem ég
fæ til mín fólk einu sinni í viku í viðtöl, sem er
að leita ráða vegna ýmissa kvilla.“
Gaman að hræra í jurtapottum
Hún segir Ísland vera gósenland
þegar kemur að jurtum og veit
fátt skemmtilegra en að tína
blómstur og grös á sumrin til að
nota í kremin sín og tinkt-
úrurnar.
Morgunblaðið/Ernir
Fullar hendur jurta Anna Rósa kát í vinnu sinni með þurrkuð fjallagrös, morgunfrú og kamillu.
Seinna lauk hún BS-gráðu í viðskiptafræðum
og tók sér þá fimm ára pásu frá grösunum og
vann sem viðskiptafræðingur. Fyrir um ári
sneri hún sér aftur að jurtunum.
Innan vörulínu Önnu Rósu eru svokallaðar
tinktúrur en það eru jurtablöndur sem taldar
eru góðar við ýmsum kvillum eins og kvefi og
flensum, exemi og ýmsu fleiru. „Þær eru búnar
þannig til að ákveðnar jurtir eru lagðar í vín-
anda og þá fara virku efnin yfir í vínandann.
Mín sérstaða í tinktúrunum er sú að ég geri
þær úr ferskum jurtum. Ég tíní allar jurtir
sjálf hér heima og legg þær í vínanda sama dag
og ég tíni þær,“ segir Anna Rósa og bætir við
að Ísland sé mikið gósenland þegar kemur að
jurtum. „En það eru ekki einvörðungu íslensk-
ar jurtir í vörunum mínum, vegna þess að sum-
ar vaxa alls ekki hér. Til dæmis þarf ég að
flytja inn kamillu og sólhatt en ég stefni á að
rækta hvort tveggja sjálf.“
Núna vill fólk styðja íslenskt
Anna Rósa hefur fengið mjög góðar við-
tökur, vörurnar hennar eru komnar á 25 út-
sölustaði bæði í bænum og úti á landi. „Það
virðist vera meiri áhugi hjá Íslendingum núna
en áður að kaupa íslenskar vörur og styðja sitt
heimafólk. Ég hef til dæmis átt einstaklega
skemmtilegt samstarf við Bókabúðina Eskju á
Eskifirði sem selur vörurnar mínar en starfs-
fólkið þar hefur verið mjög áhugasamt og þau
hafa séð um að flytja þetta út fyrir landstein-
annarosa@annarosa.is facebook: Anna Rósa
grasalæknir www.annarosa.is
Daglegt líf 15
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. FEBRÚAR 2010
Sólhattur og hvönn – Taldar góðar gegn
hálsbólgu, kvefi og flensu.
Maríustakkur og melissa – Taldar góðar
fyrir breytingaskeiðið.
Hvönn og klóelfting – Taldar góðar fyrir
blöðruhálskirtil.
Fíflablöð og birki – Talin vatnslosandi.
Rauðsmári og gulmaðra – Taldar góðar
fyrir exem og sóríasis.
Fjallagrös og fíflarót – Talin hreinsa
meltingu.
Morgunblaðið/Ernir
Tinktúrurnar
Vörulína Önnu Rósu inniheldur 14 vöruteg-
undir:
Snyrtivörulína (dagkrem, 24 stunda
krem, handáburður, fótakrem, græði-
krem fyrir exem og sóríasis)
Smyrsli (feitt sárasmyrsl, barnasmyrsl
og mæðrasmyrsl (vegna slits á maga)
Tinktúrur
Morgunblaðið/Ernir
Krem, smyrsl
og jurtablöndur
KEÐJUDEIG, sambærilegt við
keðjubréf – hljómar undarlega en
er engu að síður til á eldhúsbekkj-
um fjölda landsmanna um þessar
mundir. Undanfarnar vikur hafa
margir tekið við súrdeigi sem gjöf
frá vinum og vandamönnum. Hér
er á ferðinni hann Hermann sem
að ákveðnum tíma liðnum er bak-
aður og verður að úrvalsköku.
Keðjan er þannig að þú færð
deig að gjöf. Þú sinnir því í tíu
daga, flesta daga þarf aðeins að
hræra í því en þegar Hermann
svengir fær hann mjólk, hveiti og
sykur að „borða“. Á tíunda degi er
deiginu skipt í fimm hluta. Einum
er haldið eftir en fjórir eru boðnir
vinum og vandamönnum að gjöf og
þar með eru þeir orðnir hlekkir í
keðjunni. Deiginu fylgja leiðbein-
ingar um aðhlynningu og upp-
skrift.
Úr þeim hluta sem eftir er hald-
ið er kakan bökuð. Út í súrdegið er
bætt hráefnum á borð við epli,
kanil og suðusúkkulaði en mörg af-
brigði eru til af Hermanni.
Hermann vinsæll víða
Hermann, sem þýðir flakkari, á
sér langa sögu og þekkist víða um
heiminn. Uppruni hans er nokkuð
óljós en þó er líklegt að hug-
myndin sé komin frá Amish-
samfélaginu í Bandaríkjunum. Þar
hefur í áratugi tíðkast að gera vin-
áttubrauð og útdeila því meðal
sjúkra og aldraðra.
Uppskrift að kanilbrauði eða
kanilköku, sem kennd er við Am-
ish-samfélagið, hefur verið þekkt
sem keðjubréf á netinu frá því um
1990 þó að uppskriftin sé mun
eldri.
Hermann hefur t.d. notið mikilla
vinsælda í Noregi og Bandaríkj-
unum og margar uppskriftir eru
aðgengilegar á netinu til að krydda
Hermann. Hann gengur ýmist
undir enska heitinu „Herman Cof-
fee Cake“ eða „Amish Friendship
Cake“.
Hér fylgir ein:
Vináttukakan Hermann
5 dl af súrdeiginu Hermanni
2,5 dl sykur
2 stór egg
1½ dl matarolía
2 tsk. lyftiduft
½ tsk. natron
½ tsk. múskat
½ tsk. kanill
5 dl hveiti
2 dl heslihnetur
2 dl rúsínur
púðursykur saman í litlum potti.
Hrærðu hveitið, kanilinn og
hökkuðum hnetum saman við.
Dreifðu bræðingnum svo jafnt
yfir Hermann í bökunarform-
inu.
Bakaðu kökuna, með bræð-
ingnum, neðst í ofni við 180°C
hita í u.þ.b. 40 mín.
Krem/glassúr
75 g smjör
2 dl púðursykur
½ dl mjólk
Bræddu smjör í potti saman
við mjólk og púðursykur.
Hrærðu allan tímann. Helltu
kreminu strax yfir Hermann er
hann kemur úr ofninum. Láttu
kökuna standa í forminu þar til
hún kólnar. Verði þér að góðu!
Blandaðu sykri, eggjum (laus-
lega þeyttum) og matarolíu sam-
an við Hermann. Hærðu vel.
Bættu þurrefnunum út í og
hrærðu þar til deigið verður
jafnt. Blandaðu hökkuðum hesli-
hnetum og rúsínum með 2 mat-
skeiðum af hveiti saman við.
Settu Hermann í bökunarform.
Bræðingur
100 g smjör
2 dl púð-
ursykur
1 msk. hveiti
2 tsk. kanill
1½ dl
heslihnetur
Bræddu
smjör og
Vináttukakan Hermann flakkar manna á milli
Vináttukaka Hermann í sparifötunum.