Morgunblaðið - 24.02.2010, Page 18
18 Umræðan
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. FEBRÚAR 2010
VIÐBRÖGÐ
Reykjavíkurborgar,
og/eða borgarlög-
manns við nýlegum
úrskurði samgöngu-
og sveitarstjórn-
arráðuneytis um skil á
úthlutuðum lóðum og
endurgreiðslu gatna-
gerðargjalda, eru allr-
ar athygli verð. Und-
irritaður hefur starfs
síns vegna kynnt sér þessa úr-
skurði og fleira tengt þessum lóða-
skilamálum og telur rétt að draga
athygli að eftirfarandi atriðum:
Þann 2. mars síðastliðinn tóku gildi
breytingar á lögum um gatnagerð-
argjald nr.153/2006 og lögum um
tekjustofna sveitarfélaga, nr. 4/
1995. Í athugasemdum löggjafans
við lagafrumvarpið er fjallað um til-
efni og ástæður þeirra lagabreyt-
inga sem lögfestar voru 2. mars sl.
Í athugasemdunum segir m.a.:
„Frumvarp þetta er liður í því að
skapa betri rekstrarlegar forsendur
fyrir sveitarfélög til að mæta þeim
tímabundnu erfiðleikum sem ríkja í
efnahagsmálum þjóðarinnar. Með
frumvarpinu fá sveitarfélögin aukið
svigrúm til þess að mæta breyttum
rekstrar- og fjármálaforsendum.“
Þá er í athugasemdunum fjallað um
breytingu á lögum um gatnagerð-
argjald nr. 153/2006 en þar segir:
„Í öðru lagi er lagt til að lögum um
gatnagerðargjald nr. 153/2006 verði
breytt með þeim hætti að frestur
sveitarfélags til að endurgreiða
gatnagerðargjald verði lengdur úr
30 dögum í 90 daga.“ Enn fremur
segir í nefndum athugasemdum,
m.a.: „Kröfur um verð-
tryggða endurgreiðslu
gatnagerðargjalda
hafa þegar haft gríð-
arleg áhrif á lausa-
fjárstöðu margra
sveitarfélaga. Þeim er
því illmögulegt að
standa skil á frekari
endurgreiðslum innan
þess knappa tíma-
frests sem kveðið er á
um í lögum um gatna-
gerðargjald.“
Í athugasemdum um
einstakar greinar frumvarpsins
segir síðan, í athugasemdunum, um
2. gr. En þar er í fyrstu málsgrein
fjallað um 9. gr. gildandi laga um
gatnagerðargjald (sú grein þeirra
laga fjallar um endurgreiðslu
gatnagerðargjalds þegar lóð er
skilað) og segir svo í annarri máls-
grein athugasemdanna: „Ákvæði 9.
gr. er afar íþyngjandi fyrir sveit-
arfélögin vegna þeirra breyttu að-
stæðna sem nú ríkja í rekstrar- og
fjármálum sveitarfélaga landsins.
Leiða má að því líkur að lausa-
fjárstaða sveitarfélaga sé slík að
það geti reynst þeim afar erfitt að
bregðast við kröfu um endur-
greiðslu gatnagerðargjalda á svo
skömmum tíma sem ákvæðið kveð-
ur á um eða einungis 30 dögum.
Með breytingunni fá sveitarfélög
rýmri tíma, 90 daga, til þess að
endurgreiða gjaldið en ákvæðið á
eingöngu við þegar úthlutun lóðar
er afturkölluð eða ógilt, lóð er skil-
að eða hætt er við framkvæmdir
samkvæmt útgefnu bygging-
arleyfi.“
Með þessum lagabreytingum er
löggjafinn að létta sveitarfélögum
endurgreiðslu til þeirra sem ákveða
að skila lóðum af einum eða öðrum
ástæðum. Þannig er augljóst að 9.
gr. laga um gatnagerðargjald nr.
153/2006 væri í engu íþyngjandi
fyrir sveitarfélögin ef þeim væri í
sjálfsvald sett, og hefðu það í hendi
sér, hvort þau tækju við lóðum og
endurgreiddu gatnagerðargjöldin
eða ekki. Sá skilningur og túlkun
löggjafans, sem fram kemur í
nefndum athugasemdum, sem
fylgdu breytingafrumvarpinu er
hverju barni skýr og glöggur og
engum vafa undirorpinn. Lóða-
höfum er heimilt að skila lóðum
einhliða, samkvæmt ákvörðun sinni,
og fá endurgreiðslu frá sveit-
arfélögum. Afstaða borgarinnar
vekur því furðu, svo ekki sé meira
sagt. Ber e.t.v. að líta svo á að af-
staða löggjafans hafi með öllu farið
framhjá borgarfulltrúum og/eða
þeim lögfræðingum sem borg-
arstjóri segist þiggja ráð hjá? Við
lestur nýlegra yfirlýsinga borg-
arstjóra og borgarlögmanns vegna
lóðaskilamálanna er ekki örgrannt
um að manni finnist örla á hroka í
garð þeirra sem málin varða.
Hvað gengur
Reykjavíkurborg til?
Eftir Friðrik V.
Þórðarson » Lóðahöfum er heim-
ilt að skila lóðum
einhliða, samkvæmt
ákvörðun sinni, og fá
endurgreiðslu frá sveit-
arfélögum. Afstaða
borgarinnar vekur því
furðu, svo ekki sé meira
sagt.
Friðrik Þórðarson
Höfundur er fjármálastjóri.
NÍU ÁRA stóð ég á
Þingvöllum 1944 við
stofnun lýðveldisins.
Ég man enn hughrifin
hjá fólkinu. Það var
djarft spilað að við,
127 þúsund sálir, gæt-
um séð um okkur
sjálf. Hvernig myndi
ganga að eiga viðskipti
við þjóðir í mörgum
löndum og heims-
álfum? Hvernig gætum við forðast
atvinnuleysi sem er eitt mesta böl
hverrar þjóðar? Hvernig myndi
ganga í heilbrigðismálum og
menntamálum? Spurningarnar voru
margar. Núna 65 árum seinna get-
um við svarað þessu, við höfum
staðist prófið. Við eigum góð við-
skipti um allan heim. Atvinnuleysi
er ekki viðloðandi hér nema það
tímabundna ástand núna, vegna al-
heimskreppunnar. Heilbrigðis- og
menntamál okkar eru með því
besta sem gerist.
Þetta hefur tekist af því að í fá-
menninu njótum við margra eig-
inleika sem milljónaþjóðir hafa
ekki. Til dæmis er mikil samkennd
hjá okkur og við finnum til hvert
með öðru. Við hjálpum hvert öðru
þegar stórtjón vegna nátt-
úruhamfara verða eins og eldgos og
snjófljóð. Annar þáttur er hvað all-
ar boðleiðir eru stuttar og auðvelt
fyrir fólk að hafa aðgang að stjórn-
sýslunni til æðstu embætta. Síðast
en ekki síst höfum við gert þetta
með gömlu góðu krónunni okkar og
systur hennar verðtryggðu krón-
unni. Að vísu höfum við margfellt
krónuna vegna aflabrests eða ann-
arrar óáranar til að aðlaga hana
raunveruleikanum í þjóðarbúskapn-
um. Við höfum notað hana sem
stýritæki til að komast hjá atvinnu-
leysi, sem er það
versta sem getur hent
nokkra þjóð, og verð-
tryggða krónan er
grunnurinn að eft-
irlaunakerfi okkar sem
er með því besta í
heiminum.
Ef við gengjum í
ESB gætum við ekki
gert viðskiptasamn-
inga við lönd í Norður-
eða Suður-Ameríku,
Asíu, Afríku, Ástralíu
eða önnur lönd í Evr-
ópu sem eru utan við ESB. Slíkir
samningar yrðu á forræði ESB. Við
myndum tengjast enn nánar ríkjum
ESB þar sem mikið atvinnuleysi er
viðvarandi í mörgum þeirra. Segj-
um svo að í aðildarviðræðum við
ESB fengjum við allar óskir okkar
uppfylltar, við mættum ein njóta
fiskimiðanna, orkunnar og vatnsins.
En ég óttast að ESB mun alltaf
hafa það í hendi sér að óska breyt-
inga á þessum kjörum. Þá gildir
bara atkvæðamagnið með eða á
móti og í rauninni er líklegast að
það yrði að gera það fyrr en seinna
því að ESB þarf að halda
ákveðnum jöfnuði milli þjóðanna
innan ESB.
Þá er vert að hafa í huga að við
erum á flestum kvörðum sem mæla
hagsæld þjóða eins og í atvinnu-
málum, menntamálum, heilbrigð-
ismálum og orkumálum á Saga
Class miðað við flestar þjóðir ESB.
Kreppan núna hefur sett strik í
reikninginn en við höfum alla burði
til að vinna okkur út úr henni fljótt
og örugglega ef okkur auðnast að
halda sjálfstæði okkar.
Menn hafa líkt veru okkar utan
ESB við árabát úti á rúmsjó lítinn
og máttvana. Ég ætla frekar að
taka samlíkingu úr fluginu því þar
þekki ég til. Við skulum ímynda
okkur að allir þingmennirnir okkar
séu komnir um borð í Fokker 50-
flugvél sem landsmenn þekkja úr
innanlandsfluginu. Þetta er þraut-
reynd og örugg flugvél, sem auð-
veldlega má hafa í 63 sæta út-
færslu. Flugvélinni má fljúga hvert
á land sem er með fullu öryggi. Að
vísu yrðum við að hækka eða lækka
flugið eftir flugskilyrðum með öðr-
um orðum að hækka eða lækka
gengið eftir efnahagsástandinu
hverju sinni. Stundum yrðum við að
millilenda og bíða af okkur fárveður
eins og í kreppunni núna. En við
yrðum alltaf við stjórnina og tækj-
um allar ákvarðanir sem kæmu
okkur best og þingmennirnir væru
alltaf í kallfæri fram í stjórnklef-
ann.
Hinn kosturinn er að ganga í
ESB og því mætti líkja við flug í
risaþotunni Airbus A-380, sem gæti
tekið alla þingmenn Evrópuþings-
ins 736 að tölu í ákveðinni útfærslu.
Þarna myndum við fá sex þing-
menn eða svona hálfa sætaröð aft-
ast í flugvélinni. Ég tel að þarna
hefðum við lítið sem ekkert sam-
band við mennina í stjórnklefanum.
Allar ákvarðanir þar yrðu teknar
með hagsmuni heildarinnar í huga
sem alls ekki þyrftu að vera eins og
okkur kæmi best.
Fámennið er okkar fjöregg
Eftir Rúnar
Guðbjartsson »Ef við gengjum í
ESB gætum við ekki
gert viðskiptasamninga
við lönd í Norður- eða
Suður-Ameríku, Asíu,
Afríku, Ástralíu eða
önnur lönd í Evrópu
sem eru utan við ESB.
Rúnar Guðbjartsson
Höfundur er sálfræðingur
og fyrrverandi flugstjóri.
HINN 17. febrúar sl.
var boðað til ánægju-
legs fundar í Víkinga-
heimum í Reykja-
nesbæ. Tilefnið var
ákvörðun um end-
urbætur á sjúkrahús-
inu á Ásbrú í samstarfi
Þróunarfélags Reykja-
nesbæjar og fyrirtæk-
isins Iceland Healt-
hcare (IH). Er ráðist í þessar
framkvæmdir til að fylgja eftir hug-
myndum um að skapa hérlendis að-
stöðu til að bjóða erlendum sjúkling-
um að koma hingað og fá bót meina
sína.
Hugmyndin að baki þessu hefur
lengi verið í umræðu hérlendis en
ekkert orðið af fyrr en núna. Við vit-
um að starfsfólk íslenskrar heilbrigð-
isþjónustu þykir einstaklega hæft og
vel menntað. Aðstæður á Íslandi
þykja góðar með hliðsjón af öryggi,
hreinleika og landfræðilegri legu.
Víða erlendis eru biðslistar og þeir
langir eftir aðgerðum á tilteknum
sviðum. Til að bregðast við þessum
vanda hefur m.a. Evrópusambandið
innleitt tilskipun er felur í sér að íbú-
ar innan evrópska efnahagssvæðisins
geta í raun valið sér land til aðgerða
að uppfylltum ákveðnum kröfum
(verð, gæðavottun o.s.frv.). Þúsundir
Bandaríkjamanna leita sér árlega
lækninga utan BNA. Þar skipta gæði
Menntun – ný-
sköpun – atvinna
Eftir Hjálmar
Árnason
og Gunnhildi
Vilbergsdóttur
Hjálmar
Árnason
»Uppbygging IH mun
á næstu misserum
skapa hundruð starfa og
afla þjóðinni allt að 3,5
milljarða króna í gjald-
eyri. Menntun gegnir
þar lykilhlutverki.
Gunnhildur
Vilbergsdóttir
ÞEGAR Ísland varð fullvalda ríki
1918 kostaði ein dönsk króna það
sama og ein íslenzk. Í dag hefur
íslenzka krónan fallið um það bil
2.300-falt að verðgildi miðað við
þá dönsku (tvö núll voru klippt
aftan af íslenzku krónunni 1981).
Því er einatt haldið fram að skýr-
ingin á þessu verðfalli sé sú að
það hafi kostað svo mikið að koma
íslenzku þjóðfélagi til nútímahorfs
á stuttum tíma. Því er þá jafnan
sleppt að yfir nágrannalöndin
gengu tvær heimsstyrjaldir á
sama tíma, vitanlega með gíf-
urlegri eyðileggingu og kostnaði,
en sem við sluppum að langmestu
leyti við og græddum frekar á
heldur en hitt.
Það hlýtur því að liggja nokkuð
beint við að álykta, að meg-
inásæðan fyrir sífelldri verðbólgu
og gengisfellingum hér sé óstjórn
og vankunnátta í fjármálum. Póli-
tíska umræðu hefur þó ekki vant-
að nema síður sé. Hún hefur dunið
á okkur linnulaust í útvarpi, blöð-
um og sjónvarpi auk fundahalda
og fyrirlestra. Aldrei hefur heldur
verið hörgull á stjórnmálamönn-
um, en samt er árangurinn svona
hörmulegur.
Upp úr þessum jarðvegi fjár-
málalegrar vankunnáttu spruttu
útrásarfíflin – menn sem höfðu
ekki hundsvit á því sem þeir voru
að gera en létu borga sér ofurlaun
fyrir að gera vitleysur. Þessi
starfsemi byggðist aðallega á
glæfralegum lántökum og gat að
sjálfsögðu ekki endað með öðru en
ósköpum. Ein verstu mistökin eru
náttúrlega ísbjargið (Icesave).
Enn einu sinni sýna stjórnvöld
getuleysi sitt. Þau vilja að þjóðin
borgi ísbjargið, rétt eins og þau
séu með slæma samvizku vegna
þess. Það er hart að horfa upp á
að flestir málsvarar þess að þjóð-
inni beri engin skylda til að borga
ísbjargið hafa hingað til verið út-
lendingar. Röksemdirnar eru ein-
faldar og skýrar: Eftirlit Englend-
inga og Hollendinga brást og til
skuldanna var stofnað að einkaað-
ilum – útrásarfíflunum.
Sýnum samstöðu á ögurstund
og kolfellum ísbjargið í atkvæða-
greiðslunni 6. marz.
REYNIR EYJÓLFSSON,
Hafnarfirði.
Kolfellum ísbjargið
Frá Reyni Eyjólfssyni
ÉG UNDIRRITUÐ er vistmaður
á Kleppi. Ég er á deild 14 sem á
að loka 1. maí. Ég mótmæli því
fyrir hönd okkar sjúklinganna og
starfsfólksins. Sjúkrahúsið veitir
sjúklingunum vernd, sem sambýli
eða aðrir staðir geta ekki veitt.
Fullorðið fólk margt hér á að
verða fyrir flutningunum sem það
engan veginn getur þolað, og kvíð-
ir fyrir. Ég tek dæmi, ein kona
hér hefur dvalið hér síðan hún var
átján ára, í dag er hún 56 ára.
Hún gæti verið sjokkeruð að flytja
út í bæ.
Heilbrigðisráðherra heldur að
hún sé að gera vistmönnum ein-
hvern greiða, með því að flytja,
þetta er mesti
misskilningur
hjá henni, þó að
hún meini vel.
Álfheiður
Ingadóttir, með
virðingu fyrir
henni, getur því
miður ekki sett
sig í spor okkar
sjúklinganna.
Starfsfólkið
vinnur af hugsjón og áhuga, en því
hefur öllu verið sagt upp. Ég vona
að þessi stutta grein geti haft
áhrif. Ég vona að ég geti vakið
fólk til umhugsunar.
GÍGJA GUÐFINNA
THORODDSEN.
Lokun deildar 14
á Kleppsspítala
Frá Gígju Guðfinnu Thoroddsen
Gígja Guðfinna
Thoroddsen
BRÉF TIL BLAÐSINS