Morgunblaðið - 24.02.2010, Page 23
sjá, og varst mér alltaf sem alvöru
afi. Ég minnist allra stundanna sem
við áttum saman, t.d. þegar ég og
Katrín frænka gistum hjá ykkur
ömmu þegar við vorum litlar og í
prakkaraskap létum við vaselín á
klósettsetuna, Katrín faldi sig bak
við náttslopp en þú sást hana. Síðan
þegar Lína frænka var á Íslandi og
við ákváðum að selja prjónadótið
ykkar ömmu út á götu, salan gekk
upp og niður. Þegar ég gisti hjá ykk-
ur lastu alltaf eina bók fyrir mig uppi
í rúmi, en þú sofnaðir alltaf á undan
mér, það versta var að þú hraust svo
mikið að ég átti alltaf frekar erfitt
með að sofna. Eitt sinn var ég hjá
ykkur ömmu á sjómannadaginn, við
fórum niður á höfn og þú sýndir mér
skipin stóru sem mér fannst frekar
merkileg. Ekki var síður gaman að
fara upp á flugvöll og horfa á stóru
flugvélarnar lenda. En, elsku afi
minn, ég sakna þín og ég vil að þú
vitir að ég elska þig, þótt ég hafi ekki
getað verið mikið með þér seinustu
daga þína. Það var alltaf svo gott að
koma í heimsókn til þín, þú varst allt-
af svo rosalega glaður. Minningar
þínar munu lifa í hjarta mínu og ég
mun hitta þig þegar ég verð gömul
kona og kem upp til englanna, elsku
afi minn.
Ég vil kveðja þig með lítilli bæn
sem við sungum saman með ömmu í
kirkjunni:
Í bljúgri bæn og þökk til þín,
sem þekkir mig og verkin mín.
Ég leita þín, Guð, leiddu mig,
og lýstu mér um ævistig.
Ég reika oft á rangri leið,
sú rétta virðist aldrei greið.
Ég geri margt sem miður fer,
og man svo sjaldan eftir þér.
(Pétur Þórarinsson.)
Þín,
Erla Sigríður Sigurðardóttir.
Minningar 23
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. FEBRÚAR 2010
Barnagæsla
Au pair óskast í Lúxemborg
Óskað er eftir traustri au pair-stúlku
frá mars nk. Erum hollensk-íslensk
hjón með 2 börn á aldrinum 10
mánaða og 3ja ára. Þarf að hafa
bílpróf. Upplýsingar á orn.sigurds-
son@gmail.com eða í síma 897 5479.
Bækur
Mannlíf og saga fyrir vestan
Mannlíf og saga fyrir vestan.
Öll 20 heftin á 9.800 kr. Póstsending
innifalin. Upplögð afmælisgjöf!
Vestfirska forlagið. jons@snerpa.is,
sími 456-8181.
Frá Bjargtöngum að Djúpi
Frá Bjargtöngum að Djúpi. Allar
10 fyrstu bækurnar á 9000 kr.
Póstsending innifalin. Upplögð
afmælisgjöf! Vestfirska forlagið.
jons@snerpa.is, sími 456-8181.
Hljóðfæri
Dúndurtilboð!!!!
Kassagítarar: 1/4 stærð 10.900
pakkinn með poka, strengjasetti
og stilliflautu. Kassagítartilboð:
Kr. 49.900 m. pickup, innbyggður
tuner, 10w magnari, poki, snúra,
ól, aukastrengjasett og eMedia
kennsluforrit í tölvu. Rafmagns-
gítarpakkar frá kr. 44.900.
Þjóðlagagítar frá 17.900.
Hljómborð frá kr. 8.900.
Trommusett kr. 79.900 með öllu.
Gítarinn, Stórhöfða 27,
sími 552 2125,
www.gitarinn.is
Húsgögn
Ódýr húsgögn til sölu: Sjónvarp,
rúm, stofuborð o.fl.
http://web.me.com/ingiberoskars-
son/Til_solu/Welcome.html
s: 8215337
Atvinnuhúsnæði
Atvinnuhúsnæði til leigu við
Lyngháls. 188 fm, tvennar stórar dyr.
Upplýsingar í síma 892 1186.
Bílskúr
Skráðu þinn bíl með mynd á
söluskrá okkar núna.
Ef það gerist þá gerist það hjá okkur.
Bílfang.is. Malarhöfði 2.
www.bilfang.is
Sumarhús
Falleg og vönduð sumarhús frá
Stoðverk ehf. í Ölfusi
Gott verð. Teiknum eftir óskum kaup-
enda.
Símar: 660 8732, 660 8730,
892 8661, 483 5009.
stodverk@simnet.is
Til sölu
Postulín og kristall
gjafavörur í úrvali.
Slóvak kristall,
Dalvegi 16b, Kópavogi.
S. 544 4331.
Handslípaðar kristalsljósakrónur
frá Tékklandi og Slóvakíu. Mikið
úrval. Frábær gæði og gott verð.
Slóvak kristall,
Dalvegi 16b, Kópavogi.
S. 544 4331.
Óska eftir
KAUPUM GULL - JÓN & ÓSKAR
Kaupum gull til að smíða úr.
Spörum gjaldeyri. Heiðarleg
viðskipti. Aðeins í verslun okkar
Laugavegi 61. Jón og Óskar,
jonogoskar.is - s. 552-4910.
KAUPI GULL !
Ég, Magnús Steinþórsson gull-
smíðameistari, kaupi gull, gull-
peninga og gullskartgripi. Kaupi
allt gull, nýlegt, gamalt og illa
farið. Leitið til fagmanns og fáið
góð ráð. Upp. á demantar.is, í
síma 699 8000 eða komið í
Pósthússtræti 13 (við Austurvöll).
Verið velkomin.
Ýmislegt
Glæsilegir dömuskór úr leðri
með skinnfóðri. Teg: K 35100.
Litir: rautt og svart. Stærðir: 36 - 41.
Verð: 9.685,-
Þægilegir dömuskór úr leðri,
skinnfóðraðir og með góðum hæl.
Teg: 2907. Litir: rautt og svart.
Stærðir: 36 - 41. Verð: 14.685,-
Þægilegir dömuskór úr leðri
á lágum hæl og skinnfóðraðir.
Tegund: 210353. Stærðir: 36 - 41.
Verð: 14.685,-
Sími: 551 2070,
opið: mán.- fös. 10 - 18,
lau. 10 -14.
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf.
www.mistyskor.is
ATH - NÝJA VARAN STREYMIR
INN - SAMA GÓÐA VERÐIÐ
Teg. 84009 - mjög flottur og
haldgóður í CDE skálum á kr. 3.950,-
buxur í stíl á kr. 1.950,
Teg. 1102 - flottur blúnduhaldari í CD
skálum á kr. 3.950,- buxur í stíl á
kr. 1.950,-
Teg. 3341 - haldgóður og
yndislegur í CD skálum á kr. 3.950,-
buxur í stíl á kr. 1.950,-
Laugavegi 178, sími 551 3366
Opið mán.-fös. 10-18,
laugard. 10 - 14.
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf.
www.misty.is
Bátar
HANDFÆRARÚLLUR
Handfærarúllur, betra verð.
www.senson.is
Bílar
Bón & þvottur
Vatnagörðum 16, sími 445-9090
Þvoum, bónum, djúphreinsum, þrífum
að innan alla bíla, eins sendibíla,
húsbíla og hjólhýsi, eins vélmössum
við matt lakk svo það verði sem nýtt.
Einnig bjóðum við hrað-gæðaþvott.
Öll vinna er handunnin. Opnum kl.
9.00 virka daga og 10.00 laugardaga.
Bonogtvottur.is - GSM 615-9090.
Ford Escape Limited,
2005 model. Ekinn 48.þ.m. leður,
álfelgur, 6 diska CD, o.fl.
Tilboð vegna brottflutnings 1.900
þús.
www.sparibill.is
Fiskislóð 16 - sími 577 3344.
Bílaþjónusta
Ökukennsla
Bilaskoli.is
Bókleg námskeið - ökukennsla -
akstursmat - kennsla fatlaðra
Gylfi Guðjónsson
Subaru Impreza '08.
6960042/5666442.
Snorri Bjarnason
BMW 116i ´07. Bifhjólakennsla.
8921451/5574975. Visa/Euro.
Sverrir Björnsson
Volkswagen Passat '08.
8924449/5572940.
Ævar Friðriksson
Toyota Avensis '06.
8637493/5572493.
Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl
Vinkonur Íslands-
meistarar kvenna
í sveitakeppni
Sveit Vinkvenna varð Íslands-
meistari í sveitakeppni kvenna 2010.
Þær skoruðu 168 stig aðeins einu
stigi meira en helsti keppinauturinn,
sveitin DEMB, sem skoraði 167 stig.
Í sigursveitinni spiluðu þær stöll-
ur Anna Ívarsdóttir, Guðrún Ósk-
arsdóttir, Hjördís Sigurjónsdóttir og
Ragnheiður Nielsen.
Vinkonur 168
DEMB 167
Plastprent 149
Vorboðar 142
Hrund Einarsdóttir 139
Níu sveitir kepptu um titilinn að
þessu sinni.
FEB Akureyri
Spilaður var tvímenningur hjá
bridsklúbbi Félags eldri borgara á
Akureyri 18. febrúar.
Efstu pör í N/S:
Páll Jónsson - Jón Sverrisson 161
Svanh.Gunnarsd. - Björg Dagbjartsd. 150
Ása Jónsd. - Ólína Sigurjónsd. 145
A/V:
Vera Sigurðard. - Guðrún Sigurðard. 137
Sveinbj. Sigurðss. og Gissur Jónass. 134
Helga Halldórsd. og Trausti Jóhannss. 133
Meðalskor 126 stig
Bridsdeild Félags eldri
borgara í Reykjavík
Tvímenningskeppni spiluð í Ás-
garði, Stangarhyl 4, mánudaginn 22.
febrúar. Spilað var á 13 borðum.
Meðalskor: 312 stig.
Árangur N-S:
Rafn Kristjánsson – Júlíus Guðmss. 404
Magnús Oddsson – Oliver Kristóferss. 347
Albert Þorsteinss. – Bragi Björnsson 334
Sigurður Jóhannss. – Siguróli Jóhannss. 325
Árangur A-V:
Hilmar Valdimarss. – Óli Gíslason 379
Ragnar Björnsson – Guðjón Kristjánss. 376
Sigurður Tómasson – Guðjón Eyjólfss. 349
Friðrik Jónsson – Tómas Sigurjónss. 344
Bridsdeild
Breiðfirðingafélagsins
Sunnudaginn 21.2. hófst þriggja
kvölda hraðsveitarkeppni með þátt-
töku 15 sveita. Staða efstu sveita eft-
ir fyrsta kvöldið er þessi.
Örn Einarsson, Bragi Björnsson, Magnús
Ingólfsson, Sigurður Erlendsson 603
Sveinn Sveinsson, Gunnar Guðmss., Karól-
ína Sveinsd., Sigurjóna Björgvinsd. 571
Þorleifur Þórarinsson, Haraldur Sverrisson,
Skúli Sigursson, Rúnar Hauksson 560
Magnús Sverrisson, Halldór Þorvaldsson,
Garðar V. Jónsson, Unnar A. Guðmss. 558
Lilja Kristjánsdóttir, Sigríður Gunnarsdótt-
ir, Birgir Kristjánsson, Jón Jóhannsson 537
Spilað er í Breiðfirðingabúð,
Faxafeni 14, á sunnudögum kl. 19.
Súgfirðingaskálin
Þriðja lota í keppni um Súgfirð-
ingskálina, tvímenningsmóti Súg-
firðingafélagsins, er nýlokið.
Heildarstaðan er svohljóðandi en
alls hafa 16 pör spilað í keppninni.
Einar Ólafsson - Þorsteinn Þorsteinss. 587
Björn Guðbjörnss. - Gunnar Ármannss. 585
Hlynur Antonss. - Auðunn Guðmundss. 568
Valdimar Ólafss. - Karl Bjarnason 568
Gróa Guðnad. - Guðrún K. Jóhannesd. 565
Guðbj. Björnss. - Steinþór Benediktss. 559
Meðalskor 540 stig
Hæsta skor síðasta spilakvöld:
Einar Ólafss. - Þorsteinn Þorsteinss. 204
Jón Óskar Carlsson - Karl Jónsson 196
Valdimar Ólafsson - Karl Bjarnason 193
Einar og Þorsteinn skutust með
þessu góða skori á toppinn og verða
þar a.m.k. þangað til næsta lota
verður spiluð, mánudaginn 22. mars.
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson| norir@mbl.is
Elsku afi, það er
sárt að þurfa að kveðja
þig og sárt að hugsa til
þess að geta ekki hitt þig aftur.
Ég á svo margar góðar minningar
um þig, elsku afi minn, sem munu
alltaf lifa með mér og börnin mín
munu fá að heyra. Þau eru ekki orðin
nógu gömul sjálf til að eiga minn-
ingar um þig en þú fékkst að hitta
þau áður en þú fórst og ég er svo
þakklát fyrir það. Ég kom til þín
daginn áður en kallið kom og talaði
við þig, á meðan biðu börnin og Ein-
ar frammi en þú baðst um að fá að
sjá þau. Svo við fengum öll að kveðja
þig og erum svo þakklát fyrir það.
Það var erfitt að fá fréttirnar af
veikindum þínum og enn erfiðara að
heyra af því að þú værir að kveðja.
Þú vast svo ungur enn, ekki nema 68
ára gamall og við hefðum átt að geta
notið tilvistar þinnar mun lengur. En
þú lifir í hjörtum okkar og hugum og
við munum ávallt sakna þín.
Mínar helstu minningar um þig
eru þegar við komum norður á
Blönduós í heimsókn og við Þórir
Ingi rifumst um hvort ætti að fá að
Þórir Heiðmar
Jóhannsson
✝ Þórir Heiðmar Jó-hannsson fæddist
23. desember 1941 í
Litlu-Hlíð í Víðidal,
V-Hún. Hann lést 9.
febrúar 2010 á Land-
spítalanum í Foss-
vogi.
Útför Þóris Heið-
mars fór fram frá
Blönduóskirkju 20.
febrúar 2010.
fara fyrst með þér á
bláa bílnum. Svo gam-
an var að fara með
þér. En það er skrítið
að hugsa til þess núna
þar sem við þurftum
alltaf að vakna svo
snemma til að geta
komið með þér. En að
fá að fara í þessar
ferðir með þér var allt-
af hápunkturinn á
ferðinni norður.
Þú varst líka dug-
legur að hvetja mig
áfram í tónlistarnám-
inu og vildir alltaf að ég kæmi með
flautuna mína norður svo við gætum
spilað saman. Ég hlakkaði alltaf svo
mikið til að koma með flautuna og
spila með þér. Við spiluðum síðast
saman í afmælisveislu foreldra
minna sem er eiginlega alltof langt
síðan.
Þú leyfðir mér líka alltaf að prófa
harmonikkuna en yfirleitt var ég þá
með ömmu nikku og þú með stóru
nikkuna að sýna mér og kenna mér
hvað ég ætti að gera. Ég elskaði að
hlusta á þig spila á nikkuna, þú spil-
aðir alltaf af svo mikilli innlifun og
það var alltaf fjör í kringum þig.
Það er svo margt annað sem hægt
væri að telja upp, en nú er komið það
helsta.
Elsku afi við þökkum fyrir öll þau
ár sem við fengum að njóta með þér
og allar þær minningar sem við eig-
um um þig. Við elskum þig svo mikið
og söknum þín svo sárt.
Kveðja,
Anna Lilja og fjölskylda.