Skólablaðið - 01.12.1963, Page 4
- 64 -
svo fá allir kokteil ávexti með rjóma.
Loksins er upprunnin sú stóra stund,
sem beðið hefur verið eftir í fimmtíu-
ogtvær vikur ; nú má fara að tæta utan
af pökkunum. Börnin smá taka til ó-
spilltra málanna með hvíi og skrækjum
og innan skamms hafa þau milli hand-
anna sætar dúkkur, sem geta sagt
umfgumig, ( sem hamingjusamar mæður
leggja út með mamma), sumar af þess-
um dúkkum geta haft þvaglát, ef þær eru
fylltar af vatni, en á hinu háheilaga að-
fangadagskvöldi má ekki sulla. Litlir
menn í matrósafötum rispa húsgögnin
með slökkviliðsbílum og litla barnið
grenjar af hræðslu við afarstóran bangsa,
sem birtist upp úr fyrirferðarmiklum
jólapinkli, sem á stóð: Frá pabba og
mömmu til Lilla. Mamma fær hræri-
vél og ilmvatn og pabbi fær hálsbindi og
ævisögu. Amma fær efni í kjól og háls-
festi af máluðum tréperlum.
Þannig líður kvöldið og allir eru af-
skaplega glaðir og hamingjusamir.
r 6*™ UT I
MENNTA5K0LANUM
I REYKTAVÍK
RITSTJÓRI
Þráinn Bertelsson
RITNEFND
Hermann Jóhannesson
II.
Fyrr á tímum héldu íslendingar heiðin
jól og voru mikið fullir. En þetta var
áður en þeir höfðu spurnir af því, að úti
í löndum hefði maður verið festur á
kross spesjalt fyrir þá. Nú halda ís-
lendingar kristin jól og eru að mestu
ódrukknir. öneitanlega er þetta mikil
framför og sannar ágæti krizninnar, en
því miður er óvíst hvort framfarirnar
eru jafnmiklar á öðrum sviðum. Um
dauðans ekkisen helgislepjuna, sem ríkir
á hverjum jólum mætti skrifa margar
bækur. Um taugaspennu og fjárhags-
vandamál, sem jólin baka fólki, mætti
einnig skrifa margar bækur. En merg-
urinn málsins er sá, að konungur jólanna
er alls ekki Ésú kallinn, eins og reynt
er að telja börnunum trú um, heldur^
Jólasveinninn, sá gjaðhlakkalegi kleptóman
og gamanvísnasöngvari. An efa finnast
trúuðum mönnum þessi skrif mín mjög
dónaleg og í hæsta máta óviðeigandi, en
þar er ég á öðru máli: Ég er á engann
hátt hlynntur því, að menn hætti að lesa
faðirvor og nuleggégau^unaftur, þegar
þeir eru háttaðir og bunir að slökkva
ljósið. Ég er ekki á móti hagnýtum trú-
arbrögðum, það er að segja þeim,
Frh. á bls. 88.
Páll Bragi Kristjónsson
Þjóðbjörg Þórðardóttir
Magnús Þór Jónsson
Jón Örn Marinósson
Jóhannes Björnsson
ABYRGÐARMAÐUR
Örnólfur Thorlacius
Forsíðu dró Jón Gíslason
Skreytingar önnuðust
Valfríður Gísladóttir
Jón Gíslason
Notið jólaleyfið til að