SunnudagsMogginn - 05.12.2010, Blaðsíða 32

SunnudagsMogginn - 05.12.2010, Blaðsíða 32
32 5. desember 2010 Þar sem fossarnir falla – Náttúrusýn og nýting fallvatna á Íslandi 1900-2008 Unnur Birna Karlsdóttir Hið íslenska bókmenntafélag Doktorsnemi í sagnfræði sem hikar ekki við að stinga sér í ljónagryfju á heiður skilinn fyrir hugrekkið. En Unnur Birna Karlsdóttir gerir enn betur, þessi stytta útgáfa af ritgerð hennar er fagmannlega unnin úttekt á deilunum um virkjun fallvatna landsins síðustu hundrað árin, deilur þar sem tilfinningar okkar leika ekki minna hlutverk en tölurnar. Kristján Jónsson Stormurinn – Reynslusaga ráðherra Björgvin G. Sigurðsson Nýtt land Frá því að bankakerfið hrundi haustið 2008 hefur Björgvin G. Sigurðsson, sem þá var viðskiptaráðherra, barist fyrir pólitísku lífi sínu. Bók hans Stormurinn er að nokkru leyti liður í þeirri baráttu og verður að skoða hana sem slíka. Fyrir áhugamenn um samtímasögu er jákvætt að þeir sem tóku þátt í atburðarásinni segi sögu sína því þó að saga þeirra verði alltaf einhliða frásögn um hvernig þeir sáu atburðina gerast er ávinningur fyrir sagnfræðinga framtíðarinnar að geta leitað í slíkar heimildir. Það verður þó að segjast að frásögn Björgvins bætir furðulega litlu nýju við það sem þegar hefur komið fram um hrunið. Egill Ólafsson Takk útrásarvíkingar Lára Björg Björnsdóttir Sena Pistlarnir eru margir alveg ljómandi fínn afþreyingarlestur en í bókinni fer hún á þvílíkt flug að manni verður nóg um. Ýkt kaldhæðnin og stælarnir, sem birtast til dæmis í sífelldum framíköllum, ávörpum og útskýringum innan sviga, fá mann helst til að halda að bókin sé í heild sinni einhver brandari. Lára veður úr einu í annað og þrátt fyrir að hitta oft naglann á höfuðið á skemmtilegan hátt fer hún hreinlega offari. Hún minnir helst á óþolinmóðan ungling og mér varð raunar hugsað til dagbókaflokks Berts þegar ég las Takk útrásarvíkingar; heimurinn hreinlega snýst um Láru og allt er annaðhvort glatað eða geggjað. Hólmfríður Gísladóttir Brasilíufanginn Jóhannes Kr. Kristjánsson Sena Textinn er ágætur og svo sem ekki yfir miklu að kvarta. Nokkuð um innsláttarvillur sem skipta þó varla sköpum, en segir sitthvað um prófarkalesturinn. Bókin er auðlesin og segja má að með lestrinum bregði lesandinn sér í brasilískt fangelsi í einn dag og hefur af því gott og gaman. Eflaust hefur bókin þá mikið fordæmisgildi ef á dagskrá er að flytja kókaín milli landa. Andri Karl Stelpur! Kristín og Þóra Tómasdættur Veröld Stelpur! er góð og uppbyggileg bók. Það gladdi mig sérstaklega hvað tilfinningum og samskiptum er gefið mikið svigrúm og fjallað á uppbyggilegan hátt um mikilvægi góðrar sjálfsmyndar og félagsskapar. Bókin er áminning um að það er ekkert auðvelt að vera unglingur en að sama skapi eru til ótal leiðir og lausnir. Hólmfríður Gísladóttir Nytjabækur Jólabækurnar Helgi Jónsson sendi á dög- unum frá sér fimmtándu Gæsahúðarbók- ina. Spurt er: Af hverju finnst þér svo gaman að hræða börnin? „Fátt er skemmtilegra, allt að því notalegra, en að hjúfra sig saman inni í hlýjunni og lesa spennandi bók og láta hrollinn læsast um sig innan frá. Bókstaflega fá gæsahúð. Börn eru alveg sérlega næm og það er heldur ekki til of mikið af hressi- legu spennuefni handa þeim. Gæsahúð spratt fram fyrir tilviljun, börnin kunnu að meta hana og vildu meira. Það gladdi mig og hvatti mig til að halda áfram.“ Hressileg spenna Helgi Jónsson É g lagði upp með það að bókin byggðist frekar upp á samtölum og þankagangi en venjulegum söguþræði,“ segir Yrsa Þöll Gylfadóttir um fyrstu skáldsögu sína, Tregðulögmálið, í samtali við Morg- unblaðið. „Ég hef skrifað lengi og oft verið komin lang- leiðina að einhverju sem ég hélt að yrði skáldsaga en ekkert orðið af útgáfu. Hver veit, kannski má að einhverju leyti þakka það að ég fékk kjarkinn til að gefa út að ég er komin inn í tengda- fjölskyldu þar sem fólk gefur út bækur eins og ekkert sé!“ Gunnar Theodór Eggertsson rithöf- undur er unnusti Yrsu Þallar og tengdamóðir hennar er Þórunn Erlu-Valdimarsdóttir sagn- fræðingur og rithöfundur. Yrsa Þöll segist hafa skrifað töluvert í gegnum tíðina, bæði sögur og ljóð, og birt á meðan hún var í menntaskóla en gera má ráð fyrir því að tímafrekt nám sé ein ástæða þess að hún hefur ekki sent frá sér bók fyrr en nú. Hún er með BA próf í frönskum bókmenntum og málvísindum frá Sorbonne í París og MA próf í frönsku frá Há- skóla Íslands. Nú er hún byrjuð í doktorsnámi sameiginlega frá Sorbonne og HÍ en segist samt ákveðin í að gefa sér tíma til skrifta. „Ég verð að skipuleggja mig vel en er með stanslausa sektarkennd ef ég er að skrifa handrit í staðinn fyrir að læra. Það er samt gott að sumu leyti að gera þetta samhliða. Maður fær allskonar hugmyndir af því sem maður les í náminu, það sígur inn í undirmeðvitundina og verður einhvers konur fóður fyrir hugann.“ Bókin er ekki hefðbundin að því leyti að í sög- unni er ekki sú algenga uppskrift, kynning, flækja og lausn. „Þær slæddust stundum inn í handritið, flækjurnar og lausnirnar, en svo hreinsaði ég þær markvisst í burtu, mér fannst þetta ekki vera þannig saga. Það var ekki mein- ingin að gera handritið torræðara en ég var með- vituð um að vilja ekki detta ofan í klisjur. Mér fannst handritið hreinna og fallegra í einfaldleika sínum.“ Foreldrar Yrsu Þallar lásu bókina yfir áður en hún afhenti hana til útgáfu og voru mjög hrifin, „en voru að sjálfsögðu hlutdrægir gagnrýnendur. Pabbi tók svo til orða að þetta yrði ekki met- sölubók, en mamma sagði að þetta væri bók fyrir hugsandi einstaklinga.“ Viðbrögð við Tregðulögmálinu hafa verið blendin,Yrsa Þöll segist hafa fengið góð viðbrögð frá langflestum og hrós frá þekktu fólki innan rit- höfundageirans, en gagnrýni í blöðum hefur ver- ið misgóð. „Maður tekur það nú ekki nærri sér, en finnst það að sjálfsögðu skrítið þegar einhver dæmir bókina út frá því hvernig honum fyndist hún hefði átt að vera en ekki hvernig hún er. Ætli íþróttauppeldið hjálpi mér ekki bara, en ég var lengi í fótbolta. Manni er kennt að halda haus þegar maður fær á sig mark. Maður má ekki gef- ast upp.“ Yrsa Þöll, Gunnar Theodór, Þórunn og Megas halda sameiginlegan útgáfufögnuð á Kaffi Rósen- berg í kvöld, sunnudag, kl. 20, þar sem þau lesa upp úr nýútkomnum bókum sínum og leika tón- list. Yrsa Þöll Gylfadóttir Morgunblaðið/Eggert Fyrir fallega hugsandi Tregðulögmálið er fyrsta skáld- saga Yrsu Þallar Gylfadóttur. Þetta er saga um vit- undarvakningu ungrar háskóla- stúlku og er fremur óhefð- bundin í upp- byggingu. Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is „Skemmtileg bók“ EINAR KÁRASON SÞH / MBL „Óskar Magnússon skrifaði í laumi þar til hann gaf frá sér skemmtilegt safn af smásögum fyrir fáum árum … Nú hefur [hann] bætt við öðru safni sem ekki er síðra … Óskar hefur stílgáfu …“ PBB / FT
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.