Morgunblaðið - 24.02.2010, Síða 19

Morgunblaðið - 24.02.2010, Síða 19
Umræðan 19 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. FEBRÚAR 2010 KÆRI lesandi og þjáningarbróðir. Ertu orðinn þreytt- ur á Icesave-klúðrinu og allri þeirri um- ræðu? Ég líka og stjórnvöld líka. En gleymum ekki hverjir komu klúðrinu á! Leikmenn spila ekki leikinn til enda, nema leikreglur séu fyrir hendi. Og hverjir búa til þessar leikreglur? Jú, einmitt – þú hafðir rétt fyrir þér. Stjórnvöld! Og til að klóra yfir skítinn beina þau kast- ljósinu nú að sjómönnum og ætla sér þar að auki að skipa nefnd til að rannsaka samþykkt Íslendinga að Íraksstríðinu! Nei, þetta er orð- inn einn allsherjar skrípaleikur! Unga barnafólkið flyst búferlum til útlanda, skúrkarnir komnir í skjól Mr. Gordons Browns og við hin sitjum eftir á sökkvandi skuldaeyju í Norður-Atlantshafi. Mig langar í framhaldi að tæpa á nokkrum stað- reyndum sem blasa við almenningi – lýðnum: 1) Slá skal skjaldborg utan um heimilin í landinu! Þau orð voru hjóm eitt. Nauðungarsölubeiðnir bíða nú unnvörpum hjá litlum lúðrasveitakóngum með hatt víðs vegar á landinu öllu. 2) Ákvörðun stjórnvalda að „út- rýma“ atvinnuleysi var einnig hjóm eitt. M.a. átti ákveðinn hluti þeirra starfa að tengjast íslenskri kvik- myndagerð. Og hvað gerðist? Já, einmitt – samdráttur hjá RÚV og jafnvel rödd lýðsins að hverfa af sjónvarpsskjánum, rödd þeirra Spaugstofumanna. Gleymum ekki réttlætingu nefskattsins svokallaða vegna RÚV! Jú, hann átti að tryggja landsmönnum öllum að- gang að vönduðu íslensku efni og þar með styrkja innviði lands og tungu. 3) Nú beina stjórnvöld athyglinni að sjómönnum og fyrningarleiðinni, leið sem gengur ekki upp. Skipa síðan rauðhærða valkyrju þar fremsta í flokki. Og sú getur nú aldeilis talað – en hef- ur ekki hundsvit á andmælum sjómanna. Þetta getur nú ekki verið flókið; þeir sem mjólkuðu kvótakerfið seldu sig hæstbjóð- anda og þar með seldu sig út úr kerfinu með fullar „þjófahendur“ fjár. Punktur! 4) Og svo megum við ekki gleyma þess- um „bankaboltaleik“ auðmanna, bolta sem er kastað fram og til baka; kross- tengsl, venslatengsl og flokks- mannatengsl eða er ég að gleyma einhverju? Má vera en hvernig má það vera, að jafnvel rótgróin fyr- irtæki í landinu, fyrirtæki sem áður voru í eigu fjölskyldna, eru nú í eigu einhverra hluthafa sem enginn veit hvorki haus né sporð á? Er kannski fíni og flotti bílasal- inn í vinnu hjá rússnesku mafíunni? 5) Ég spyr: Hvers vegna mega þessir leikmenn sem tóku þátt í þessum blekkingarleik ennþá spila með? Hvers vegna eru þeir ekki látnir vera á hliðarlínunni og bíða a.m.k. í fjögur ár, rétt eins og hinn almenni þegn þarf að gera lögum samkvæmt um fyrningu skulda? Kannski væri réttast að láta þá bíða til eilífðarnóns, rétt eins og margur hefur þurft að þola, þegar kröfuvaktin lætur á sér kræla „korteri fyrir kosningar“ eða rétt áður en fyrningarfrestur skuldar rennur út. 6) Húsnæðislánin eru í uppnámi. Annars vegar fólk sem getur ekki greitt og hins vegar fólk sem vill ekki greiða lánin – lái þeim hver sem vill. Eina útspilið sem stjórn- völd hafa lagt fram er harla ómerkilegt. Aðeins lengt í henging- arólinni og greiðsluóvissan sett á biðreikning. Þetta er ekki flókið: Fólk vill að lánin verði færð aftur í það horf sem þau voru fyrir hrun, hrun sem svo einkennilega vildi til að fleiri vissu um en fram kom. Til- viljun? Held ekki. Stjórnvöld áttu einfaldlega að frysta lánin og frysta eignir landráðsmanna og það strax! 7) Punkturinn yfir i-ið er nú MP banki. Ég hafði vonast til að MP banki yrði banki fólksins í landinu, fólksins sem vildi losna undan oki spillingarvalda og þ.m.t. banka. En hvað gerist? Nærtækt dæmi er að MP banki neitaði ónefndum, vænt- anlegum viðskiptavini um debet- kort og fyrirframgreitt kreditkort – bauð aðeins viðskipti með banka- bók. Ástæðan? Jú, viðkomandi hafði lent í árangurslausu fjárnámi fyrir alllöngu – það var víst skráð í svörtu bókina. Þetta voru víst reglur … Ég spyr: Veit MP banki ekki um hvað málið snýst hérna á Fróni? Hversu margir Íslendingar munu vera í þessum sporum; eignalausir og skuldugir, áður en langt um líður? Jú, þeir verða því miður margir, alltof margir. Og þessi skilaboð MP banka eru nú ekki uppörvandi fyrir fólkið í land- inu, fólkið sem vill byrja nýtt líf og m.a. skipta við nýjan viðskipta- banka, banka sem gefur sig út fyrir að vera ótengdur þessari spillingu, fyrir utan að hafa átt hlutabréf í Byr. Niðurlag: Landráðsrotturnar hafa yfirgefið hið sökkvandi skip. Eftir situr hinn almenni Íslend- ingur – skuldugur fram í andlátið og gott betur vegna lygavefjarins sem spunninn hefur verið utan um „skjaldborg“ heimilanna í landinu; debetkorta- og kreditkortalaus. Að- eins með verðlausar krónur í far- teskinu sem munu eigi koma hon- um langt á tímum gjaldeyrishafta – ófrjáls fangi í eigin landi … Vér mótmælum allir – þjóðstjórn strax! Lýðurinn fastur í „lygavef“ stjórnvalda Eftir Magneu Ólafsdóttur »Eina útspilið sem stjórnvöld hafa lagt fram er harla ómerki- legt. Aðeins lengt í hengingarólinni og greiðsluóvissan sett á biðreikning. Magnea Ólafsdóttir Höfundur er kennari og er óflokksbundinn íslenskur þegn. Kæra Ísland. Við fréttum nýlega af erfiðleikum þínum vegna Icesave- málsins og samninga- viðræðunum um greiðslur til inni- stæðueigenda í Bret- landi og Hollandi. Þú og þjóð þín eruð síður en svo í öfundsverðri stöðu. Mergur málsins er að samninga- viðræðurnar, hver sem niðurstaða þeirra verður, fela ekki í sér lausn á vanda þínum. Náist nýtt sam- komulag í viðræðunum mun það að- eins segja til um umfang skuldavand- ans sem þú þarft að glíma við á komandi árum. Þess vegna þjónar það hagsmunum þínum að ríkisstjórn þín nái eins góðum samningi fyrir Ís- land og mögulegt er og fjötri sig ekki við óeðlilega tímaramma og nið- urstöðu. Ranglega upp byggður eða flausturslegur samningur gæti haft mjög alvarlegar afleiðingar, meðal annars leitt til vanskila ríkisins. Nýja-Sjáland var á meðal auð- ugustu og þróuðustu landa heims megnið af 20. öldinni. Þetta breyttist árið 1971 þegar Bretland gekk í sam- eiginlega markaðinn í Evrópu. Efna- hag Nýja-Sjálands var greitt þungt högg á einni nóttu. Fyrir þann tíma höfðu 95% útflutnings Nýja-Sjálands farið til Bretlands. Nýsjálend- ingar urðu skyndilega að finna nýja markaði og viðskiptavini fyrir út- flutningsvörur sínar þegar Bretland lokaði dyrum sínum fyrir Nýja-Sjálandi. Stjórn- völdin vildu ekki leggja þetta áfall á efnahaginn og reyndu að draga úr áhrifum þess á tekjur og lífskjör landsmanna með því að greiða niður ýmsa efna- hagslega starfsemi og fjármagna þau útgjöld með nýjum sköttum og lán- tökum á erlendum mörkuðum. Lántökurnar héldu áfram. Íbú- arnir voru ánægðir og enginn, ekki einu sinni seðlabankinn og fjár- málaráðuneytið, áttaði sig á því að verið var að búa til hættulega skulda- sprengju. Þessi sprengja hélt áfram að stækka til ársins 1984. Í júlí það ár skall á gjaldeyriskreppa og fjármagn, sem jafngilti næstum 12% af vergri landsframleiðsu Nýja-Sjálands á einu ári, streymdi út úr landinu á nokkrum vikum. Þessu fylgdu miklir fólksflutningar því að tugir þúsunda Nýsjálendinga flúðu heimaland sitt í kjölfar alvarlegs efnahagssamdráttar sem varð til þess að störfum fækkaði, tekjur lækkuðu og landsmenn misstu móðinn. Reynslan á Nýja-Sjálandi er lær- dómsríkt dæmi um hvernig ríkis- skuldir geta leitt til vítahrings. Í fyrsta lagi leiða vaxandi skuldir til þess að finna þarf meira fé til að greiða vexti. Nýsjálendingar fóru að taka lán í hvaða gjaldmiðli sem var. Erlendir lánardrottnar áttuðu sig á því að þetta var áhættusöm stefna og kröfðust hás áhættuálags af Nýja- Sjálandi áður en þeir framlengdu lán- in. Niðurstaðan var sú að bæði kostn- aðurinn og áhættan vegna skuldanna jókst hröðum skrefum. Nokkur ár liðu þar til stjórn- málamennirnir á Nýja-Sjálandi átt- uðu sig á því að þeir þurftu að setjast á rökstóla og ná samkomulagi um það sem gera þyrfti. Stjórnmálamað- urinn Roger Douglas var aðalhöf- undur umbótaáætlunar sem fól í sér að dregið var úr afskiptum ríkisins af einkageiranum og niðurgreiðslum, tollar voru lækkaðir, dregið úr öðrum viðskiptahindrunum og greitt fyrir frjálsum fjármagnsflutningum. Öll kreppan stóð í tíu ár og batinn var hægur. Ísland er núna í svipaðri stöðu. Landinu hafði verið vel stjórn- að og það var efnað. Og það hefur aldrei áður glímt við slíkan skulda- vanda. Ef til vill skýrir þetta hvers vegna umræðan á Íslandi hefur hingað til ekki beinst að harkalegum áhrifum of mikilla ríkisskulda. Íslendingar hafa enga reynslu í því að leysa slík vanda- mál vegna þess að þeir hafa aldrei áð- ur staðið frammi fyrir slíkum vanda. Því miður hefur skuldabyrði Ís- lands stóraukist og er komin á hættu- svæði. Land telst vera komið inn á þetta hættusvæði þegar skuldirnar eru orðnar meiri en 50-60% af vergri landsframleiðslu. Skuldir Nýja- Sjálands árið 1984 námu um 60% af vergri landsframleiðslu. Mexíkó fór yfir mörkin með ívið hærra hlutfalli tíu árum síðar. Mörg lönd í Evrópu eiga núna við svipuð vandamál að stríða, eru með of miklar skuldir mið- að við landsframleiðslu. Gefa þarf einnig sérstakan gaum að hlutfalli af- borgana og vaxta annars vegar og tekna ríkissjóðs hins vegar; ef hlut- fallið nær 15-20% bendir það yfirleitt til þess að vanskil séu yfirvofandi. Okkur skilst að dregið hafi verið úr opinberri þjónustu á mörgum sviðum í sparnaðarskyni á Íslandi í tengslum við þetta mál. Fjölmörg önnur hættumerki og áhyggjuefni þarf að hafa í huga þegar mótuð er raunhæf, forsjál og útsjón- arsöm áætlun um hvernig leysa eigi vandamál vegna ríkisskulda. Ástand- ið í hverju landi fyrir sig er einstakt og mistök við uppbyggingu og stýr- ingu skuldasafnsins geta leitt til mik- illar áhættu og taps sem getur numið hundruðum milljóna dollara. Til að mynda hefur gengishrun krónunnar orðið til þess að erlendar skuldir ykk- ar eru nú tvisvar sinnum hærri í krónum talið en fyrir tveimur árum. Íslendingum væri akkur í því að haga samningaviðræðunum um Ice- save þannig að vandamál, sem tengj- ast of mikilli skuldasöfnun, yrðu höfð í fyrirrúmi. Þessi fjárhagslegu vanda- mál íþyngja ykkur löngu eftir að blek- ið á nýjum samningi hefur þornað. Með kveðju frá okkur sem erum hinum megin á hnettinum. Nýsjálensku vinirnir ykkar. Eftir Alex Jurshevski » Íslendingum væri akkur í því að haga samningaviðræðunum um Icesave þannig að vandamál, sem tengjast of mikilli skuldasöfnun, yrðu höfð í fyrirrúmi. Ales Jurshevski Alex Jurshevski er meðeigandi ráð- gjafarfyrirtækisins Recovery Fund í Toronto í Kanada. Ríkisstjórn Nýja- Sjálands fékk Alex Jurshevski í þjón- ustu sína í byrjun tíunda áratugarins til að endurskipuleggja erlendar skuldir ríkisins, eignir og ákveðin fyrirtæki í eigu ríkisins. Hann átti hugmyndina að áætlun sem varð til þess að allar er- lendar skuldir Nýja-Sjálands voru inn- leystar. Hann er með ríkisborgararétt í Kanada og á Nýja-Sjálandi. Bréf frá Wellingtonþjónustunnar, öryggi og verð meg-inmáli. Í þessu liggja tækifæri og áþessum grunni er nú sótt fram. Samkvæmr áætlunum gætu orðið til allt að 300 störf innan þriggja ára á þessu sviði og skapað tekjur allt að 3,5 milljörðum króna – í beinhörðum gjaldeyri! Menntun og þjónusta Heilsuferðaþjónusta snýst ekki bara um að hjúkra sjúklingum. Oftast nær fylgir hverjum sjúklingi/ viðskiptavini einn aðstandandi eða fleiri. Þar liggur einmitt annar hluti þessarar ferðaþjónustu – að sinna fylgifiskum sjúklinganna. Og sann- arlega höfum við upp á ýmislegt að bjóða í okkar frábæru ferðaþjónustu. Rétt er að leggja þunga áherslu á að hér er um viðtæka þjónustu að ræða. Þjónustu við sjúklinga fyrir og eftir meðferð sem og þjónustu við að- standendur. Til þess þarf vel mennt- að og þjálfað fólk á öllum sviðum er málið snertir. Hlutverk Keilis í þessu ferli er að verða fyrirtækjunum stoð í uppbyggingu og rekstri – einkum á þeim sviðum er ekki hefur verið sinnt í skólakerfi okkar. Ekki síst á það við um þjónustustörf ýmiss konar en einnig má nefna önnur svið, s.s. sjúkranudd og aðrar stoðgreinar. Starfsfólk Keilis hlakkar til hins spennandi samstarfs við hina fram- sæknu aðila og býður þá velkomna á Ásbrú. Keili er ætlað að starfa náið með þeim fyrirtækjum er hasla vilja sér völl í nýsköpunarþorpinu Ásbrú. Samstarfið við Iceland Healthcare verður gott dæmi um það hlutverk. Höfundar eru stjórnendur hjá Keili. ÞAÐ ER í fréttum í dag 20. febrúar 2010 að framkvæmdastjórn ESB hafi látið semja drög að nýjum laga- reglum sem hugs- anlega taka fljótt gildi um innistæðutrygg- ingar á svæði ESB. Koma í stað þeirra gömlu laga sem gilda í dag um innistæðu- tryggingar á svæði ESB. Þau lög valda í dag skelfingu á Íslandi og gera okkur gjaldþrota sem þjóð. Samkvæmt fréttinni á með nýjum lögum ESB um innistæðutryggingar á bankasvæði ESB að setja fyrir að svona peningahörmungar geti aftur gengið yfir nokkra þjóð vegna ESB- reglna eins og Icesave-lögin gera nú hér á Íslandi. Halda á þjóð- aratkvæðagreiðslu um greiðslu- skyldu okkar. Svona má ekki gerast aftur á áhrifasvæði ESB, segja þeir ESB- menn. Þess vegna hefur fram- kvæmdastjórn ESB látið semja drög að nýjum lögum eða reglum um inni- stæðutryggingar sem setja fyrir þennan bagalega leka eða galla á nú- gildandi innistæðutryggingarkerfi ESB. Lagar alla núverandi galla. Þessi nýju drög eða nýju reglur gera ráð fyrir því að hvert ríki hætti eitt og sér að bera alla ábyrgð á inni- stæðum sínum í sínum bönkum. Í stað einkaábyrgðar hvers ríkis kæmi sameiginlegur innistæðutrygg- ingasjóður allrar Evrópu. Svona hörmulegt peningaslys eins og Ice- save er í dag gæti ekki orðið aftur. Nú myndu Íslendingar glaðir greiða í nýja tryggingarsjóðinn 2% af öllum bankainn- istæðum sínum hér á landi eins og gert er ráð fyrir þegar þessi nýi öruggi og stóri inni- stæðutryggingasjóður tæki til starfa. Myndum gleðjast mjög. Nú er með þessum drögum að nýjum ESB-reglum um innistæðutryggingar í raun og veru verið að endurskoða sömu gömlu reglurnar sem í gildi eru í dag. Við sitjum uppi sem smáþjóð með galla þeirrar gömlu reglna sem voru vanhugsaðar. Get- um ekki sem smáþjóð tekið á okkur svona risafjárhagsábyrgðir eins og Icesave er sem henta aðeins stór- þjóðum. Menn sáu ekki þessi mistök fyrir við upphaflega gerð á lögum um ábyrgð á innistæðum. Nú er hægt að leiðrétta þessi gömlu upp- haflegu mistök með því að láta nýju drögin að breytingum á ábyrgð á innistæðum í Evrópu gilda aftur í tímann, þannig að breytingarnar næðu í tíma aftur fyrir stofnun inni- stæðutrygginga Icesave í Bretlandi og Hollandi. Hjálpar þeim líka. Nú- verandi Icesave-mál Breta, Hollend- inga og Íslendinga væri úr sögunni í núverandi mynd. Væri með nýja sjóðnum greitt af allri Evrópu sam- eiginlega. Fellur Icesave- málið niður? Eftir Lúðvík Gizurarson Lúðvík Gizurarson »Núverandi Icesave- mál Breta, Hollend- inga og Íslendinga væri úr sögunni í núverandi mynd. Höfundur er hæstaréttarlögmaður.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.