Morgunblaðið - 24.02.2010, Síða 36
MIÐVIKUDAGUR 24. FEBRÚAR 55. DAGUR ÁRSINS 2010
»VEÐUR mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 350 ÁSKRIFT 3890 HELGARÁSKRIFT 2400 PDF Á MBL.IS 2200
SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT
Morgunblaðið bíður
eftir þér þegar þú
vaknar á morgnana
FÓLK Í FRÉTTUM»
! " #
$ $
!
%& '!& ! (
)*+,-.
)-+,//
)**,00
*/,/1
*),2+0
)+,+1.
))1,+)
),.30-
)-0,1.
)+.,3.
456
4 */" 7585 *3)3
)*1,*0
)-+,1)
)**,-)
*/,..1
*),+/-
)+,1/2
))-,3.
),.)
)-2,.*
)+.,0/
*/3,*-3*
%
9: )*1,02
)-1,*-
)*/,*+
*/,0)2
*),13/
)+,111
))-,/+
),.).)
)-+
)+0,3*
Heitast -2°C | Kaldast -14°C
NA 5-13 m/s en all-
hvasst NV-lands.
Áfram ofankoma á N-
verðu landinu og einn-
ig sums staðar S-lands. »10
Nokkrar tilnefn-
ingar sem gleymd-
ust á Eddunni eru
tilkynntar í blaðinu,
m.a. fyrir krútt árs-
ins. »32
FÓLK»
Nokkrar til-
nefningar
LEIKHÚS»
Clockwork Orange að
hætti Þorleifs. »28
Tríó Nordica fær 3½
stjörnu hjá Ríkarði
Erni Pálssyni fyrir
kammertónleika
sína í Bústaðakirkju
21. febrúar. »29
TÓNLIST»
Faglegur
glæsibragur
KVIKMYNDIR»
Die Hard 5 í pípunum hjá
naglanum Willis. »31
FÓLK»
Winslet er með Óskar á
salerninu. »34
Menning
VEÐUR»
1. Lentu á rangri Kanaríeyju
2. Opna tvær nýjar …
3. Konu bjargað frá pyntingum
4. Vilja að Íslendingar fallist á …
Íslenska krónan hélst óbreytt
»MEST LESIÐ Á mbl.is
Björgvin
Björgvinsson
skíðamaður frá
Dalvík endaði í
43. sæti af 102
keppendum í stór-
svigi karla á vetr-
arólympíuleik-
unum í Vancouver í gær. Carlo
Janka frá Sviss fagnaði gull-
verðlaununum og Norðmaðurinn
Kjetil Jansrud kom verulega á
óvart með því að ná silfrinu. Aksel
Lund Svindal frá Noregi varð
þriðji og eru þetta þriðju verðlaun
hans á ÓL. Björgvin keppir í svigi
á laugardag.
VETRARÓLYMPÍULEIKAR
Björgvin endaði í 43. sæti
í stórsviginu í Vancouver
Nýsköpun í leik-
húsi er yfirskrift
fyrirlesturs sem
Gísli Örn Garð-
arsson leikari og
frumkvöðull flytur
í Háskóla Íslands í
dag. Gísli Örn og
samstarfsfólk hans í Vesturporti
hefur getið sér gott orð fyrir frum-
leika og nýsköpun í leikhúsi og hefur
Gísli Örn leikstýrt og leikið í fjölda
kvikmynda.
Í fyrirlestrinum, sem fram fer í
stofu 101 á Háskólatorgi, mun Gísli
Örn miðla af reynslu sinni og ljóstra
upp leyndarmálinu að baki árang-
ursríkri nýsköpun.
NÝSKÖPUN
Gísli Örn ræðir nýsköpun
í leikhúsi á Háskólatorgi
Bókin Harðskafi
eftir Arnald Ind-
riðason fór í efsta
sæti heildarmet-
sölulista franska
blaðsins L’Express
í liðinni viku, að því
er fram kemur í til-
kynningu fra útgefanda Arnaldar
hér á landi, Forlaginu. Franski út-
gefandinn er sagður svífa skýjum of-
ar yfir þessu en metsölulisti L’Ex-
press er talinn sá virtasti í landinu.
Harðskafi kom út í Frakklandi 8.
febrúar og hefur fengið ágætisgagn-
rýni, m.a. í Le Point og L‘Hebdo.
BÓKMENNTIR
Harðskafi á toppi
metsölulista L’Express
Eftir Unu Sighvatsdóttur
una@mbl.is
„ÞETTA eru ofboðslega falleg tré
sem veita okkur mikið skjól og mikið
prívat. Nú þurfum við bara að fara
að draga fyrir gluggana því það
verður hægt að horfa beint inn til
okkar,“ segir Halla Þorsteinsdóttir,
íbúi við Selvogsgrunn í Reykjavík.
Íbúar í hverfinu eru ósáttir við
framkvæmd á nágrannalóðinni við
Hrafnistu í gær, en þar var röð um
10 metra hárra aspartrjáa höggvin
niður án samráðs við íbúa.
„Þetta er svæði sem Hrafnista á
en íbúar við Selvogsgrunn hafa allt-
af hugsað um, við plöntuðum þess-
um trjám á sínum tíma og það hefur
alltaf verið samkomulag um að það
fengi að vera gróður á þessu svæði
því það er svo nálægt okkar bak-
görðum.“
Byrgðu íbúum Hrafnistu sýn
Halla segir að trjábeltið sé nánast
orðið hluti af garðinum við sum hús
þar sem engin girðing er. Nágrann-
ar hafi séð um umhirðu á svæðinu,
s.s. að tína rusl og dauðar greinar og
slá grasið á meðan þess þurfti. Mikil
eftirsjá verði að öspunum í heild-
armynd hverfisins.
„Þessar aspir eru hátt í 30 ára
gamlar, þeim var plantað eitthvað
fyrir 1980. Svo vöknum við bara upp
við það núna að það er verið að fella
þær og enginn hefur talað við
neinn.“
Eins og áður segir tilheyra
aspirnar lóð Hrafnistu sem telst því
hafa fulla heimild til að saga trén
niður þrátt fyrir óánægju nágranna.
Guðmundur Hallvarðsson, stjórn-
arformaður Hrafnistu, segir að
ákveðið hafi verið að fjarlægja
aspirnar vegna þess að þær byrgðu
íbúum Hrafnistuheimilanna sýn.
„Við erum bara að hugsa um okk-
ar skjólstæðinga hér á Hrafnistu og
að þeir njóti þessa glæsilega, fagra
útsýnis yfir Örfirisey og Engey og
út á flóann,“ segir Guðmundur.
Hann bendir á að ekki sé ein-
hugur meðal íbúa hverfisins um
ágæti aspanna, því frá íbúum Brúna-
vegar hafi Hrafnistu borist kvart-
anir yfir öspunum á lóðinni þar sem
þær byrgi sýn. „Þetta er bara lóð
Hrafnistu og við unum því ekki að
þar standi hálfgert illgresi,“ segir
Guðmundur.
Því hafi ekki komið til greina að
grisja trén, en hinsvegar sé stjórn
Hrafnistu opin fyrir því að planta
einhverju í staðinn. „Við erum alveg
tilbúin að ræða við íbúana um að
fegra þetta bil sem að þeim snýr og
planta einhverju aðeins lágvaxnara.“
„Nú þurfum við að fara
að draga fyrir gluggana“
30 ára gamlar
aspir fjarlægðar
við Hrafnistu
Morgunblaðið/Ernir
Skjólbelti Íbúum Selvogsgrunns brá við þegar stórvirkar vinnuvélar fjarlægðu hin 30 ára gömlu aspartré í gær.
ÍSLENSKT framleiðslufyrirtæki á sviði sjón-
varpsþáttagerðar, Icelandic Cowboys Entertain-
ment, hefur öðlast rétt á því að endurgera fjölda
erlendra og vinsælla sjónvarpsþátta fyrir ís-
lenskan markað, með samstarfi við belgískt fyr-
irtæki í sömu grein, BgoodMedia.
Í sjónvarpsheimum er talað um „formöt“ að
þáttum og má sem dæmi um slíkt nefna Viltu
vinna milljón? og X-Factor, þ.e. vinsæla þætti
sem verður að framleiða eftir ákveðinni forskrift
frá upphaflegum höfundum.
Heimir Jónasson, stofnandi og framkvæmda-
stjóri Icelandic Cowboys, segir ákveðinn sparn-
að fólginn í því að vera í samskiptum við fram-
leiðendur formatþátta sem hafi verið sendir út á
öðrum mörkuðum og dýrmætt að fá leiðbein-
ingar frá þeim við þáttagerð hér á landi. | 28
Sparnaður í
„formötum“
ÍSLENSKA hljóðlistakonan Gunnlaug Þorvalds-
dóttir vann hljóð og tónlist fyrir stuttmyndina I
Do Air sem valin var besta stuttmynd bresku
kvikmyndaverðlaunanna, Bafta. Leikstjóri mynd-
arinnar er vinkona Gunnlaugar, Martina Amati.
„Myndin er aðeins sjö mínútur og því var þetta
aðallega að búa til réttu stemninguna undir
ákveðnum senum. En lokalagið, „I Do Wish“,
dreymdi mig á Íslandi áður en myndin fór í tök-
ur,“ segir Gunnlaug um verkefnið.
Gunnlaug segist taka Bafta-verðlaunin sem
hrós til sín þar sem heildarmyndin, hljóð jafnt
sem annað, verði að vera góð til að stuttmynd
vinni til slíkra stórverðlauna. | 33
Bafta-verðlaun gott hrós
Vann hljóð og tónlist
við verðlaunastuttmynd
I Do Air Í stuttmyndinni segir frá lítilli stelpu og
ó́tta hennar við að hoppa út í sundlaug.