SunnudagsMogginn - 05.12.2010, Page 21

SunnudagsMogginn - 05.12.2010, Page 21
5. desember 2010 21 J óel Pálsson er fæddur í Reykjavík 25.maí 1972 en bjó fyrstu þrjú æviárin í New York. Jóel gekk í Melaskóla og Hagaskóla, auk þess að stunda tónlistarnám við Tónmenntaskóla Reykjavíkur. Því næst lá leiðin í Menntaskólann við Hamrahlíð og Tónlistarskóla FÍH. Jóel útskrifaðist úr báðum skólum 1992 og hélt þá rakleiðis til Bandaríkjanna þar sem hann hóf framhaldsnám við Berk- lee-tónlistarháskólann í Boston. Síðan Jóel flutti heim hefur hann verið virkur í íslensku tónlistarlífi, leikið á hátt í 200 hljómplötum, tekið þátt í ótal tónleikum og komið fram í leikhúsum, útvarpi og sjónvarpi. Jóel gaf á dögunum út hljómplötuna HORN sem er hans fimmta hljómplata með eigin verkum. Árið 2005 stofnaði Jóel ásamt konu sinni Bergþóru Guðnadóttur hönnunarmerkið Farmers Market og rekur það samhliða starfi sínu sem tónlistarmaður, en vörur þeirra eru nú seldar í verslunum víða um heim. Þau Jóel og Bergþóra eiga tvo drengi, fædda 1998 og 2003. Nýlega kominn í heiminn 1972. Með mömmu á Ameríku-árunum. Með pabba, Páli Einarssyni jarðeðlisfræðingi, á skjálftavaktinni í Reynihlíð 1978. Með ömmu Lóu og afa Jóel í Reykjahlíð, Mosfellsdal 1979. Feðgarnir í Skálavík á Vestfjörðum árið 2007. Með kolleganum Sigurði Flosasyni fyrir tónleika á Listahátíðinni í Shanghai 2006. Með horn í hönnun Jóel Pálsson hefur verið áberandi í íslensku tónlistarlífi og rekur jafnframt hönnunarfyrirtæki. Klarinettleikari í Edith Piaf árið 2004. Með Bergþóru á vinnustofunni í Örfirisey. Flottur á umslagi nýjustu plötunnar, Horn. Á Jazzhátíð Reykjavíkur 2008. Úr uppfærslu Rocky Horror í MH 1991. Útskrift úr Berklee 1994. Töffarinn Sting afhenti skírteinið. Myndaalbúmið

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.