Morgunblaðið - 24.02.2010, Page 25
Dagbók 25
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. FEBRÚAR 2010
Sudoku
Frumstig
7 4 3 1
1 2 9
2 7 5
3 4 5
3 2
4 9 2
7 1
9 7
5 8 4
8 9
4 5 6 7
6 9 2
6
2 4 8
7 5
7 9 6 4
1
9 1 8 5
5 1 8 3
3 9 7 6
7 8
1 3 2
7 5 9
2 6
2 8 3
8 9 5 1
3 6 2 7 9 8 1 5 4
4 1 9 6 5 2 8 3 7
8 5 7 3 1 4 6 9 2
1 2 6 5 7 3 4 8 9
7 3 8 1 4 9 5 2 6
9 4 5 8 2 6 7 1 3
5 9 4 2 8 7 3 6 1
2 8 3 4 6 1 9 7 5
6 7 1 9 3 5 2 4 8
1 2 5 6 9 7 3 8 4
8 9 6 3 4 2 1 5 7
3 4 7 1 8 5 9 6 2
7 1 4 8 2 3 5 9 6
2 8 3 5 6 9 7 4 1
5 6 9 4 7 1 2 3 8
9 5 8 7 1 6 4 2 3
4 7 2 9 3 8 6 1 5
6 3 1 2 5 4 8 7 9
3 2 6 4 7 1 8 9 5
7 9 4 5 8 3 2 6 1
1 5 8 2 6 9 7 3 4
9 6 2 1 3 5 4 7 8
4 7 3 8 2 6 1 5 9
8 1 5 7 9 4 3 2 6
6 3 7 9 1 8 5 4 2
2 4 1 6 5 7 9 8 3
5 8 9 3 4 2 6 1 7
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að
gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og
lóðrétt birti einnig tölurnar
1-9 og aldrei má tvítaka
neina tölu í röðinni.
Í dag er miðvikudagur 24. febrúar,
55. dagur ársins 2010
Orð dagsins: Ég lít svo á, að ekki séu
þjáningar þessa tíma neitt í saman-
burði við þá dýrð, sem oss mun opin-
berast. (Rm. 8, 18.)
Víkverji fékk nýverið kennslu-stund í samningatækni. Honum
var sögð saga, sem bandaríski lög-
fræðingurinn Lee Buchheit á að
hafa sagt til þess að lýsa því hvernig
hann hygðist nálgast viðræður við
Breta og Hollendinga um Icesave.
Pólskur bóndi skuldaði bóndanum á
næsta bæ tíu þúsund evrur og átti að
borga skuldina næsta dag. Vandinn
var sá að hann átti ekki fyrir skuld-
inni og var því nokkuð órótt. Um
nóttina gat hann ekki sofið heldur lá
og bylti sér fram og tilbaka í rúminu.
Á endanum var konu hans nóg boðið
og hún spurði hvað gengi eiginlega
á. Sagði bóndinn þá konu sinni alla
sólarsöguna af því að hann skuldaði
bóndanum á næsta bæ tíu þúsund
evrur, skuldina ætti hann að greiða
næsta dag, en hann ætti ekki pen-
ingana. Konan opnaði gluggann og
æpti og kallaði þar til kviknaði ljós í
glugga á næsta bæ. „Bóndi minn
skuldar þér tíu þúsund evrur,“ hróp-
aði hún. „Hann á að borga þér á
morgun. Ég ætla bara að láta þig
vita það að hann á ekki tíu þúsund
evrur og þess vegna mun hann ekki
geta borgað þér á morgun.“ Síðan
lokaði konan glugganum og fór aftur
upp í rúm. „Hverju erum við nú
bættari?“ spurði bóndinn forviða.
„Nú getur þú farið að sofa og bónd-
inn á næsta bæ bylt sér í rúminu það
sem eftir lifir nætur.“
x x x
Sá sem hefur sama umhverfiðdaglega fyrir augum tekur síður
eftir hægfara breytingum en sá sem
sjaldnar er á ferðinni. Víkverji
ræddi í vikunni við blaðamann frá
Evrópu, sem nokkrum sinnum hefur
komið til Íslands á undanförnum ár-
um. Hann upplifði Ísland á meðan
allt lék í lyndi, kom til landsins í
hruninu og nú var hann hér enn á
ferð. Hans tilfinning var sú að nú
væri mun meira að gerast en rétt
eftir hrunið, Reykjavík væri ekki
lengur eins og framkvæmd, sem allir
iðnaðarmennirnir hefðu hlaupið frá í
skyndingu, og í miðbænum mætti
sjá nýja veitingastaði. Glöggt er
gests augað, segir orðtakið og það er
ástæða fyrir því. víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 vinna, 4 girð-
ing, 7 þjálfun, 8 megnar,
9 beita, 11 sleif, 13 skít-
ur, 14 brjóstnál, 15
himna, 17 jörð, 20 bók-
stafur, 22 aldursskeiðið,
23 mannsnafn, 24 áma,
25 á næsta leiti.
Lóðrétt | 1 grenja, 2
ljóma, 3 smáalda, 4 not,
5 valska, 6 sér eftir, 10
spil, 12 elska, 13 gyðja,
15 stinn, 16 hakan, 18
snákar, 19 blundi, 20
ljúka, 21 úrkoma.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 gjafmildi, 8 sóðar, 9 uggur, 10 iðn, 11 akrar, 13
nýrun, 15 skömm, 18 hatur, 21 aka, 22 siðug, 23 linna,
24 frelsaður.
Lóðrétt: 2 Júðar, 3 fyrir, 4 Iðunn, 5 dugur, 6 Esja, 7
hrun, 12 aum, 14 ýsa, 15 síst, 16 örður, 17 magál, 18
halda, 19 týndu, 20 róar.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
Skák
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
1. e4 e5 2. Rf3 Rf6 3. Rxe5 d6 4. Rf3
Rxe4 5. d4 d5 6. Bd3 Rc6 7. 0-0 Be7
8. c4 Rb4 9. Be2 0-0 10. Rc3 Bf5 11.
a3 Rxc3 12. bxc3 Rc6 13. He1 He8 14.
cxd5 Dxd5 15. Bf4 Hac8 16. h3 h6 17.
Rd2 Ra5 18. Rf1 Db3 19. Dd2 Rc4 20.
Bxc4 Dxc4 21. Re3 Db5 22. c4 Dd7
23. c5 Bg6 24. Hac1 c6 25. Rc4 f6 26.
Bxh6 gxh6 27. Dxh6 Bh7 28. He3 Bf8
29. Hg3+ Kh8 30. Dxf6+ Bg7 31.
Dg5 Bxd4 32. Hd1 Hf8 33. Kh2 Hcd8
34. Re5 Dc7
Staðan kom upp í A-flokki Corus-
skákhátíðarinnar sem lauk fyrir
skömmu í Wijk aan Zee í Hollandi.
Alexey Shirov (2.723) hafði hvítt
gegn heimamanninum Jan Smeets
(2.657). 35. Hxd4! Hxd4 36. Rg6+
Kg7 37. Rxf8+ og svartur gafst upp
enda fátt sem gleður augað í stöðu
hans.
Hvítur á leik.
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Tvöfaldur öfugur blindur.
Norður
♠ÁK1085
♥G106
♦ÁK4
♣Á9
Vestur Austur
♠DG764 ♠932
♥973 ♥52
♦G5 ♦9876
♣K104 ♣D732
Suður
♠ –
♥ÁKD84
♦D1032
♣G865
Suður spilar 7♥.
„Ég get ekki horft á þetta,“ sagði
norður um leið og hann lagði niður spil-
in sín. Hann hafði hækkað sex hjörtu í
sjö „upp á von og óvon“ og vissi upp á
sig skömmina. „Snúðu þér þá við í sæt-
inu,“ sagði makker hans og tók til
óspilltra málanna.
Útspilið var tromp og sexa blinds
átti slaginn. Fyrsta áætlun sagnhafa
var að fría fimmta spaðann. Hann henti
tveimur laufum í ♠Á-K og stakk spaða
hátt. Fór inn í borð á ♥10 og stakk aft-
ur spaða með hátrompi, en ekki féll lit-
urinn. „Ekki snúa þér við, makker
minn,“ sagði suður eftir nokkra íhug-
un. Fór svo inn í borð á ♦Á og tromp-
aði fimmta spaðann með síðasta hjart-
anu heima. Spilaði laufi á ásinn, tók ♥G
og henti laufi. Þegar ♦G skilaði sér í
kónginn var málið leyst – þrettán slag-
ir með öfugum blindum.
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Þótt þú standir nokkuð vel að vígi
fjárhagslega áttu samt langt í land til að
geta fjárfest í því sem hugur þinn stendur
til. Bíddu með öll stórinnkaup eitthvað
lengur.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Afköst þín vekja undrun og aðdáun
samstarfsmanna þinna. Afbrýðisemi skýt-
ur upp kollinum. Mundu að koma fram við
aðra eins og þú vilt að þeir komi fram við
þig
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Einhver hefur sýnt þér góð-
mennsku alveg að ástæðulausu. Ef þú lifir
of hratt færðu að kenna á því seinna meir.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Þú vilt geta trúað á betri framtíð.
Vandaðu því vel mál þitt svo að ekki þurfi
að koma upp misskilningur að ástæðu-
lausu. Kauptu bara brýnustu nauðsynjar.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Þín bíða svo mörg verkefni að það er
ljóst að þú ræður ekki við þau öll í einu.
Trúfesta þín gagnvart vini er aðdáun-
arverð.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Þú nýtur þess að vera í einrúmi í
dag. Fólk undrast þennan áhuga þinn á
góðgerðarmálum. Batnandi manni er best
að lifa.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Nú sér loksins fyrir endann á þeim
erfiðleikum sem þú hefur átt við að stríða.
Tíminn vinnur með þér svo vertu bara ró-
leg/ur.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Þú hefur yndi af skáldsögum
og lætur þig dreyma um að skrifa eina
sjálf/ur. Gefðu þér góðan tíma til und-
irbúnings
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Sannleikurinn er sá að þú ert
ringluð/ringlaður af því þú ert óvenju við-
kvæm/ur fyrir öllu sem fram fer í kring-
um þig. Taktu þér tíma fyrir þig.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Þú getur komist að einhverju
nýju um sjálfa/n þig í samræðum við ein-
hvern náinn þér í dag. Haltu þig á jörðinni
í vissu máli.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Það hjálpar manni oft að finna
sinn innri mann með því hjálpa öðrum á
einhvern hátt. Þú smitar aðra með gleði
þinni.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Það er ekki auðvelt að umgangast
fólk árekstralaust en ef þú telur upp að
tíu þá ertu nokkuð örugg/ur með að ná ár-
angri.
Stjörnuspá
24. febrúar 1630
Skálholtsstaður brann til
kaldra kola. Í eldinum eyði-
lögðust þrettán hús og mikið
af verðmætum munum.
24. febrúar 1847
Bæjarfógetinn í Reykjavík
varaði borgarana við óreglu
og auglýsti: „Þeir sem drekka
og drabba, samt styðja dag-
lega krambúðarborðin, verða
skrifaðir í bók og fá engan
styrk úr fátækrasjóði.“
24. febrúar 1863
Forngripasafn Íslands var
stofnað. Helsti hvatamaðurinn
var Sigurður Guðmundsson
málari. Á fimmtíu ára afmæli
safnsins var nafni þess breytt í
Þjóðminjasafn Íslands.
24. febrúar 1993
Flugskýli Flugleiða hf. á
Keflavíkurflugvelli var form-
lega tekið í notkun. Það var þá
talið stærsta hús í eigu Íslend-
inga, 12.500 fermetrar.
24. febrúar 2006
Framkvæmdir hófust við
hæstu byggingu landsins,
Turninn við Smáratorg í
Kópavogi. Húsið er 20 hæðir
og 78 metra hátt.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist …
Björgvin Haf-
steinn Kristins-
son er sjötugur á
morgun, 25. febr-
úar. Af því tilefni
tekur hann á
móti ættingjum
og vinum á af-
mælisdaginn
milli kl. 17 og 20 í
safnaðarheimili Áskirkju við Vest-
urbrún.
70 ára
INGI Hans Jónsson, ferðamálafrömuður í Grund-
arfirði, er 55 ára í dag. Hann ætlar að gera sér
dagamun og bjóða eiginkonunni Sigurborgu
Kristínu Hannesdóttur á kaffihús í Reykjavík.
„Við fáum okkur væntanlega góða gulrótarköku,“
segir hann og bætir við að nauðsynlegt sé að heim-
sækja höfuðborgarsvæðið öðru hverju.
Ingi Hans veitir meðal annars Sögumiðstöðinni í
Grundarfirði forstöðu, ljósmyndasafni Bærings og
leikfangasafni. Ferðamálafrömuðurinn segir að
hann hafi nóg að gera í vinnunni við að taka á móti
fólki. „Svo er ég með James Bond „showin“ öðru
hverju,“ segir hann og vísar í vinsæla fyrirlestra sína um Vestur-
Íslendinginn William Stevenson, fyrirmynd James Bond, en fyrir ný-
liðin jól kom út diskur, Íslendingurinn óttalausi, sem inniheldur
kanadíska heimildarmynd um kappann og fyrirlestur Inga. Hann seg-
ir að þau hjón þurfi að sinna ýmsum erindum í bænum í dag og svo
haldi hann upp á afmælið með bílnum sínum, þegar hann taki hann út
í vor. „Við erum jafnaldrar og Jagúarinn minn er einn af örfáum í
heiminum. Þetta er djásn sem gaman er að leika sér á á sumrin og
með hækkandi sól fer ég út að aka á jafnaldranum.“ steinthor@mbl.is
Ingi Hans Jónsson ferðamálafrömuður 55 ára
Úti að aka á jafnaldranum
Nýirborgarar
Reykjavík Kári fæddist
26. desember kl. 23.24.
Hann vó 4.350 g og var 54
cm langur. Foreldrar
hans eru Anna Sigurð-
ardóttir og Ásmundur Ás-
mundsson.
Reykjavík Alexander Hafn-
fjörð fæddist 27. desember
kl. 15.49. Hann vó 13 merk-
ur og var 50 cm langur.
Foreldrar hans eru Elísa Ýr
Sigurðardóttir og Haf-
steinn Hafnfjörð Jónsson.
Reykjavík Kristrún Naomi
fæddist 9. nóvember kl.
2.56. Hún vó 3.465 g og var
51,5 cm löng. Foreldrar
hennar eru Lillý Ösp Sig-
urjónsdóttir og Sævar
Mikael Mendes.