SunnudagsMogginn - 05.12.2010, Side 22

SunnudagsMogginn - 05.12.2010, Side 22
22 5. desember 2010 Þ að er verið að fleygja stórkostlegum fjármunum í vitleysu alla daga og til þess að það sé hægt eru skattar hækkaðir upp úr öllu valdi og álögur á þjónustu, jafn- vel lífsnauðsynlega þjónustu eru stöðugt auknar. Hent var nýlega eins og ekkert væri rúmum 100 milljónum króna í svokallaðan þjóðfund, sem minnti að framsetningu til mest á fjáröfl- unarsamkomu í Bandaríkjunum, nema þarna var peningum skattborgaranna kastað á glæ en ekki safnað í þágu góðs málefnis. Er það sama upp- hæðin og maður sem hefur fengið milljarða af- skrifaða í Arion banka borgaði fyrir að fá enskan til syngja „hann á afmæli í dag“ í pakkhúsi, sem var staður við hæfi. Nýjar nefndir daglega Þá hefur þessi verklausa ríkisstjórn skipað nýja nefnd með skjólstæðingum sínum og pólitískum þurfalingum annan hvern virkan dag á valdatíma sínum og er skipunarhraðinn heldur að aukast. Hefur annar eins nefndaflaumur ekki sést í sam- tímasögu svo vitað sé. Kostnaðurinn við slíkt er óheyrilegur og árangurinn í öfugu hlutfalli við út- gjöldin. Loks fann velferðarstjórnin út að það hefðu ekki verið bankaræningjarnir sem rændu bankana innan frá sem hefðu gert neitt af sér heldur hafði það friðsemdarplagg stjórnarskráin farið á stjá, læðst með veggjum í skjóli myrkurs og staðið fyrir hruni. Eina leiðin til að draga stjórn- arskrána saklausa til ábyrgðar fyrir eitthvað er að nefna sem ástæðu að vissulega var ný og vafasöm túlkun á tiltekinni grein hennar notuð til að tryggja að stærsti svindlarinn meðal siðleys- ingjafjöldans gæti ráðið yfir mesta fjölmiðlaveld- inu á Íslandi og haft þæga vikapilta í fréttastjóra- og ritstjórastólum til að breiða yfir svínaríið og tryggja að glæpirnir í bankakerfinu gætu farið fram umræðu- og gagnrýnislaust. Og til að drepa umræðunni frá því sem var raunverulega að ger- ast var að auki ráðist með ósannindum og dylgj- um á andstæðinga og ímyndaða óvini og jafnvel ættmenni þeirra af meiri heift en nokkru sinni hefur sést. Er ótrúlegt að á Íslandi sé enn hægt að kaupa menn til slíkra verka og að hinir sömu skuli ekki læðast með veggjum eftir að í ljós er komið hvernig allt var í pottinn búið og á hvers konar siðferðisplani þeir höfðu starfað og hvílík skítverk unnið. Sóunin heldur áfram Og næst er nokkrum hundruðum milljóna sóað í að draga úr hirslum þjóðminjasafnsins lagabálk sem ekki hefur verið notaður í hundrað ár, rétt eins og hvítþvegnir englar hafi stjórnað Íslandi allan þann tíma. og forsætisráðherrann fyrrver- andi, Geir H. Haarde, settur á sakamannabekk. Maður sem hefði sjálfsagt lítið getað gert gagnvart holskeflunni þar sem samstjórnarflokkurinn og forseti landsins héldu sérstakri verndarhendi yfir fjárglæframönnunum og gáfu þeim siðferðisvott- orð á báðar hendur og hengdu á þá heiðursmerki og krossa. Og svo er allt stjórnkerfið haft í því á örlagatímum að fylgja eftir meinloku Samfylk- ingarinnar sem er að skreppa saman um að rétt sé að troða Íslendingum í Evrópusambandið gegn vilja þeirra og taka upp evru sem alla fyrst, því hún sé sá lífsins elexír sem öllu fái bjargað. Eins og staða evrunnar er nú minnir þessi endaleysa helst á ef ferðaskrifstofa Samfylking- arinnar hefði verið með sérstakar tilboðsferðir á hraðbátum til að komast um borð í Titanic áður en skipið sykki. En um evruna hefur verið sagt í 10 ár að hún gæti ekki hrunið. Dallarnir eiga því eitt og annað sameiginlegt. Beinn, en þó einkum óbeinn kostnaður af þessu óláns uppátæki að hafa tugi og hundruð embættismanna í ólöglegum að- lögunarviðræðum við ESB er hrikalegur. Og á meðan á allri þessi gegndarlausu sóun í hvern óþarfann af öðrum stendur vogar fjármálaráð- herrann sér að segja að sækja verði aura til að standa undir henni til aðþrengdrar velferð- arþjónustu á landsbyggðinni. Og verst er að emb- ættismenn utanríkisráðuneytisins, sem hafa iðu- lega verið vandir að virðingu sinni, virðast hafa verið fyrstir til að bíta á agnið og eru komnir prúðbúnir í hljómsveitina sem lék af svo miklum tilfinningahita meðan fleyið tók stefnuna á hafs- botninn. Ferill stjórnlagaþings Ferill stjórnlagaþingsins er athyglisverður. Þegar því var komið á með lögum var það sótt fast að það yrði sjálfstæður stjórnlagagjafi sem var stór- furðuleg tillaga. Ætluðu offorsmenn vinstriflokk- ana ekki að hleypa Alþingi í kosningar nema að sú skipan fengist fram áður. Þvílíkri stjórnskipulegri afskræmingu var að sjálfsögðu hafnað og má þakka það helst nokkrum reyndum þingmönnum sem voru að kveðja sinn þingferil og létu heift- úðuga andstæðinga ekki ógna sér. Þar með var þetta stjórnlagaþing í raun hrapað í virðingu úr stofnun sem gat ákveðið eitthvað yfir í að vera ráð- stefna eins og þær sem viðskiptaráð heldur, þótt þessi muni standa eitthvað lengur og kosta skatt- píndan almenning ógrynni fjár. Áhugafólk um fyrirbærið reyndi að berja í brest- ina sem fram komu með höfnun Alþingis og sögðu að fengi kosning fulltrúa á stjórnlagaráðstefnuna mikla þátttöku kosningabærra manna myndi þungi þess sem þar gerðist aukast. Þetta sögðu bæði forsætisráðherrann og stjórnlagafræðing- urinn sem útbjó ásamt fáeinum öðrum „sérfræð- ingum“ niðurstöðuna úr þjóðfundarkaffiboðinu. Og hver var útkoman í hinum almennu kosningum um gæluverkefnið. Lélegasta kosningaþátttaka al- mennings sem sést hefur. Af ummælum forsætis- ráðherrann ber hiklaust að gagnálykta að umboð stjórnlagaráðstefnunnar sé lítið sem ekkert. Þegar forsætisráðherrann, fjármálaráðherrann og fréttastofa hins hlutlausa Ríkisútvarps höm- uðust gegn því að fólk mætti til þjóðaratkvæða- greiðslu um Icesave létu kjósendur það eins og eitthvert óráðstuð um eyrun þjóta. Nú hvatti eng- inn til að kosningin til stjórnlagaráðstefnunnar væri sniðgengin Meira að segja ritstjórar Morg- unblaðsins sem höfðu harla lítið álit á uppátækinu mættu til að kjósa og gerðu það þótt ekki færi á milli mála að öll venjuleg kosningalög og sérlög væru brotin, og kosningin því að réttum lögum ólögleg og því ógildanleg. En ekkert dugði til. Rétt rúmur helmingur þeirra kjósenda sem mættu gal- vaskir í þjóðaratkvæði gegn Icesave lufsuðust til að kjósa fólk á stjórnarskrárráðstefnuna. Nánast enginn þekkti kosningareglurnar Gerð hefur verið könnun á því, að vísu óformleg, en þó gefandi marktæka vísbendingu um hvort frambjóðendur hafi vitað hvers konar kosn- ingakerfi væri notað við þessa undarlegu kosningu. Niðurstaðan er sú að innan við 5% aðspurðra höfðu skilið rétt hvernig þetta kosningakerfi virkaði. Og hvernig halda menn að ástandið hafi þá verið hjá almennum kjósendum. Þrátt fyrir niðurlægjandi litla kjörsókn í þessum kosningum bárust fréttir um að erfiðlega gengi að telja. Um tíma virtust tæplega 14% kjörseðla vera ógild eða hlytu að Reykjavíkurbréf 03.12.10 Fáráðlingar fleygja peningum

x

SunnudagsMogginn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.