SunnudagsMogginn - 05.12.2010, Side 12
12 5. desember 2010
Mánudagur
Sveinn Blöndal var mjög fúll rétt áð-
an. Síðan horfði hann á tónlist-
arstund með Arnari Eggerti. Núna
er hann afar glaður.
Marsibil Sæmundardóttir lét hár-
ið fjúka …
Tómas Örn Tómasson einn dagur
eftir í tökum á Áramótaskaupinu!!!
Fimmtudagur
Eyrún Magnúsdóttir
Vinsældalisti barna-
efnis á heimilinu: 1.
Videokameran tengd
við sjónvarpið svo
hægt sé að horfa á myndskeið með
sjálfum sér, 2. Skets úr Hemma
Gunn frá 1993 með Mikka ref og
Lilla Klifurmús (sjá youtube) 3.
„Kagglarnir“ (Klaufabárðarnir)
… Latibær hvað?
Elín Hirst Mig
langar til að segja
ykkur eina litla sögu
um góðverk. Í gær
kom kona til Mæðra-
styrksnefndar með 10 umslög í
hverju þeirra voru 15 þúsund krón-
ur. Með þessu framlagi af laun-
unum sínum vildi hún gleðja 10 fá-
tækar fjölskyldur fyrir jólin. Við
kölluðum hana jólaengil og pening-
arnir fóru á góða staði.
Fésbók
vikunnar flett
L
eikurinn á mánudaginn var
feikilega skemmtilegur og
gaman að sjá hvernig Barcelona
spilaði. Liðið er frábært núna,
enginn getur mælt á móti því, en ég held
að það sé ekki besta lið allra tíma.
Mörg gríðarlega góð lið hafa komið
fram í gegnum tíðina og hver tími hefur
sinn sjarma. Ég get nefnt Liverpool sem
var það besta í Evrópu um tíma og eft-
irminnilegur er úrslitaleikur Meist-
aradeildarinnar 1994 þegar talað var um
að frábært sóknarlið Barcelona myndi
rúlla hinu varnarsinnaða AC Milan upp.
Þegar til kom vissu Barcelonamenn ekki
hvaðan á þá stóð veðrið. Lið Milan var
frábært; skipað stórkostlegum leik-
mönnum og auk þess mjög vel skipulagt.
Bestur er dálítið sleipt orð en í mínum
huga er sá alltaf bestur sem vinnur titla.
Barcelona vann reyndar alla fimm sem
liðinu stóðu til boða fyrir tveimur árum
en ég tel að það hafi verið fyrst og fremst
vegna þess hve liðið var með góðan
markvörð og sterka miðverði. Fag-
urfræði og mikilvægi góðs varnarleiks
gleymist oft þegar talað er um skemmti-
legustu liðin eða þau bestu. Hvað er
skemmtilegra í knattspyrnu en að vinna
titla?
Ekki má gleyma því að Barcelona tókst
ekki að vinna vel skipulagt lið Inter Mil-
an í Meistaradeildinni í fyrravetur. Þá
beitti Inter taktískt fagurfræðilegri út-
færslu sem Barcelona átti ekki svar við.
Muna menn hver það var sem skoraði þá
fyrir Barcelona gegn Inter? Var það
Messi? Nei, það var stór og sterkur mið-
vörður sem fór fram í sóknina.
Varðandi leikinn á mánudaginn held
ég að framganga Barcelona hafi m.a.
verið jafngóð og raun ber vitni vegna
aulagangs andstæðinganna; leikmenn
Real Madrid voru greinilega mjög illa
stemmdir og aðrir hlutir virtust valda
þeim einhverju hugarangri, kannski
umræðan um rauðu spjöldin sem tveir
leikmanna liðsins fengu í Meistaradeild-
inni í síðustu viku. Ég er sammála því
sem Mourinho [þjálfari Real] sagði á
mánudaginn, að þetta var bara einn leik-
ur og úrslitin í deildinni ráðast ekki á
honum. Alex Ferguson, stjóri Manchest-
er United, bendir oft réttilega á að menn
fá jafnmörg stig fyrir að vinna liðin í
neðstu sætunum og þau bestu.
MÓTI
Guðjón
Þórðarson
einn sigursælasti
knattspyrnu-
þjálfari Íslands ’
Í umræðu um
skemmtileg lið vill
fagurfræði og mik-
ilvægi varnarleiks gleym-
ast. Hvað er skemmtilegra
en að vinna titla?
S
igur Barcelona á Real Madrid
[5:0] á mánudaginn var besti
leikur félagsliðs í knatt-
spyrnusögunni, svo langt sem
ég man, sem er orðið býsna langt.
Þetta var skólabókardæmi um frá-
bæra knattspyrnu. Spilamennskan
minnti mig á landslið Brasilíu sem varð
heimsmeistari 1970 og Johan Cruyff og
félaga í liði Hollands næstu árin þar á
eftir. Það er svo mikið flæði í liðinu að
alltaf er einhver leikmaður laus og með
ólíkindum að 89% allra sendinga
Barcelona-manna skuli rata á sam-
herja.
Hafa verður í huga að þeir voru ekki
að spila á móti byrjendum! Í hópnum
hjá Real Madrid eru einir fjórir heims-
meistarar Spánar, tveir af lyk-
ilmönnum Þjóðverja, nýjasta stjarna
Argentínu og sjálfur Cristiano Ronaldo.
Barcelona hefur alltaf verið með frá-
bært lið. Ég kynntist Cruyff aðeins og
spilaði nokkrum sinnum á móti honum
og mér finnst stórkostlegt að Guardiola
[þjálfari Barcelona] skuli nota hug-
myndafræði hans. Auðvitað er hægt að
liggja í vörn og brjóta þessa leiknu
menn Barcelona niður með líkamlegu
atgervi, eins og Inter Milan gerði [í
Meistaradeildinni] í fyrra. Liðið tapar
stundum en spilamennskan gegn Real
var sigur fyrir knattspyrnuna. Þetta
var algjör veisla og alveg sama hvar er
borið niður í liðinu, frá aftasta manni
og til þess fremsta; allir eru góðir á öll-
um sviðum. Ég er viss um að varn-
armennirnir gætu haldið boltanum á
lofti allan daginn ef þeir vildu!
Xavi og Iniesta á miðjunni eru
galdramenn og svo er náttúrlega sá
ótrúlegi leikmaður Messi sem verður
sífellt betri; hann er að nálgast sjálfan
Maradona og verður þar með einn besti
knattspyrnumaður allra tíma. Hann er
lítill og ekki mikill fyrir mann að sjá,
en boltinn er eins og límdur við hann
og sterkustu varnarmenn geta hrein-
lega ekki stoppað hann.
Real hefur á seinni árum reynt að
kaupa afrekslið; hefur nælt í alla þá
dýrustu en það tekur tíma að búa til
liðsheild. Leikmenn Barcelona hafa
aftur á móti flestir spilað lengi saman
hjá félaginu, þekkja hver annan vel og
þess vegna er liðsheildin svona sterk.
MEÐ
Hermann
Gunnarsson
fjölmiðlamaður og
fyrrverandi
landsliðsmaður
Barcelona besta félags-
lið fótboltasögunnar?
’
Barcelona minnir
á heimsmeistaralið
Brasilíu 1970 og
Johan Cruyff og félaga í
landsliði Hollands næstu
árin þar á eftir.