SunnudagsMogginn - 05.12.2010, Blaðsíða 53
5. desember 2010 53
LISTASAFN ÍSLANDS
Söfn • Setur • Sýningar
KARL KVARAN 17.11. 2010 - 13.2. 2011
SUNNUDAGSLEIÐSÖGN, 5. des. kl. 14. Í NÝJU LJÓSI
Halldór Björn Runólfsson fjallar um list Karls Kvaran og áhrif hans
á íslenska myndlist fyrr og síðar.
ÁFANGAR, verk úr safneign 16.5. 2010 - 31.12. 2012
SAFNBÚÐ Listasafns Íslands
LAGERÚTSALA á listaverkabókum og gjafakortum.
Allt að 70% afsláttur.
Ókeypis aðgangur í safnið alla miðvikudaga.
Fríkirkjuvegi 7, 101 Reykjavík, sími 515 9600
OPIÐ daglega kl. 11-17, lokað mánudaga
Allir velkomnir! www.listasafn.is
ÞJÓÐMENNINGARHÚSIÐ
Handritin – Saga þeirra og hlutverk um aldir.
ÍSLAND::KVIKMYNDIR 1904-2009. Þróun kvikmyndagerðar á Íslandi.
Um 100 íslenskar kvikmyndir, sem hægt er að skoða í fullri lengd.
„Íslendingar“. Ljósmyndasýning Sigurgeirs Sigurjónssonar
og Unnar Jökulsdóttur. Þjóðarsálin fönguð í myndum og texta.
Í ljósi næsta dags. Sýning um þýðingarstörf, skáldverk og baráttumál
Sigurðar A. Magnússonar, rithöfundar.
Sýningin Guðmundur og Samarnir.
Málverk Guðmundar Einarssonar frá Miðdal úr ferðum hans
um lönd Sama í Finnlandi og munir tengdir menningu þeirra.
ÞJÓÐMENNINGARHÚSIÐ, Hverfisgötu 15, Reykjavík
Opið daglega kl. 11.00-17.00. www.thjodmenning.is
NÝLISTASAFNIÐ
Bjarni H. Þórarinsson
Sjónþing: Upprifjun og yfirlit
Sýningin á verkum Bjarna H. Þórarinssonar stendur til 5. des. 2010
Sunnudaginn 28. nóvember kl. 15 verða Bjarni H. Þórarinsson og
Jón Proppé, listheimspekingur, með spjall og leiðsögn um sýninguna.
Föstudaginn 10. desember kl. 17 opnar stuttsýningin TÍMI;
sýning átta lokaársnema í Myndlistardeild Listaháskóla Íslands.
Sýningin er einnig opin laugardaginn 11. desember kl.15-18.
Nýlistasafnið er lokað frá 12. desember 2010 til 8. janúar 2011.
Opið þriðjudag - sunnudags kl. 12-17 og eftir samkomulagi
Aðgangur er ókeypis og allir eru velkomnir.
www.nylo.is, nylo@nylo.is, Skúlagötu 28, 101 Reykjavík
Listasafn Reykjanesbæjar
TÓMT – J.B.K.Ransu
“Að ramma inn tómt”
Byggðasafn Reykjanesbæjar:
Völlurinn
Bátasafn Gríms Karlssonar:
100 bátalíkön
Opið virka daga 12.00-17.00
helgar 13.00-17.00
Aðgangur ókeypis
reykjanesbaer.is/listasafn
VÍKINGAHEIMAR
Skipið Íslendingur og
sögusýning
- Söguleg skemmtun
VÍKINGABRAUT 1
- REYKJANESBÆ
Opið alla daga
frá 11:00 til 18:00
Sími 422 2000
www.vikingaheimar.com
info@vikingaheimar.com
„SIGGA HEIMIS“
11.9.2010 - 30.1. 2011
Fyrirlestur á aðventu: 5. des.
kl. 14. Húsgagna- og vöruhönnun,
Elísabet V. Ingvarsdóttir.
Opið alla daga nema mánudaga
kl. 12-17.
Verslunin Kraum í anddyri
og kaffiveitingar.
Garðatorgi 1, Garðabær
www.honnunarsafn.is
Listasafn Kópavogs
Gerðarsafn
Veiðimenn Norðursins
Andlit Aldanna
Ljósmyndir Ragnars Axelssonar
Sýningin stendur til 30.12.2010
Ókeypis aðgangur
Safnið er opið kl. 11-17
alla daga nema mánudaga
www.gerdasafn.is
ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS
LISTASAFN ASÍ
27. nóv. til 19. des. 2010
Þar spretta laukar
Áslaug Thorlacius, Finnur Arnar
Arnarson, Salvör, Kristján,
Hallgerður og Helga Thorlacius
Finnsbörn búa með fjölskyldunni í
safninu
Safnið er opið 13-17
alla daga nema mánudaga
Aðgangur ókeypis
Freyjugötu 41, 101 Rvk
www.listasafnasi.is
GEYSISSTOFA –
MARGMIÐLUNARSÝNING
Í nútímalegu margmiðlunar-
safni á Geysi er að finna
margskonar fróðleik um
náttúru Íslands.
OPIÐ: alla daga 10.00-17.00.
AÐGANGSEYRIR: 1.000 KR.
Afsláttur fyrir námsmenn,
eldri borgara og hópa
Geysir í Haukadal, sími 480 6800
www.geysircenter.is
Jólin koma!
Jóladagskrá sunnudaginn 5. desember kl. 14-16
Grýla, Leppalúði og jólakötturinn
Pollapönkararnir • Jólasýningar • Jólaratleikur
Ókeypis aðgangur og allir velkomnir
Fjölbreyttar sýningar fyrir alla fjölskylduna!
Jólavörurnar komnar í safnbúð
Þjóðminjasafn Íslands, Suðurgötu 41, s. 530 2200,
www.thjodminjasafn.is, thjodminjasafn@thjodminjasafn.is
Þjóðleg fagurfræði
12 listamenn – tvennra tíma
Kaffistofa
leskró - leikkró
OPIÐ: fi.-su. kl. 12-18
AÐGANGUR ÓKEYPIS
www.listasafnarnesinga.is
Hveragerði
30. október – 2. janúar 2011
Gjörningaklúbburinn - TIGHT
Eggert Pétursson - Málverk
Laugardag 4. desember
– Syngjandi jól kl.10-18
Sýningar Hafnarborgar
lokaðar þann dag.
Opið 12-17, fimmtudaga 12-21,
lokað þriðjudaga
www.hafnarborg.is
sími 585 5790
Aðgangur ókeypis
S
ögusvið bókarinnar
Martröð millanna
eftir Óskar Hrafn Þor-
valdsson er í æsilegri
kantinum: Siðblindir útrásar-
gosar sem svífast einskist, dem-
antaviðskipti, mafíustarfsemi og
blóðugt morð fléttast saman í
atburðarás sem teygir anga sína
til skuggalegra afkima alþjóða-
viðskipta sem fyrirfinnast í
helstu varnarþingum auðmanna
í Evrópu. En þrátt fyrir æsileg
umfjöllunarefni tekst höfundi
bókarinnar ekki að skrifa eftir-
minnilegan reyfara sem fangar
lesandann. Í stuttu máli fjallar
Martröð millanna um morð á
auðmanninum Reyni Sveini
Reynissyni – aðdraganda þess
og eftirmál. Hér á ferðinni frá-
sögn af viðskiptafélögum sem
hafa helgað líf sitt því að véla fé
út úr öðrum, með einum eða
öðrum hætti, en gamanið fer að
kárna þegar þeir beina spjótum
sínum hver að öðrum. Þó ekki
svo mikið að ekki gefist tími til
svallveislna með hórkörlum og
-konum um borð í skemmti-
snekkjum og annars staðar og
fleira sem á að einkenna úrkynj-
aðan lífsstíl hinna ofurríku.
Andlagið við þetta í söguni er
svo frásögn af hversdagslegum
lögreglumönnum sem rannsaka
morðið og blaðamönnum sem
flytja fréttir af rannsókninni.
Þó svo að þetta kunni að
hljóma klisjulega er frásögnin
alls ekki fyrirsjáanleg með öllu
og af henni má hafa gaman. Hins
vegar líður sagan fyrir hversu
óáhugavert persónugallerí
hennar er. Útrásargosarnir sem
bera uppi söguna eru afskaplega
óáhugaverðar persónur og ekki
verður séð að neitt annað drífi
þá áfram í ótrúlegri atburðarás
en hrein og bein græðgi. Höf-
undur gerir lítið til þess að varpa
afhjúpandi ljósi á þessar persón-
ur – hann einblínir nánast ein-
göngu á klæðaburð þeirra. Klif-
un hans á þeim merkjavörum
sem söguhetjurnar klæðast
hverju sinni er afskaplega
þreytandi lesning.
Einnig eru samtölin í bókinni
oft á tíðum stirð og frekar
ósannfærandi. Höfundi virðist
mikið í mun að útskýra hin aug-
ljósustu smáatriði í framvindu
sögunnar í samtölunum og það
dregur verulega úr trúverðug-
leika sögunnar og uppbyggingu
spennu. Einhvern veginn á
maður bágt með að trúa því að
reyndir lögreglumenn séu að
útskýra hvor fyrir öðrum mitt í
vettvangsrannsókn hvernig
luminol-vökvi lýsir upp blóð-
slettur, svo dæmi sé tekið.
Óskar Hrafn hefur greinilega
lagst í töluverða rannsóknar-
vinnu við ritun bókarinnar. En
stundum gleymir hann sér og
flóð upplýsinga sem koma sög-
unni ekki beint við verður
yfirgengilegt. Umfjöllun hans
um borgina Antwerpen og langa
sögu hennar sem miðstöð dem-
antaverslunar á frekar heima í
kynningarefni ferðamálaráðs
Belgíu en í harðsvíruðum
glæpakrimma. Rannsóknar-
vinnan kemur þó ekki í veg fyrir
að meinlegar villur slæðist með.
Þannig er hinn myrti í bókinni
sagður hafa skólastyrk frá Col-
umbia-háskóla í New York út á
knattspyrnuhæfileika. Col-
umbia tilheyrir Ivy-deildinni í
Bandaríkjunum og þar af leið-
andi veitir hann einungis styrki
út á námshæfileika.
Martröð í ódýrari
kantinum
Martröð millanna eftir Óskar Hrafn Þorvaldsson er í æsilegri kantinum.
Morgunblaðið/RAX
Bækur
Martröð millanna bbnnn
Eftir Óskar Hrafn Þorvaldsson. JPV.
2010. 238 bls.
Örn Arnarson