Morgunblaðið - 24.02.2010, Side 22
22 Minningar
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. FEBRÚAR 2010
✝ Guðlaugur Borg-arsson fæddist á
Skarði í Bjarnarfirði
23. mars 1932. Hann
lést á Heilbrigð-
isstofnun Suðurnesja
14. febrúar 2010.
Foreldrar hans
voru Soffía Bjarna-
dóttir, f. 1906, d.
1981, og Borgar
Sveinsson, f. 1896, d.
1966. Bræður Guð-
laugs eru: 1) Valgeir
Bjarni, f. 1935, gift-
ur Sólveigu, f. 1944,
þau skildu. Synir þeirra eru: a)
Borgar, b) Pétur Gauti, c) Jón, d)
Gísli. 2) Pétur Trausti, f. 1940,
giftur Steinunni, f.
1941. Börn þeirra
eru a) Pálmi, b) Anna
Margrét.
Guðlaugur giftist
Guðbjörgu Svav-
arsdóttir, þau skildu.
Þeirra dætur eru: 1)
Soffía, f. 1960, gift
Gylfa Vilberg, börn
a) Karl Guðni, b) Val-
dís Nína, c) Andri
Freyr. 2) Sigurbjörg,
f. 1962, gift Sig-
mundi, þeirra dóttir
er Linda. Þau búa í
Sydney í Ástralíu. 3) Sædís, f.
1963, gift Þráni Ómar synir þeirra
eru a) Aron Ingi, b) Arnór Uni.
Guðlaugur giftist Katrínu Sig-
urðardóttir 1968. Þeirra börn eru
1) Magnea Rán, f. 1969, dóttir
hennar er Katrín Arndís, f. 1992.
2) Dofri Örn, f. 1972. Synir Katr-
ínar af fyrra hjónabandi: 1) Sig-
urður Óskar Lárusson, giftur Guð-
björgu, þeirra dóttir er Erla
Sigríður, börn Sigurðar eru a) Jón
Ingi, b) Ingi Björn, c) Katrín
Anna, d) Leifur. 2) Lárus Ingi Lár-
usson, giftur Trinu Ören, þeirra
dætur eru a) Lína, b) Jóhanna.
Þau eru búsett í Stavanger Nor-
egi.
Útför Guðlaugs fer fram frá
Ytri-Njarðvíkurkirkju í dag, 24.
febrúar 2010, og hefst athöfnin kl.
13.
Elsku Laugi minn, takk fyrir sam-
fylgdina í gegnum lífið.
Guð er eilíf ást,
engu hjarta er hætt.
Ríkir eilíf ást,
sérhvert böl skal bætt.
Lofið Guð, sem gaf,
þakkið hjálp og hlíf.
Tæmt er húmsins haf,
allt er ljós og líf.
(Stefán frá Hvítadal.)
Sérstakar þakkir til dóttur og son-
ar okkar fyrir góða umhyggju og
einnig sonar míns, Lárusar Inga.
Hvíl í friði.
Eiginkona.
Mig langar með fáum orðum að
minnast föður míns, Guðlaugs Borg-
arssonar. Guðlaugur eða Laugi eins
og flestir kölluðu hann fæddist árið
1932 og ólst upp á Ströndunum.
Hann byrjaði 13 ára til sjós og var
ætíð stoltur af stuttri skólagöngu
sinni. Pabbi lauk námi frá Stýri-
mannaskólanum í Reykjavík og átti
sjómennska og sjósókn hug hans all-
an, enda starfaði hann alla tíð við sjó-
mennsku og síðar fiskvinnslu þegar í
land var komið. Pabbi var tvígiftur
og átti þrjár stúlkur með fyrri konu
sinni, en með móður minni átti hann
Magneu Rán og svo mig, hún á einn-
ig tvö börn af fyrra hjónabandi. Lífs-
viska og reynsla pabba var mikil og
þegar vel lá á honum miðlaði hann af
reynslu sinni til okkar systkinanna.
Þar sem mikill aldursmunur var á
okkur feðgunum átti ég oft erfitt
með að setja mig inn í aðstæður hans
á yngri árum. Er það fyrst núna á
síðustu árum sem ég skil líf pabba og
get sett það í samhengi, enda fjöru-
tíu ár sem skildu okkur feðgana að.
Þegar ég var að komast til vits og
ára bað pabbi mig um að skoða
a.m.k. hálfan heiminn áður en ég
gifti mig. Þá var það eindregin ósk
hans að ég aflaði mér góðrar mennt-
unar. Síðast þegar þessi mál bar á
góma vorum við enn sammála um að
þessi tími væri líklega ekki enn
runninn upp þrátt fyrir að ég hefði
ferðast mikið, og skólagangan orðin
alllöng.
Þegar pabbi var um sextugt fór að
segja til sín sú erfiðisvinna sem hann
hafði stundað frá unga aldri, og eitt
og annað í útslitnum skrokknum fór
að gefa sig. Þá kom sér vel að eiga
góða að. Í heimsóknum til hans á
þessum tíma var gerð krafa um bíl-
túr og oftast lá leiðin niður að höfn til
að skoða bátana sem þar lágu við
festar. Áttum við þar okkar bestu
stundir saman. Það eina sem pabbi
lét mig vita að hann óttaðist var að
enda ævidaga sína eins og faðir hans
hafði gert, en hann var í 11 ár rúm-
liggjandi eftir að hafa fengið ítrekað
heilablóðfall. Þegar pabbi fékk heila-
blóðfall fyrir um ári starði hann á
mig í smátíma áður en hann sagði, að
þetta væri eins og hjá pabba sínum.
Hann ætlaði sér að berjast gegn
þessum vágesti og lagði mikið upp úr
því að þjálfa sig og reyndi það við
hvert tækifæri, hvort heldur sem all-
ir í kringum hann voru tilbúnir að
grípa hann eða ekki. Það var ekki
annað hægt en að vera hreykinn af
viljastyrknum sem var einstakur.
Þegar hjartað fór að láta undan og
pabbi fór á spítalann var ljóst að
senn tæki jarðvist hans enda. Pabbi
kvaddi þennan heim sunnudags-
kvöldið 14. febrúar sl. með Valgeir
bróður sinn og mömmu sér við hlið.
Hann kvaddi jarðvistina með þeim
tveimur einstaklingum sem lengst
höfðu fylgt honum. Ég er þess full-
viss að pabbi hefur verið skipstjóri í
meðbyr allt sitt líf. Mig langar að
enda þessi minningarorð á orðum
Kahlil Gibran í þýðingu Gunnars
Dal:
„Þegar þú ert sorgmæddur, skoðaðu
þá aftur huga þinn, og þú
munt sjá, að þú grætur vegna þess,
sem var gleði þín.“
Dofri Örn.
Elsku afi minn. Það var hrikalega
vont að heyra að þú værir farinn upp
til himna, mamma kom og sagði mér
frá því, og ég brast í grát. Það er
samt gott að vita að þú ert kominn á
góðan stað og að þú þurfir ekki að
þjást meira. Þú komst í stað alvöru
föðurafa míns sem ég fékk aldrei að
Guðlaugur Borgarsson
• Kransar
• Krossar
• KistuskreytingarHverafold 1-3 • Sími 567 0760
Fallegar útfararskreytingar
Allar minningar á einum stað.
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
M
O
R
48
70
7
01
/1
0
–– Meira fyrir lesendur
Bókina má panta á forsíðu mbl.is eða á slóðinni mbl.is/minningar
Um leið og framleiðslu er lokið er bókin send í pósti.
Hægt er að kaupa minningabækur með greinum sem birst hafa frá
árinu 2000 og til dagsins í dag.
✝
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug
við andlát og útför ástkærrar móður minnar,
JÓNÍNU JÓNSDÓTTUR,
Amtmannsstíg 5,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir til starfsfólks deildar 11 E á
Landspítalanum og líknardeildar Landspítalans
í Kópavogi.
Hilmar Þór
og aðrir aðstandendur.
✝
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
INGIBJÖRG SIGURJÓNSDÓTTIR,
Skólabraut 3,
Seltjarnarnesi,
andaðist á hjúkrunarheimilinu Grund þriðjudaginn
16. febrúar.
Jarðarförin fer fram frá Grensáskirkju fimmtu-
daginn 25. febrúar kl. 13.00.
Birna Björnsdóttir, Bragi Gíslason,
Rannveig Björnsdóttir, Þórarinn Flosi Guðmundsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær systir okkar,
ANNA KRISTÍN RAGNARSDÓTTIR,
Alicante,
Spáni,
sem lést á heimili sínu laugardaginn 6. febrúar,
verður jarðsungin frá Seljakirkju föstudaginn
26. febrúar kl. 15.00.
Guðný Ragnarsdóttir,
Þórdís Ragnarsdóttir,
Jónas Ragnarsson.
✝
Ástkær frændi okkar,
GUÐMUNDUR E. JÓHANNSSON,
Hátúni 12,
áður Kleppsvegi 90,
Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju föstudaginn
26. febrúar kl. 13.00.
Hörður Óskarsson,
Steinn Ragnarsson.
✝
Ástkær dóttir, móðir, tengdamóðir, amma og vin-
kona,
ÞORBJÖRG DANÍELSDÓTTIR
frá Þórshöfn
á Langanesi,
verður jarðsungin frá Digraneskirkju föstudaginn
26. febrúar kl. 13.00.
Þeir, sem vilja minnast hennar, eru vinsamlega
beðnir að láta Hjálparstarf kirkjunnar eða Styrktarfélag krabbameins-
sjúkra barna njóta þess.
Hulda Guðjónsdóttir,
Haraldur Arnar Ingþórsson, Guðlaug S. Sigurðardóttir,
Daníel Örn Ingþórsson, Sólveig Skúladóttir,
Gréta Ingþórsdóttir, Gísli Hjartarson,
Halldóra Ingthors Cabrera, Carlos Cabrera,
Eiríkur Þorbjarnarson,
barnabörn og aðrir aðstandendur.
✝
Elskulegur eiginmaður minn og besti vinur,
ÞÓRIR BJARNASON,
Efri-Ey l,
Meðallandi,
Skaftárhreppi,
andaðist á gjörgæslu Landspítalans föstudaginn
19. febrúar.
Jarðsungið verður frá Langholtskirkju
Skaftárhreppi laugardaginn 27. febrúar kl. 14.00.
Sara Karlsdóttir,
Guðgeir Bjarnason,
Arndís Eva Bjarnadóttir,
Runólfur Rúnar Bjarnason,
Gunnhildur Bjarnadóttir.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
KRISTÍN GUÐLAUG BÁRÐARDÓTTIR,
Stífluseli 8,
Reykjavík,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju fimmtu-
daginn 25. febrúar kl. 13.00.
Símon V. Gunnarsson, Eygló Andrésdóttir,
Jóna Guðrún Gunnarsdóttir, Jón Sveinn Friðriksson,
Matthías Gunnarsson, Katrín Eiríksdóttir,
Dagný D. Gunnarsdóttir, Halldór D. Guðbergsson,
Kristín Gunný og Gunnar Magnús,
barnabörn og barnabarnabörn.