SunnudagsMogginn - 05.12.2010, Blaðsíða 10

SunnudagsMogginn - 05.12.2010, Blaðsíða 10
10 5. desember 2010 M ér finnst eitt af verri „floppum“ þessarar ríkisstjórnar sem nú ræður ríkjum og kennir sig gjarnan við nor- ræna velferðarstjórn vera stjórnlagaþingið, sem kosið var til fyrir réttri viku. Leikurinn er augljóslega gerð- ur til þess að dreifa athygli þjóðarinnar frá vandræðagangi rík- isstjórnarinnar og getuleysi hennar til þess að taka á þeim málum sem skipta allan almenning svo miklu meira máli. Maðurinn sem fékk bestu kosninguna, þar sem einungis 35,95% kosningabærra manna nýttu atkvæðisrétt sinn, hlaut 7.192 atkvæði í 1. sætið eða 8,6% fylgi þeirra sen kusu en einungis 3,2% sé miðað við þann fjölda sem var á kjörskrá. Þetta var Þorvaldur Gylfason prófessor. Salvör Nordal heim- spekingur lenti í öðru sæti hlaut 2.482 atkvæði, eða 3% fylgi. Það voru 232.374 einstaklingar á kjörskrá, svo það verður nú varla annað sagt en þjóðin hafi hafnað þessu helsta „beibíi“ Jó- hönnu Sigurðardóttur forsætis- ráðherra og þeirri röksemd að stjórnarskráin sé helsti söku- dólgur bankahrunsins, enda hefur Jóhanna ekki sagt stakt orð um stjórnlagaþingskosn- inguna og þátttökuleysi þjóð- arinnar í þeirri kosningu. Mér finnst stjórnarskrá ís- lenska lýðveldisins ágætis plagg. Ég er sannfærð um að það er ekki við það plagg að sakast, þegar leita á sökudólganna sem ollu hruninu. Hvers vegna eru menn að berja höfðinu við stein? Er ekki kominn tími til þess, nú tveimur árum og tveimur mánuðum eftir hrun, að menn við- urkenni það í eitt skipti fyrir öll, að það voru bankarnir sjálfir, stjórnendur þeirra og eigendur, með óábyrgum rekstri, gífurlegri skuldsetningu og taumlausri græðgi, sem settu bankana á hausinn? Ég held að ef við getum horfst í augu við þá staðreynd, sé meiri möguleiki á því fyrir okkur, hina hnípnu þjóð, að horfa fram á veg- inn og hefjast handa við þá uppbyggingu sem hér bíður okkar. Þótt ég segi að stjórnarskráin sé hið ágætasta plagg er ekki þar með sagt að ekki megi skýra ýmislegt sem í henni er og sníða af ein- hverja skavanka. En því fer fjarri, miðað við núverandi aðstæður í íslensku efnahags- og atvinnulífi, að ég telji að slíkt verk sé eitt af forgangsverkefnum þjóðarinnar. Reyndar kom á daginn fyrir viku að meirihluti þjóðarinnar er sömu skoðunar. Ég kaus til stjórnlagaþings og ég notaði hvern einasta reit. En þar sem ég er aðeins í hópi tæplega 36% kosningabærra manna geri ég enga kröfu til þess að það þing sem ég átti þátt í að kjósa hafi eitt- hvert umboð. Þetta stjórnlagaþing, sem átti jú aldrei að vera annað en ráðgefandi og niðurstöður þess koma svo til umfjöllunar hjá Al- þingi, sem fer með réttinn til þess að breyta stjórnarskránni, er vita umboðslaust og hljóta niðurstöður þess að verða skoðaðar í því ljósi. Að vísu fannst mér ágætt að þessi kosning leiddi í ljós hvers konar gallar eru á því fyrirkomulagi sem ákveðið var að hafa við kosn- inguna. Það er náttúrlega fáránlegt að af 25 manna hópi skulu ein- ungis þrír einstaklingar utan af landi ná kjöri. Það gengur vitanlega aldrei upp að 23 manna hópur af höfuðborgarsvæðinu, sem auk- inheldur er einsleitur hópur háskólamanna, álitsgjafa og fjölmiðla- manna, fái umboð til þess að semja nýja stjórnarskrá. En ég óska tuttuguogfimm-menningunum alls hins besta í starfi sínu. Ég vona svo sannarlega að sú ráðgjöf sem hópurinn bræðir saman og afhendir svo Alþingi, gangi út frá því að standa vörð um okkar ágætu stjórnarskrá og sníða af henni helstu vankanta. Ekki get ég sagt að ég hafi fyllst bjartsýni á að svo geti orðið þegar ég horfði og hlýddi á Þorvald Gylfason í Kastljósi Sjónvarpsins á þriðjudagskvöld. Hann hlýtur að telja að hann sé hið augljósa for- setaefni stjórnlagaþingsins, með meira en helmingi fleiri atkvæði í fyrsta sæti en Salvör Nordal. Þorvaldur er ekki að boða neina smá- vægilega endurskoðun, heldur byltingarkennda og nýja stjórn- arskrá. Hann hefur séð ljósið í stjórnarskrá Suður-Afríku og vill leita þangað í smiðju. Og hann vill ekki einu sinni að Alþingi fjalli um ráðgjöf stjórnlagaþings, heldur semji stjórnlagaþingið nýja stjórnarskrá. Þessi hugmynd samræmist ekki stjórnarskrá okkar og er því, sem betur fer, sjálfdauð. Þess vegna er ég þakklát fyrir um- boðsleysi stjórnlagaþingsins. Hreinn skrípaleikur Agnes segir Agnes Bragadóttir agnes@mbl.is Þorvaldur Gylfason Jóhanna Sigurðardóttir ’ Stjórnlaga- þingið er vita umboðslaust og hljóta niðurstöður þess að verða skoð- aðar í því ljósi. 07.00 Morgunganga um Laugardalinn með hundinum. Hugsaði um verkefni dagsins, en 1. desember er ávallt mjög við- burðaríkur í mínu starfi. 07.45 Spjallaði aðeins við Auði og Brynjar 15 ára, sem voru á leið í skólann. Spennandi dag- ur framundan hjá þeim, enda hæfileikakeppnin Flemmið á dagskrá í kvöld. Þar ætlaði Brynjar, ásamt félaga sínum, að flytja frumsamið lag á gítarinn. 08.30 Stjórnarfundur Unicef með skemmtilegu fólki. Fram- undan er Dagur rauða nefsins er, sem er söfnunarátak UNICEF. 10.00 Hitti samstarfsfólk mitt í Vesturvör í Kópavogi þar sem safnkostur Þjóðminjasafns- ins er varðveittur. Afhenti þar gamalt olíumálverk, sem vel- unnari safnsins færði safninu daginn áður. 11.00 Athöfn á Bessastöðum. Tekið við höfðinglegri gjöf til Þjóðminjasafns Íslands og Bessastaða. Um er að ræða skrif- púlt Sveinbjarnar Egilssonar skálds og þýðanda. Við það voru Hómerskviður þýddar og text- inn Heimsumból skrifaður, svo eitthvað sé nefnt. 12.00 Kom aðeins við í Bíó Paradís, þar sem birtar voru niðurstöður rannsóknarverk- efnisins þar sem fram kemur að skapandi greinar eru einn af undirstöðuatvinnuvegum þjóð- arinnar. 12.30 Fundur í Laugarnes- kirkju, sem nýlega var friðuð ásamt Laugarnesskóla. 13.00 Heilsaði aðeins upp á móður mína á vinnustað hennar við Þjónustuíbúðir aldraðra við Dalbrautina og skoðaði þar fallega sýning á athyglisverðu jóla- handverki. 13.30 Komin á skrifstofuna og náði góðri törn við tölvuna, af- greiddi mörg erindi, gekk frá mánaðarlegum pistli, Þönkum um þjóðminjar, fyrir helgarblaðið og fór einnig yfir nokkrar greinar, sem unnið er að vegna vænt- anlegra sýninga í safninu. Náði einnig að huga að fundargögnum vegna funda morgundagsins. Fékk tvær góðar heimsóknir og fór yfir mál. 15.00 Fór yfir í safnhúsið og gekk í gegnum sýningarsalina. Það er orðið jólalegt í safninu og koma hinna einu sönnu jólasveina undirbúin! Hitti marga á kaffihúsi safnsins og spjallaði við marga. 16.00 Mætti á hátíðleg athöfn í Þjóðmenningarhúsinu þar sem afhentir voru styrkir út Þjóðhá- tíðarsjóði. Var afar þakklát fyrir hönd Þjóðminjasafnsins sem fékk fjóra veglega styrki til verðugra verkefna. 17.30 Mætt á athöfn í Lista- safni Íslands þar sem kynntar voru tilnefningar til Íslensku bókmenntaverðlaunanna. Ein af bókum Þjóðminjasafnsns þetta árið, Sögustaðir, Í fótspor W.G. Collingwood – eftir Einar Fal Ingólfsson, var tilnefnd í flokki fræðirita, sem gefin eru út í tengslum við samnefnda sýningu í Bogasal safnsins. Þjóðminjasafnið gefur bókina út í góðri samvinnu við Crymo- gea. 19.00 Naut þess að koma heim eftir annasaman dag. Kvöldmaturinn borðaður á hlaupum, börnin á leið í hæfi- leikakeppnina. Elsta dóttirin Arndís í heimsókn, en hún er í miðjum próflestri í lyfjafræði, svo ég lét lítið fyrir mér fara og kíkti yfir til vina í næstu hús í kaffi. 22.00 Tvíburarnir komin heim alsæl eftir hæfileika- keppnina og Brynjar með stór- an farandbikar eftir sætan sig- ur. 23.00 Spjallaði aðeins á skype við næstelstu dótturina Kolbrúnu, sem er í myndlist- arnámi í New York. Gott að heyra að vel gangi í stórborg- inni. Ræddum góða stund um niðurstöður skýrslunnar, sem kynnt var í Bíó Paradís. Vorum sammála um að skapandi greinar og menning eru undir- staðan þegar öllu er á botninn hvolft. Morgunblaðið/Kristinn Dagur í lífi Margrétar Hallgrímsdóttur, þjóðminjavarðar Annir 1. desember Fáir núlifandi menn njóta meiri lýðhylli í Argentínu en knatt- spyrnugoðið Diego Armando Mara- dona. Gildir þá einu hvar í valda- stiganum menn standa. Það kom glögglega fram á kosningafundi forseta landsins, Cristinu Fern- ández de Kirchner, á föstudag þegar hún smellti rembingskossi á goðið. Veröldin Reuters Goðið kysst
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.