Morgunblaðið - 24.02.2010, Page 16

Morgunblaðið - 24.02.2010, Page 16
16 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. FEBRÚAR 2010 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ Forsvars-mennBaugs Group og tengdra félaga voru árið 2006 ósáttir við fjárfesting- arstefnu lífeyrissjóðanna og töldu þá ekki nægilega auð- sveipa sér. Þetta varð til þess að þeir höfðu í hótunum um að stofna eigin lífeyrissjóð fyrir starfsmenn fyrirtækja sinna. Andstaða var við þetta innan lífeyrissjóðanna, en hefði þetta tekist þarf ekki að velta fyrir sér afleiðingunum fyrir starfsmenn fyrirtækjanna. Lífeyrissjóðirnir fjárfestu engu að síður í þessum fyrir- tækjum og töpuðu miklu þó að áfallið hefði orðið mun meira ef fjárfestingarstefnan hefði verið sniðin að hags- munum þessarar viðskipta- blokkar. Sjóðirnir standa nú aftur frammi fyrir ákvörðunum um fjárfestingar í félögum undir stjórn þessara sömu manna. Arion banki hefur til að mynda stillt málum þannig upp hvað snertir Haga, að einn af forsvarsmönnum Baugs, Jóhannes Jónsson, fái sérstakan rétt til að kaupa 10% í félaginu og stjórnendur fái önnur 5%. Ekki þarf að undra að and- staða skuli þegar hafa skap- ast innan raða lífeyrissjóð- anna við að taka þátt í þessu. Kennarasamband Íslands hefur til að mynda hvatt líf- eyrissjóði „til þess að fjár- festa ekki í fyrirtækjum sem eru í eigu eða undir stjórn að- ila sem áður hafa valdið sjóð- unum alvarlegu fjárhags- tjóni“ og vísar sérstaklega til Haga og Arion banka í þessu sambandi. Lífeyrissjóð- irnir eru ekki ein- ir um að hafa efa- semdir um þá leið sem Arion banki hefur kosið að fara. Í nýrri könnun Mark- aðs- og miðlarannsókna, MMR, kemur fram að 80% landsmanna eru andvíg því að Jóhannes Jónsson fái þann forkaupsrétt sem Arion banki hyggst bjóða honum. Engu skiptir hvort horft er á könn- unina eftir kyni, búsetu, aldri eða tekjum, alger samstaða er um það meðal almennings að sú leið sem Arion banki hefur valið sé röng. Þetta er staðfesting á fyrri könnun sem gerð var í desem- ber sl. þar sem 96% töldu ekki réttlætanlegt að samið yrði við fyrri eigendur Haga ef það fæli í sér afskriftir skulda. Í nýju könnuninni var ekki spurt út í afstöðu fólks með hliðsjón af afskriftum skulda, en ætla má að and- staðan hefði orðið enn meiri ef svo hefði verið. Lífeyrissjóðirnir eiga að fara að ráðum Kennarasam- bands Íslands og læra af reynslunni. Þeir hafa tapað gríðarlegum fjármunum á fjárfestingum í félögum undir stjórn tiltekinna manna, sem fóru vægast sagt afar ógæti- lega. Nú hlýtur að vera komið að því að lífeyrissjóðirnir sýni meiri varúð en áður. Í raun sætir furðu að það skuli yf- irleitt koma til álita að stjórn- ir lífeyrissjóðanna haldi áfram að setja fjármuni sjóðs- félaga sinna í hendur þessara sömu manna. Lífeyrissjóðirnir ættu að fara að ráð- um kennara og læra af reynslunni } Lífeyrissjóðirnir þurfa að sýna aukna varúð Heimsbyggðinbrást vel við hryllingnum sem reið yfir Haítí hinn 12. janúar síðastliðinn. Mik- ið hjálparlið var sent á stað- inn og hjálpargögn streymdu inn. Engu að síður er ástandið enn skelfilegt og gæti átt eftir að versna á næstunni. Friðbjörn Sigurðsson læknir er nýkominn frá Haítí þar sem hann hefur starfað við hjálparstarf í um mánuð. Í viðtali við Morgunblaðið í gær lýsti Friðbjörn ástand- inu, hve þörfin er mikil, hve þakklátir íbúarnir eru og hve útlitið er dökkt. Hann bendir á að hamfarirnar á Haítí séu eins- dæmi að því leyti að allir innviðir landsins hafi hrunið til grunna og þar séu því engar inn- lendar stofnanir sem geti tekið á vandamálunum. Nú fer regntímabilið í hönd á Haítí og af því hefur Friðbjörn miklar áhyggjur. „Þegar regntíminn byrjar fyrir alvöru verða vanda- málin gríðarleg,“ segir hann. Orð íslenska læknisins eru þörf áminning um að vandi Haítíbúa er ekki að baki. Þeir þurfa á því að halda að sú hjálp sem Íslendingar hafa veitt berist þeim áfram. Hjálparstarf Íslend- inga gagnvart Haítí þarf að halda áfram} Gleymum ekki Haítíbúum É g er svo heppin að vera umkringd útlendingum þar sem ég bý, því beggja vegna við heimili mitt eru hótel sem á veturna eru einnig nýtt sem íbúðir fyrir erlenda há- skólastúdenta. Í nánd við fólk sem er á ferðalagi er alltaf einhver skemmtileg spenna í andrúms- loftinu sem einkennist af forvitni, áhuga fyrir umhverfinu og hreinni lífsgleði. Utan við heimili mitt rekst ég daglega á hóp spenntra útlendinga sem stara opinmynntir á risastóra fjallajeppann sem er kominn að sækja þá og flytja þá upp á fjöll. Mér finnst alltaf gam- an að ganga hjá og skynja spenninginn í fasi þeirra og eftirvæntinguna eftir að upplifa eitt- hvað nýtt. Það gleður mig að vera á hverjum degi umkringd fólki sem finnst mitt nánasta um- hverfi spennandi og þess virði að taka myndir af. Þannig verður það aldrei hversdagsleikanum að bráð í mín- um augum heldur. Stundum sé ég túrista taka myndir af furðulegustu hlut- um sem mér hefðu aldrei dottið í hug að líta tvisvar á, en það fær mig til að staldra við og minnir mig á að ég hef sjálf fengið skrýtnar augngotur frá heimamönnum í fjarlægum löndum þar sem ég hef gleymt mér við að taka myndir af fyndnum skiltum, skrýtnum farartækjum og fallegum trjám. Oft er sagt að gestsaugað sé glöggt og það upplifi ég reglulega í götunni minni. Um daginn var ég t.d. að koma úr bíó með vinkonum mínum þegar við tókum eftir trylltum norðurljósadansi á himninum. Það er óvenjulegt að sjá svo skýr og falleg norðurljós í miðri mengun borg- arljósanna. Ég yppti samt sem áður öxlum og dreif mig heim að sofa. Í götunni minni gekk ég hinsvegar í flasið á hóp erlendra stúdenta sem stóð á náttbuxunum í dúnúlpum og störðu upp í himininn með myndavélarnar á lofti. Á svölum hótelíbúðanna fyrir ofan húsið mitt stóð líka hópur útlendinga sem kæfði aðdáunaróp yfir hverju dansspori norðurljósanna. Ég hálfskammaðist mín að vera svona skeytingarlaus um það sem öllu þessu fólki fannst greinilega stórkostleg sjón, svo ég gekk inn á nærliggjandi róló og horfði á norðurljósin eins og ég væri að sjá þau í fyrsta skipti. Hugurinn hvarflaði aftur til erfiðs ferðalags í næturrútu í Kína. Þar lá ég klukkutimum sam- an í loftlausu rými á svo þröngu fleti að liggjandi á bakinu gat ég ekki haft handleggina niður með síðunum. Ég hugsaði með mér að þessi nótt virtist ætla að verða endalaus þegar ég klöngraðist út á miðri leið til að aðstoða ferðafélaga minn sem var með magakveisu í vegkantinum. Þá varð mér það á að líta upp til stjörnubjartasta himins ævi minnar yfir kínverskri hásléttu og missti andann um stund. Sömu hughrifum hef ég fundið fyrir í botni Hjaltadals þar sem myrkrið verður ansi svart, undir Jarlhettum, á Þing- völlum og stjörnubjartri Mosfellsheiðinni og nú síðast heima í götunni minni. Það getur þurft augu gestsins til að leiða manni í ljós að oft er nóg að líta aðeins upp til að heim- urinn skipti um svip. una@mbl.is Una Sighvatsdóttir Pistill Með stjörnur í augum STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjórar: Davíð Oddsson Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Útgefandi: Óskar Magnússon FRÉTTASKÝRING Eftir Rúnar Pálmason runarp@mbl.is D eiluaðilar gefa ekki upp kröfur sínar eða mót- tilboð. Ástæðan er sú að þar sem deilan er hjá ríkissáttasemjara ríkir trúnaður um þær upplýsingar. Það er þó hægt að geta örlítið í eyðurnar með því að lesa í það sem forsvarsmenn flugumferðastjóra og formaður samn- inganefndar SA gátu þó sagt, í sam- tölum við Morgunblaðið. Flugumferðarstjórar benda m.a. á að um tugur félagsmanna þeirra hefur farið til starfa í útlöndum og að í heim- inum sé skortur á flugumferð- arstjórum. Af hálfu SA er bent á að gerð sé krafa um að félög í opinberri eigu spari fjármuni. Deilan virðist í hnút og leysist hún ekki kemur til ann- ars verkfalls flugumferðarstjóra á inn- an við tveimur árum. Hógværar kröfur Ottó Einarsson, formaður Félags ís- lenskra flugumferðarstjóra (FÍF), sagði að launakröfurnar væru hógvær- ar. Deilan snerist að mestu um ákveðnar skipulagsbreytingar, s.s. breytingar á yfirvinnugreiðslum. Að- spurður játti Ottó því að viðsemjendur hefðu bent á að ástandið í efnahags- málum væri með þeim hætti að nú væri ekki rétti tíminn til að sækja launa- hækkanir. Þetta væri þó yfirleitt við- kvæðið í öllum samningum. Ottó benti á að tekjur ríkisins af flug- umferð kæmu að mestu frá erlendum aðilum. „Við erum eins og fiskurinn í sjónum. Tekjurnar koma frá útlöndum og launahækkun kostar ríkið ekki neitt,“ sagði hann. Formaður samninganefndar flug- umferðarstjóra er Loftur Jóhannsson, sem var formaður félagsins um árabil. Líkt og Ottó þá benti Loftur á að tekj- urnar sem ríkið fengi af störfum flug- umferðarstjóra kæmu að mestu frá útlöndum. Frá því gjaldmiðilinn hrundi hefðu tekjur Flugstoða og Keflavíkurflugvallar, reiknaðar í er- lendum gjaldeyri, dregist mjög sam- an. Í þessu fælist í raun afsláttur til flugfélaga. „Það datt engum í hug að lækka verðið á fisknum eða álinu þó að kostnaður hér á landi hefði lækk- að,“ sagði hann. Rukka fyrir kostnaði Málið er þó ekki endilega svo ein- falt að hægt sé að hækka laun flug- umferðarstjóra og rukka síðan meira fyrir flug um íslenska flugstjórn- arsvæðið. Ásgeir Pálsson, framkvæmdastjóri flugumferðarsviðs Flugstoða, benti á að samkvæmt samningi um al- þjóðlega flugleiðsögu gætu Íslend- ingar aðeins rukkað fyrir þann kostn- að sem félli til vegna flugs um íslenska svæðið. Ríkisendurskoðun og alþjóð- legir endurskoðendur færu yfir reikn- ingana og hefðu gjöld verið innheimt umfram kostnað yrðu gjöld lækkuð á móti síðar. Jafnvel þótt sá kostnaður sem hlytist af kauphækkun flug- umferðarstjóra fengist samþykktur fyrir alþjóða flugþjónustuna, yrði að líta til þess að um helmingur flug- umferðarstjóra starfaði við innan- landsflug eða við flugturna. Stór hluti af þeim kostnaði væri greiddur beint úr ríkissjóð og af flugfélögum sem fljúgja um íslenska flugvelli. Ókyrrð í lofti vegna deilu um launakjör Morgunblaðið/RAX Hnútur Flugumferðarstjórar sömdu síðast um kjör sín í júní 2008. Þá nam launahækkunin um 11%. Aftur er deilt um launakjörin og stefnir í verkfall. Mikið ber á milli í kjaradeilu flug- umferðarstjóra við Samtök at- vinnulífsins sem fara með samn- ingsumboð fyrir opinberu hlutfélögin Flugstoðir og Kefla- víkurflugvöll. Kjaradeilur hafa verið tíðar í flugheiminum undanfarið og samið hefur verið til skamms tíma í senn. Oft hefur verið boð- að til verkfalla sem oft er frest- að - þó ekki alltaf.  Verkfall flugvirkja hjá Ice- landair hófst á miðnætti sl. sunnudag og stóð fram til átta á mánudagsmorgun.  Í lok janúar sl. boðuðu flug- menn í Félagi íslenskra atvinnu- flugmanna til tveggja sólar- hringa verkfalls í febrúar og síðan annars ótímabundins verkfalls frá stuttu síðar. Verk- fallinu var aflýst þegar samn- ingar við Icelandair náðust.  Í desember sl. samþykkti Flugfreyjufélagið að boða til verkfalls 2. janúar 2010. Sam- komulag í deilunni náðist á Þor- láksmessu.  27. júní 2008 hófu flug- umferðarstjórar verkfall sem stóð í um það bil tvær klukku- stundir.  Vorið 2008 samþykktu bæði flugfreyjur og flugmenn að hefja undirbúning fyrir verk- fallsboðun en féllu frá því þegar samningar tókust. Oftast afboðað

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.