SunnudagsMogginn - 05.12.2010, Blaðsíða 46
46 5. desember 2010
Meistaraverk Clash
frá 1979, London
Calling, mun verða
grunnurinn að nýrri
kvikmynd sem er ver-
ið að vinna að. Mun
hún fjalla um upp-
tökustjórann Guy Ste-
vens og gerð plöt-
unnar en handritið skrifar leikskáldið Jez
Butterworth. Mick Jones og Paul Simonon,
fyrrverandi meðlimir sveitarinnar eru líka á
meðal framleiðenda.
Aðalframleiðandi er Alison Owen – móðir
Lily Allen – og segir að aðdáendur Clash eigi
skilið að sjá sögu sveitarinnar gerð almenni-
leg skil á hvíta tjaldinu.
Tökur hefjast á næsta ári en ekkert hefur
verið tilkynnt um hverjir muni fara með
helstu rullur.
Clashplata verður
að bíómynd
Umslag plötunnar
frægu.
Lady Gaga er með þetta.
Reuters
Lady Gaga mun gefa út fyrstu smáskífuna af
væntanlegri breiðskífu sinni, Born This Way,
í febrúar komandi. Óhætt er að segja að
spennan sé mikil fyrir þessari næstu plötu
poppdrottningarinnar sem er að gera sig lík-
lega til að fella sjálfa Madonnu af stalli.
Söngkonan hefur hins vegar ekki gengið svo
langt að upplýsa okkur dauðleg um lagatit-
ilinn.
Annars er uppi typpið á söngkonunni og
hefur hún lýst því yfir að væntanleg plata
verði besta plata áratugarins. Kemur hún út
í kjölfar plötunnar The Fame (2008) en þess
ber að geta að árið 2009 kom út platan The
Fame Monster, sem var eins konar kjör-
útgáfa af The Fame.
Ný smáskífa frá
Lady Gaga í febrúar
F
erðalag The Black Eyed Peas um
popplendur hefur verið æv-
intýralegt í meira lagi. Undanfarin
tíu ár eða svo hafa verið á valdi
sveitarinnar og átti hún t.d. lög á toppi
bandaríska Billboardlistans hálft árið 2009.
Allt síðan söngkonan Fergie gekk til liðs við
þá félaga will.i.am, apl.de.ap og Taboo árið
2001 hefur yfirreið þeirra yfir vinsældalista
og skyngáttir jarðarbúa verið allsvakaleg;
en hamfarirnar hófust með plötunni Elep-
hunk árið 2003. Þar á undan hafði verið um
nokkuð hefðbundna rappsveit að ræða (sjá
fylgju) en á einhverjum tíma virtist hún, og
þá aðallega potturinn og pannan í henni,
will.i.am, hafa fundið poppofurmennið í
sér.
Elephunk gat af sér þrjá smelli, „Where Is
the Love?“, „Hey Mama“ og „Let’s Get It
Started.“ Tveimur árum síðar fór sveitin
svo í yfirgír, með plötunni Monkey Bus-
iness sem hefur nú selst í yfir tíu milljónum
eintaka. Danspoppsyfirhalningin á fyrri
tíma rapptöktum hafa reynst ein farsælustu
poppvísindi seinni tíma og á þessum tíma
varð ekki þverfótað fyrir sveitinni.
Engu að síður áttu eftir að líða fjögur ár á
milli platna. Bilinu var hins vegar vel varið
með sólóplötur, rauðadregilsheimsókn-
um og endalausum hliðarverkefnum og
-framkomum og will.i.am. treysti sig
enn frekar í sessi sem einn eftirsóttasti
upptökustjóri samtímans.
The E.N.D eða The Energy Never Dies
poppaði síðan upp í fyrra. Hungur fólks
eftir meiri baunum var greinilega slík að
platan atarna sló heldur en ekki í gegn.
Fyrsta smáskífan, hið heilalímandi „Bo-
om Boom Pow“ sat til að mynda á toppi
Billboard sleitulaust í tólf vikur.
Hamra skal járnið meðan heitt er og
nýja platan, The Beginning, kom út í
síðustu viku. Leiðtoginn, will.i.am, lýsir
plötunni sem einslags nýju upphafi, með
tilvísun til titilsins, hún muni bera með
sér vöxt, þroska og endurnýjaðan fókus.
„The Time (Dirty Bit)“ er farið að rúlla
um öldur ljósvakans og af því að dæma
er sosum ekki um neinar stórkostlega
byltingu að ræða, og hljóðbúti úr „(I’ve
Had) The Time of My Life“ er skemmti-
lega lyft. Engin bylting nei, en will.i.am
veit sem er að það þarf að vera vakinn
og sofinn yfir heilnæmri þróun ætli
maður að lifa af á popplendum. Spyrjið
bara Madonnu.
Hvert er leyndarmálið?
Ein vinsælasta sveit Bandaríkjanna í dag, The Black
Eyed Peas, gaf út sína sjöttu plötu fyrir stuttu. Verð-
ur popplegum heimsyfirráðum viðhaldið?
Arnar Eggert Thoroddsen arnart@mbl.is
The Black Eyed Peas hafa haldið poppheimum í stuðvænum heljargreipum um langa hríð. Verður hnykkt á því með nýju plötunni?
Fyrstu tvær plötur Black Eyed
Peas, Behind the Front (1998) og
Bridging the Gap (2000) voru
„hreinar“ hipphopp plötur í ætt
við það sem A Tribe Called Quest
og De La Soul voru að gera. Þegar
söngkonan Fergie slóst í hópinn
tóku meðlimir popplegt innsæi
sitt upp á næsta stig sem endaði
svo í danspoppi því sem við
þekkjum í dag. Rætur Black Eyed
Peas liggja í sveitinni Atban
Klann, sem hafði á að skipa þeim
will.i.am (William James Adams,
Jr.) og apl.de.ap (Allan Pineda
Lindo, Jr.). Gekk sveitin svo
langt að gera samning við Rut-
hless Records sem Eazy E stýrði
en ekkert kom út úr því enda
tónlistin ansi langt frá ofbeld-
israppi Eazy E og félaga.
Einhvers
staðar byrjar
þetta …
Tónlist
Hvað ertu að hlusta á um þessar mundir?
Emilíönu Torrini. Me and Armini fer enn
reglulega í spilarann, en verkefna- og
prófayfirferðardiskarnir með Dido og Beck
(sjá lokaspurningu) eru samt að taka yfir.
Hvaða plata er sú besta sem nokkurn
tíma hefur verið gerð að þínu mati?
Sign o’the Times með Prince.
Hver var fyrsta platan sem þú keyptir
og hvar keyptir þú hana?
Held örugglega að það hafi verið Go-
Gos, Beauty and the Beat. Hún hefur
sennilega verið keypt í plötubúð á Akureyri,
þó ég muni ekki hvað sú búð hét.
Hvaða íslensku plötu þykir þér vænst
um?
Aldarminningu Davíðs Stefánssonar frá
Fagraskógi, það var platan sem læknaði
heimþrána þegar ég bjó í Bandaríkjunum.
Og Áfram stelpur, að sjálfsögðu! Á bæði á
vínyl og geisladisk.
Hvaða tónlistarmaður værir þú mest til í
að vera?
Dido.
Hvað syngur þú í sturtunni?
„I Am Woman, Hear Me Roar“ með Hel-
en Reddy.
Hvað fær að hljóma villt og galið á
föstudagskvöldum?
Beyoncé, Britney Spears og Justin Tim-
berlake.
En hvað yljar þér svo á sunnudags-
morgnum?
Dido og Beck – þau eru prófa- og rit-
gerðayfirferðartónlistin mín og eru með
mér flesta daga á þessum tíma árs, ekki
bara sunnudagsmorgnum.
Í mínum eyrum Silja Bára Ómarsdóttir
Dido og Beck eru sem heimilisgestir
Silja Bára Ómarsdóttir