Skólablaðið

Volume

Skólablaðið - 01.12.1963, Page 15

Skólablaðið - 01.12.1963, Page 15
- 75 - andi búið að halda velheppnaða kynningu á Antoni Tsékov, þessum öndvegishöfundi, sem enn þá er eins nýr og óbundinn alman- akinu og hann var fyrir sextíu árum; dauð- ur má sá maður.sem ekki finnur eitthvað sjálfum sér viðkomandi hjá Tsékov. Kannski voru einhverjir svo sælir að sjá sýningu Leikfélagsins á Þremur systrum. mér er sagt að það hafi verið fín og sam- stillt sýning. Ég hef frétt,að Vanja frændi verði sýndur þar bráðum eða í útvarpinu. Það hefur verið dálítið talað um það, hvort bókmenntadeildin ætti einungis að skipta sér af íslenzkum höfundum. Satt að segja langar okkur að krækja í dálítinn snefil af útlendri lesningu,en því eru auð- vitað takmörk sett. Einu sinni kynnti Sverrir Hólmarsson nokkur enskumælandi skáld með því að láta þá sjálfa lesa af plötum. Sá lestur fór auðvitað fyrir ofan garð og neðan hjá flestum. En sitthvað er þó til 1 þýðingum, það sjáum við á Tsékov- kynningunni. Kannski naum við bráðum í Jón Oskar til að tala um franska ljóðlist; hann og fleiri hafa þýtt talsvert af frönskum ljóðum. Eftir áramót verður að öllum líkind- um eitthvað lesið eftir Geir Kristjáns- son, þann vandvirkna snilling. Um daginn var Jón Helgason kynntur ; ef svona heldur áfram fer ég að óska sjálfum okkur til hamingju. Meiri _bækur_. í ótöldum skólablöðum er búið að skamma marga fyrir að koma aldrei í bókasafnið, ( það væri þokkalegt ef menn gerðu það almennt,því að þar rúmast ekki nema tiu í einu), ég ætla þess vegna ekki að bæta við þá þulu. En ætli safnstjórarn- ir hafi alveg hreint mjöl f sínum pokahorn- um varðandi bókakaup; ég held þeir mættu létta dálxtið á alls konar innlendum hvað- er-hinum-megin bókmenntum og lélegustu endurminningum og fá dálítið af erlendum bókum í staðinn>(sem ekki fjalla um stærðfræði ). Mætti ég benda á,iað erlend- ar myndlistarbækur eru naumast til yngri en fimm ára,og jafnframt*að litlar bækur af þeirri gerð má fá fyrir tuttugu og fjórar krónur og fimmtíu aura,og eim aðrar fyrir þrjátíu og sex krónur sjötíu og fimm aura (nánari upplýsingar veittar). Ég nenni ómögule^a að safna tíu undirskriftum til að na mer f fáeinar bækur. Glaumbær. Plötusafnið er eitt af hugnanlegustu uppátækjum seinni tíma í skólanum, ( þó að sumir viti ekki enn að það er til); það hleypur ekki burtu,þegar minnst varir heldur er stabílt eins og járnaruslið hans Finnbjörns skransala. Þetta eru yfirleitt ánægjulegustu hljómplötur, mikið af Bach; aldrei verður of mikið af þeim karli. En af hverju er svona lítið til af nýrri tónlist; það er eins og okkur varði ekk- ert um það,sem er að gerast í dag. Talsvert er til af Stravinski, en fátt ann- að, að ég nefni ekki nýrra. Það er reyndar afsökun að þess konar varrxingur er yfirleitt ekki til hér á landi. En þá tekur fyrst steininn úr, þegar píanókonsert númer eitt eftir Tsjækovskf er þarna til í einum fjórum útgafum,en verk Bartóks eru finnanleg litlu fleiri. 8. desember 1963 Þorsteinn Helgason SKÖLABLAÐIÐ óskar áskrifendum s ín um árs og friðar.

x

Skólablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.