SunnudagsMogginn

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

SunnudagsMogginn - 05.12.2010, Qupperneq 36

SunnudagsMogginn - 05.12.2010, Qupperneq 36
36 5. desember 2010 Þ ú ert bara á mínútunni. Það kann ég að meta,“ segir Jón Pétursson, Jón lögga, þegar hann tekur á móti mér á heimili sínu á þessum milda vetrarmorgni. Handatakið er þétt, kersknislegur glampi í augum. Jón er á 75. aldursári, þótt lík- amlegt atgervi gefi annað til kynna. Hann er hraustlegur að sjá en eilítið lotinn á göngu. Það er annars ekkert aldurs- merki, þannig hefur það alla tíð verið. Arfur frá þúfunum í Akureyjum, þar sem Jón ólst upp. Göngulagið er eflaust mörg- um minnisstætt úr miðborginni, þar sem Jón spásseraði áratugum saman í her- klæðum lögreglunnar. Jón er kvæntur Ragnheiði Tóm- asdóttur, sem heilsar glaðlega, og eiga þau tvo syni, Ragnar og Tómas. Á boð- stólum er nýlagað kaffi og heimabakaðar smákökur. Manni er ekki í kot vísað. „Ég er bara hress, þakka þér fyrir,“ segir gestgjafinn þegar við höfum komið okkur makindalega fyrir í stofunni. „Blóðþrýstingurinn var mældur um dag- inn, neðri mörkin eru 70 og þau efri 125. Það er eins og hjá átján ára unglingi. Ég þakka heilsuna hollum mat, fiski og lambakjöti, en einkum og sér í lagi mikilli hreyfingu. Ég þarf ekki á neinum lyfjum að halda, ekki einu sinni magnyl.“ Tíðarandann ber á góma og Jóni þykja gerviþarfir farnar að íþyngja fólki um of. „Við þurfum að einfalda líf okkar. Er ekki Bill Gates að sækja í einfaldari lífsstíl? Og er hann þó allra manna ríkastur. Það er vel hægt að láta sér líða vel í einfaldleik- anum.“ Lætur ekki reiði eftir sér Tilefni heimsóknar minnar er að ræða við Jón um endurminningar hans sem Vest- firska forlagið gefur út fyrir þessi jól. Bókin kallast einfaldlega Jón lögga og er rituð af Jóni sjálfum. Hún er í stíl við höf- undinn, skrifuð af spartverskum krafti og kerskni, sem ekki er öllum gefin, en umfram allt af mikilli virðingu fyrir öllu því fólki sem þar kemur við sögu. Ekki spillir fyrir að Jón er prýðilegur stílisti og óhætt að fullyrða að bókin sé skemmtileg heimild um lífið í Reykjavík á seinni hluta síðustu aldar. Enda þótt létt sé yfir Jóni á löngum köflum í bókinni fer því fjarri að hann hafi sneitt hjá sorgum og áföllum í lífinu. Hann missti föður sinn, Pétur Jóhann- esson, sex ára, tvo bræður á unglingsaldri og móður sína, Jóhönnu Kristínu Guðmundsdóttur, þegar hann var um tvítugt. Löngum var þröngt í búi á upp- vaxtarárunum. „Auðvitað hafa áföll af þessu tagi var- anleg áhrif á mann,“ segir Jón og dregur seiminn, „en ég hef alla tíð borið gæfu til að líta á björtu hliðar tilverunnar. Tók til dæmis aldrei eftir því sem barn að ég væri fátækur. Samt munaði litlu að ég væri hreinlega boðinn upp. Áður en til þess kom var ég svo heppinn að lenda hjá mjög góðu fólki, föðursystur minni og manni hennar í Akureyjum. Þar leið mér vel.“ Jón segir ekki stoða að gráta hlutskipti sitt í lífinu. „Maður má ekki láta eftir sér að vera sár eða reiður. Ég hef verið kátur um dagana og er staðráðinn í að vera það áfram þau ár sem ég á eftir – og helst deyja úr hlátri!“ Skrifaðu þetta bara sjálfur! Bókin átti sér langan aðdraganda. „Ég var kvöldgestur hjá Jónasi Jónassyni í út- varpinu fyrir mörgum árum,“ útskýrir Jón, „og eftir þáttinn lýsti Jónas áhuga sínum á því að skrifa um mig bók. Úr varð að ég sendi honum einhver gögn en hann svaraði um hæl: Blessaður skrifaðu þetta bara sjálfur, þú ert fullfær um það!“ Bið varð hins vegar á því og ekki komst hreyfing á málið fyrr en upp kom sú hug- mynd að þeir feðgar, Jón og Ragnar son- ur hans, rannsóknarlögreglumaður, skrifuðu saman bók um lögreglustarfið fyrr og nú. „Mér fannst þetta strax áhugaverð hugmynd en Ragnar er fínn penni – skrifar margar „bækur“ á ári í sínu starfi. Þá skrifaði ég lögreglukafl- ann, sem er í bókinni nú, en þegar á reyndi var búið að selja forlagið sem ætl- aði að gefa bókina út og nýju eigendurnir höfðu engan áhuga á málinu. Þá datt þetta upp fyrir.“ En Jón var kominn á bragðið og sá enga ástæðu til að slíðra pennann. „Ég ákvað að halda áfram að skrifa fyrir barnabörn- in, átti einhverja kafla, sem höfðu birst í blöðum, skeytti saman og bætti við. Síð- an fór ég að sýna þetta vinum sem hafa tilfinningu fyrir texta og þeir hvöttu mig til að leita að útgefanda,“ segir Jón og leggur áherslu á orðið „tilfinning“. „Það er eitt að hafa vit á hlutunum, annað að hafa tilfinningu fyrir þeim.“ Étur gæludýrin sín Þreifingar áttu sér stað en „það vildi eng- inn sjá þetta,“ segir Jón. „Það var svo sem allt í lagi mín vegna, ég var hvorki móðgaður né svekktur. Lá ekkert á að koma þessu út.“ En þá tók málið óvænta stefnu. „Hjalti Jóhannsson sem vann einu sinni hjá Braga bóksala komst yfir handritið – fínn náungi, Hjalti – og hafði samband við Hallgrím Sveinsson hjá Vestfirska forlag- inu. Þetta greip Hallgrím svo að hann vildi gefa bókina út. Merkilegur maður, Hallgrímur. Hann er með rollur og mér hefur alltaf þótt þeir menn skynsamari en aðrir menn. Þeir hafa alltént vit á því að éta gæludýrin sín. Ég vona bara að hann beri ekki skaða af þessu, bless- aður.“ Jón vill einnig nefna þátt Þorvaldar Jónassonar og Nínu Ivanovu í bókinni. Hann hannaði forsíðu kápu og hún sá um umbrot og kápuvinnslu. „Þetta er mjög fært fólk. Hún er rússnesk, hlýtur að vera frænka Tolstojs,“ segir Jón sposkur. Þess má geta að Jón handskrifaði bók- ina. Hann kann ekki við ritvélar og þaðan af síður tölvur. „Snorri, nágranni minn í Reykholti, skrifaði sínar bækur með fjað- urstaf og Kiljan með blýantsstubbi. Og ekki tókst þeim illa upp. Hnignunin hófst með ritvélinni og ætli það komi nokkuð af viti út úr þessum tölvum. Mér skilst að þær séu meira og minna farnar að skrifa bækurnar sjálfar.“ Fyrst og síðast grúskari Þrátt fyrir bókina kveðst Jón ekki líta á sig sem rithöfund. „Ég er fyrst og síðast grúskari. Ég hef ekkert skrifað að ráði Stefnir að því að deyja úr hlátri Hann ólst upp við nauman kost og missti foreldra sína ungur. Eigi að síður skipaði hann sér á bekk með fremstu íþróttamönnum þjóðarinnar og keppti á Ólympíuleikum. Starfsævin fór í að halda uppi lögum og reglu. Starf sem getur bæði bætt menn og skaðað. Nú hefur Jón Pétursson – Jón lögga – skráð endurminningar sínar af sama krafti og fimi og hann gengur til annarra verka. Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is Jón með Þórð B. Sigurðsson á herðunum og Hilmar Þorbjörnsson með Gunnar Huseby. Löggan. Jón stóð vaktina í 45 ár. „Maður má ekki láta eftir sér að vera sár eða reiður. Ég hef ver- ið kátur um dagana og er staðráðinn í að vera það áfram þau ár sem ég á eftir – og helst deyja úr hlátri!“ segir Jón Pétursson.

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.