SunnudagsMogginn - 05.12.2010, Blaðsíða 15

SunnudagsMogginn - 05.12.2010, Blaðsíða 15
5. desember 2010 15 M emfismafían fer mikinn fyrir þessi jól og er árið 2010 tvímælalaust ár umræddrar mafíu í íslenska tónlistarheiminum. Plötur tengd- ar henni skipuðu nýverið þrjú efstu sætin á Tónlistanum. Vikuna 11.-17. nóvember var Baggalútur á toppnum með plötuna Næstu jól, Prófessorinn og Mem- fismafían með Diskóeyjuna voru í öðru sæti og Hjálmar í því þriðja með Keflavík Kingston. Vikuna á eftir kom síð- an út jólaplatan Nú stendur mikið til með Sigurði Guð- mundssyni og Memfismafíunni þannig að mafíuplöt- urnar, sem koma út fyrir jólin, eru alls fjórar. Til viðbótar hefur Diskóeyjulagið „Það geta ekki allir verið gordjöss“ sem Páll Óskar syngur verið vinsælasta lag landsins í langan tíma hvort sem litið er til útvarps- spilunar eða tónlistarsölu á netinu. Memfismafíunafnið tengir tvær af fjórum plötum en að öðru leyti virðast þær vera ótengdar. Svo er alls ekki því hljómsveitirnar eru meira og minna skipaðar sama fólki. Einn fær þó titilinn mafíuforingi á plötuumslagi Diskóeyj- unnar en það er Guðmundur Kristinn Jónsson, eða Kiddi Hjálmur, eins og hann er oft kallaður. Lá því beinast við að leita til hans til að kanna innviði og krosstengsl tónlist- armafíunnar. Með eigið hljóðver Kiddi er jafnframt upptökustjóri og hljóðmaður með eigið upptökuver í Hafnarfirði. Upptökin voru þó í öðru hljóð- veri, Geimsteini í Keflavík. Kiddi er einnig gítarleikari í Hjálmum og Baggalúti. „Tvær ólíkar hljómsveitir sem byggðar eru á sama kjarnanum. Ólíkt fólk mætir á tón- leika þó að það sé sama fólkið sem er á sviði,“ segir Kiddi. Bragi Valdimar Skúlason, tónlistarmaður í Baggalút, sem- ur texta fyrir Hjálma og allir Hjálmarnir spila mikið undir fyrir Baggalút, svo augljósustu tengslin séu nefnd. Bragi Valdimar er afkastamikill laga- og textahöfundur, sem hefur vakið mikla athygli fyrir hnyttna texta sína, sem veita einstaka innsýn í íslenskt samfélag. Hliðarverkefnin eru mörg og má þar nefna Senuþjóf- ana, en Megas og Senuþjófarnir hafa sent frá sér fjórar plötur. Megas á Senuþjófanafnið og festist það því ekki við önnur verkefni. Sami hópur en undir nafninu Skugga- sveinar gerði plötuna Minni karla sem inniheldur lög eftir Tony Joe White með íslenskum textum Braga. Þessi plata fór ekki hátt og festist nafnið Skugga- sveinar ekki. Á þessum tíma var samt komin upp hugmyndin um Memfismafíunafnið en „Braga fannst það ekki nógu íslenskt,“ upplýsir Kiddi. Nafnið varð þó ofan á að lokum þegar tvær plötur Memfismafíunnar slógu í gegn árið 2008, barnaplatan Gilligill og Oft spurði ég mömmu þar sem andi fortíðar svífur yfir vötnum. Nánustu samstarfsmennirnir þrír í hópnum eru Kiddi, Bragi Valdimar og Sigurður Guð- mundsson. Kiddi er svolítið maðurinn á bak við tjöldin. „Maður er að leggja svo mikið í plöturnar en er alltaf fyrir aftan. Ég verð að hafa eitthvað á plötunum sem ber vott um að ég sé að halda ut- an um þetta og leggja allt mitt í verkefnið,“ segir Kiddi um Memfismafíunafnið. Nafnið varð til meira í gamni en alvöru eftir að Kiddi flutti með hljóðver sitt til Hafn- arfjarðar úr Keflavík. Björgvin Halldórsson hringdi í hann og spurði: „Ert þú að koma til Memfis?“ Hafnarfjörður er enda heimabær Björgvins en Hjálmar áttu heimili í Keflavík, sem stundum hefur verið kölluð Liverpool Íslands. „Þegar þetta var orðinn góður hópur að vinna í stúd- íóinu kölluðum við þetta alltaf í gríni Memfismafíuna,“ segir Kiddi en það sem byrjaði sem innanhússbrandari er nú orðið nafn á allra vörum. Hljóðfæraleikararnir eru kannski ekki alltaf þeir sömu en nafnið stendur. „Það verður að vera hægt að halda merkinu gangandi. Það er ekki hægt að loka fyrirtækinu. Það er mikil velta í kringum þetta sumt hvert. Þetta er skapandi fólk, enginn að gera þetta í fyrsta skipti og allir með skoðanir. Þá verð- ur bara einhver að ráða í ákveðnu verkefni,“ útskýrir Kiddi. „Við Siggi vinnum mikið saman í stúdíóinu. Plöturnar klárast ekkert nema ég og Siggi séum búnir að liggja yfir þeim,“ segir Kiddi um samstarfið en hann segir þá mjög ólíka en þó eiga svona farsælt samstarf í hljóðveri. Memfismafían í leikhúsið Memfismafían er núna að teygja anga sína í leikhús borg- arinnar. Bragi Valdimar semur tónlistina við barna- leikritið Ballið á Bessastöðum sem frumsýnt verður í Þjóðleikhúsinu í lok janúar. Ennfremur upplýsir Kiddi að til standi að koma Diskó- eyjunni í leikhús en verið er að vinna að því að Diskóeyjan verði söngleikur. Má því búast við annarri Diskóeyjuplötu samhliða uppsetningunni þó að lögin af fyrri disknum muni einnig hljóma í sýningunni. Fjölbreytni einkennir starfsemi mafíunnar. „Ástæða þess er að við erum með okkar eigið stúdíó og ég er hljóð- maður. Við getum því leyft okkur að prófa ýmislegt án þess að það kosti mikið.“ Hann segir þetta snúast mikið um að fylgja plötunum eftir. „Maður verður ekki ríkur á að búa til plötur en þeg- ar hlutirnir ganga upp eins og Hjálmar eða Baggalútur er hægt að vinna við þetta. Það þýðir heldur ekki að gefast upp eftir tvær plötur,“ segir hann. Lög með bæði Hjálmum og Baggalúti hafa notið mikilla vinsælda og fólk virðist tengjast mörgum þessara laga sterkum böndum. Þó að lögin séu ólík eiga þau eitt sam- eiginlegt og það er að þau eru sungin á íslensku. „Okkur hefur aldrei dottið í hug að gera plötu með enskum textum. Ég hlusta sjálfur á Spilverkið, Megas og alla þessa músík sem er á íslensku. Það er auðveldara að fela sig á bak við enskan texta en ég hef alltaf verið með svo góða textasmiði í kringum mig að ég hef ekki þurft að gera það.“ Hvernig tilfinning er það að tilheyra svona sterkum hópi? „Ábyggilega eins og í fótboltaliði, manni líður miklu betur ef maður er með góða menn í kringum sig í liðinu. Ég er enginn sérstakur músíkant og bara djamma með. En til þess að hljómsveitir virki þarf einn lagahöfund og ann- an frontmann sem selur og einn duglegan sem vaknar snemma á morgnana til að tala við blöðin. Þetta þarf að vera ákveðin blanda til að virka. Það verður að vera ein- hver varnarmaður þó að það sé leiðinlegt að vera í vörn. Þetta snýst líka um samskipti, fólk þarf að passa saman.“ Kiddi játar að hann sé „meiri leikstjóri heldur en leik- ari“ og „meiri bissnessmaður en listamaður“. Hann á líka mikið af hugmyndum, eins og að gera barnaplötu með prófessornum, Óttari Proppé. „Þetta er stórt fyrirtæki og veltir miklum peningum þó að enginn fái há laun enda koma svo margir að þessu. Það þarf að reka fyrirtækið fram í tímann og hugsa lengra en núið. Símreikningurinn minn er alltaf mjög hár,“ segir Kiddi og hlær. Flestar helstu plötur tengdar Memfismafíunni hafa far- ið í gullplötusölu, sem þýðir fimm til tíu þúsund eintök seld. „Það eitt gerir það að verkum að hægt er að fylgja þeim eftir.“ Ljóst er að Kiddi er metnaðarfullur. „Frekar gef ég eftir launin mín heldur en gæðin á plötunum. Ég get ekki lifað með því að gera eitthvað illa.“ Ferðast um Evrópu og glysrokk í Los Angeles Kiddi og félagar hans í Memfismafíunni eru líka vinnusamir en hann segir nauðsynlegt að hafa nóg að gera til að lifa af tónlistinni. „Það er svo erfitt að lifa á þessu. „Nú þarf ég eig- inlega að vera búinn að kasta með veiðistöng- inni út í næstu tvær, þrjár plötur,“ segir hann. Ein þeirra er eins og áður sagði, Diskóeyjan í leikhúsi. Ennfremur er hugmyndin að næstu Hjálma- og Baggalútsplötum líka stór- skemmtileg. Hjálmar stefna í Evrópureisu næsta sumar, ætla að keyra á milli þekktra hljóðvera og taka upp tíu lög í tíu löndum. „Svo er draumur Baggalúts að fara til Los Angeles og gera þar glysrokksplötu.“ Hulunni svipt af Memfismafíunni Angar Memfismafíunnar teygja sig víða eins og fram kemur í viðtali við mafíuforingjann Guðmund Kristin Jónsson. Hér verður varpað ljósi á innviði og kross- tengsl þessarar íslensku tónlistarmafíu. Texti: Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is Myndir: Ernir Eyjólfsson ernir@mbl.is Kiddi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.