Morgunblaðið - 24.02.2010, Page 30
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. FEBRÚAR 2010
Hvað varðar hitt atriðiðsem snýr að magni að-keypts íslensks efnis þá
er gagnrýni á þann þátt hlutur
sem menn hafa kannski farið of
fljótt af stað með vegna þess að
það liggur ekki fyrir hvernig það
verður útfært,“ sagði Margrét
Frímannsdóttir, varaformaður í
Útvarpsráði, í samtali við blaða-
mann Morgunblaðsins í lok jan-
úarmánaðar, spurð að því hvað
henni fyndist um þá hörðu gagn-
rýni sem beinst hefði að Páli
Magnússyni útvarpsstjóra, að
hann væri ekki „maður menning-
arinnar“. Er þar vísað í þær yf-
irlýsingar Páls að skorið yrði nið-
ur í innkaupum á íslenskum
kvikmyndum og framleiðslu á
leiknu, íslensku sjónvarpsefni hjá
RÚV. Kvikmyndagerðarmenn
hafa tekið þessu afar illa og eng-
in furða, þó svo að ekki liggi enn
fyrir hversu harður þessi nið-
urskurður verður.
Einn þeirra sem gagnrýnt hafaPál harðlega fyrir þetta er
Baltasar Kormákur leikstjóri.
Hann mætti í þátt Sölva Tryggva-
sonar á SkjáEinum í síðustu viku
og sagðist mjög ósáttur við yf-
irlýsingu Páls. Það væri fáránlegt
að Páll liti ekki á það sem skyldu
sína að sýna íslenskar kvikmyndir
og jafnframt dapurlegt að sjá
hvernig Sjónvarpið stæði sig í
framleiðslu á innlendu efni, í
samanburði við Stöð 2, og þá sér-
staklega leiknu efni.
,,Þetta er stofnun sem er með
hátt í fimm milljarða í tekjur, þrjá
komma eitthvað í gegnum styrki
og annað í gegnum auglýsingar,
og þeir geta ekki aulast til að
koma með almennilega dagskrá,“
sagði Baltasar. „Þetta er stríð sem
er búið að vera milli íslenskra
kvikmyndagerðarmanna og RÚV,
sem er eiginlega alveg fáránlegt,“
sagði hann einnig og benti á að
danska ríkisútvarpið tæki virkan
þátt í danskri kvikmyndagerð.
RÚV ætti að einhverju leyti að
gegna því hlutverki að breiða út
íslenska menningu. Stöð 2 og
SkjárEinn hefðu gert sér grein
fyrir því að mesta virðið væri í ís-
lenskri dagskrárgerð.
Þetta eru athyglisverðir punkt-ar hjá Baltasar. Afskaplega
lítið hefur komið af leiknu sjón-
varpsefni frá RÚV seinasta árið
eða svo og ef svo fer að RÚV
hættir að kaupa íslenskar kvik-
myndir og framleiða leikna, ís-
lenska þætti þá hafa Stöð 2 og
SkjárEinn vissulega öll vopn á
hendi. Stöð 2 hefur framleitt vin-
sælustu leiknu þætti seinustu
missera, Vakta-þættina og einnig
Rétt, að ekki sé minnst á gam-
anþætti eins og Stelpurnar.
Reyndar hefur Sjónvarpið haldið
sínu striki með hinni sívinsælu
Spaugstofu en gamanþættirnir
Marteinn hafa ekki notið mikilla
vinsælda að því er undirritaður
best veit.
Því er eðlilegt að spyrja hvort
Stöð 2 haldi ekki á lofti leiknu,
íslensku sjónvarpsefni eða muni
gera það næstu misseri eða jafn-
vel ár. Og SkjárEinn hefur verið
býsna ferskur í sinni innlendu
þáttagerð, m.a. framleitt vinsæla
þætti Karls Berndsen, Nýtt útlit,
sinnt tölvuleikjaspilurum með
Game tíví og nú síðast end-
urvakið hinn vinsæla stefnumóta-
þátt Djúpu laugina. Hver veit
nema SkjárEinn fari nú að fram-
leiða leikið, íslenskt efni af
kappi, þ.e. ef peningur er til
þess? SkjárEinn er orðinn að
áskriftarstöð líkt og Stöð 2 og ef
hann hefur rétt úr kútnum ætti
það að vera hægt, ef vilji er fyrir
hendi.
Geta Íslendingar sætt sig viðþað, kreppa eða ekki
kreppa, að hætt verði að sýna ís-
lenskar kvikmyndir og leikna
sjónvarpsþætti í Sjónvarpinu,
stöð sem allir fullorðnir lands-
menn borga háan nefskatt fyrir?
Er ekki eitthvað bogið við það að
ríkisstöð sýni ekki slíkt efni?
Menn túlka skyldur RÚV vissu-
lega misjafnlega en maður þarf
varla að vera löglærður til að sjá
að þetta er eitt af hlutverkum
RÚV eða ætti a.m.k. að vera það.
Getur verið að með þessu út-spili hafi RÚV aukið áskrift-
artekjur hinna stöðvanna, eða
muni auka þær? Hefur fólk efni á
því í kreppunni? Jú, fólk flykkist
í bíó sem aldrei fyrr þannig að
einhver er peningurinn til fyrir
afþreyingunni. Þannig að yfirlýs-
ing RÚV gæti hugsanlega aukið
framleiðslu á leiknu efni hjá hin-
um stöðvunum. Það gæti því ver-
ið eitthvað ferskt á leiðinni. Eða
ekki. helgisnaer@mbl.is
Tækifæri fyrir SkjáEinn og Stöð 2
AF LISTUM
Helgi Snær Sigurðsson
» Getur veriðað með þessu
útspili hafi RÚV
aukið áskriftartekjur
hinna stöðvanna,
eða muni auka þær?
Fangavaktin Síðasta þáttaröðin um Georg Bjarnfreðarson, Daníel og Ólaf
Ragnar naut mikilla vinsælda. Hún var sýnd á Stöð 2 í fyrra.
SÝND Í SMÁRABÍÓI, HÁSKÓLABÍÓI,
REGNBOGANUM OG BORGARBÍÓI
PERCY JACKSON LEGGUR Á SIG MIKIÐ
FERÐALAG TIL AÐ BJARGA HEIMINUM
FRÁ TORTÍMINGU GUÐANNA!
HHH
„Kom mér þægilega
á óvart... Stórfín fjöl-
skylduafþreying.”
T.V. - Kvikmyndir.is
SÝND Í SMÁRABÍÓI, HÁSKÓLABÍÓI, REGNBOGANUM OG BORGARBÍÓI
ÞRIÐJA OG SÍÐASTA MYNDIN
Í MILLENNIUM ÞRÍLEIKNUM
HHH
„Flottur endir á skemmtileg-
um þríleik. Lisbeth Salander
er ein af minnisstæðari kvik-
myndapersónum síðari ára.”
T.V. - Kvikmyndir.is
HHH
Noomi Rapace er sem fyrr
æðisleg í hlutverki Lisbeth
Salander. Stund hefndarinnar
er runnin upp hjá henni og
þegar hún kemst loks í svarta
leðurjakann klárar hún þenn-
an magnaða þríleik með stæl.
ÞÞ Fbl
HHHH
„Percy er fyrst og fremst
skemmtun, afþreying.
Og sem slík virkar hún
afskaplega vel.“
-H.S.S., MBL
Sími 462 3500
Sími 551 9000 Þú færð 5 %
e n d u r g r e i t t
í Regnboganum
Þú færð 5 %
e n d u r g r e i t t
í Regnboganum
Þú færð 5 %
e n d u r g r e i t t
í Regnboganum
Fráskilin... með fríðindum
SÝND Í SMÁRABÍÓI OG HÁSKÓLABÍÓI
SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI
SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI
OG REGNBOGANUM SÝND Í REGNBOGANUM
HHH
-H.S.S., MBL
HHH
T.V. - Kvikmyndir.is
SÝND Í SMÁRABÍÓI
HHH
E. E. - DV
HHH
H.S.S. - MBL
HHH
Loftkastalinn sem hrundi kl. 6 - 9 B.i. 14 ára
Percy Jackson / The Lightning Thief kl. 8 - 10:30 B.i. 10 ára
It‘s Complicated kl. 8 - 10:30 B.i. 12 ára
Nine kl. 8 - 10:30 LEYFÐ
Nikulás litli kl. 6 LEYFÐ
Loftkastalinn sem hrundi kl. 5 - 8 - 11 B.i.14 ára
The Wolfman kl. 8 - 10:30 B.i.16 ára
Percy Jackson / The Ligtning Thief kl. 5:30 B.i.10 ára
It‘s Complicated kl. 8 - 10:35 B.i.12 ára
Mamma Gógó kl. 6 LEYFÐ
Avatar 3D kl. 6 - 9:20 B.i.10 ára
Loftkastalinn sem hrundi kl. 6 - 9 B.i. 14 ára
The Wolfman kl. 10:10 B.i. 16 ára
PJ: The Lightning Thief kl. 8 B.i. 10 ára
Artúr 2 kl. 6 LEYFÐ
HHHHH
„Frábær! 5 stjörnur af fimm.
Noomi Rapace gerir Lisbeth
Salander endanlega ódauðlega.
Maður gleymir Lisbeth aldrei!”
H.K. Bítið á Bylgjunni
Þú færð 5% endurgreitt í Borgarbíói, Smárabíói og Regnboganum og HáATH. ÞRIÐJUDAGSTILBOÐIÐ GILDIR EKKI Í BORGARBÍÓI, LÚXUS, 3-D MYNDIR OG ÍSLENSKAR MYNDIR
VINSÆLASTA MYNDINÁ ÍSLANDI Í DAG!