Skólablaðið - 01.12.1963, Side 9
- 69 -
Með lögum skal land byggjal 1 !
r sxðasta tölublaði Skólablaðsins
birtist tónverk, hið fyrsta í sögu
blaðsins. Mun höfundur þess hafa
verið "leónardódavinsúð" Magnús
Þór. Nú naun Magnús hafa lokið
smíði annars tónverks, sem samið
er fyrir tvísöngvara, hárgreiðu og
rakvél. Heyrzt hefur að verkið eigi
að frumflytjast á jólagleði þeirri,
sem nú er í aðsigi, og mun höfund-
ur sjálfur ganga ur skugga um að
hljóðfærin séu f lagi.
Stundum verður galinn foli
úr góðum hesti .
Gamanvfsnaskáldið, Jón ö. Mar-
inósson, hefur verið afkastamikið upp
á síðkastið. Er nú svo komið, að
tæpast er sú skemmtun talin mennt-
skælingum bjóðandi, sem hefur eitt-
hvað upp á að bjóða af þeirri fram-
leiðslu. Þó keyrði um þverbak er
gardfnusöngvarinn Krilli hóf upp
raust sína á sfðustu árshátíð og
flutti gestum tvo nýjustu maraþon-
bálka snillingsins. Það vildi þó höf-
undi til happs að söngvarinn var nær
þegjandi has eftir örvaentingarfullar
æfingar með "Litla Kórnum" og fór
mest af efninu fyrir ofan garð og
neðan hjá tilheyrendum. Annars hef-
ur heyrzt að teður Jón hafi nú feng-
ið framtíðarvinnu hjá einni af prent-
smiðjum bæjarins-----sem ljóðstafa-
setjari !
Yxu vfur ef ég hnigi. ■.
Nú fyrir skemmstu munaði
minnstu, að stórvægileg röskun yrði
á íslandssögunni. Það lá sem sé
við, að Þráinn dræpi Skarphéðin í
harkalegum árekstri í kennslustofu-
dyruni. En fyrir utan þau spjöll á
Njálu, sem þetta hefði haft í för
með sér, hefði það verið með öllu
óyiðeigandi, þar sem Þráinn er nem-
andi en Skarphéðinn kennari.
Má öllum vera ljóst hve brýn þörf
er á, að yfirvöld skólans hafist eitt-
hvað að gagnvart því umferðaröng-
þveiti, sem ríkir á skólagöngunum.
Góð byrjun væri að setja upp stöðu-
mæla á karlaklósettinu.
Sinn er siður f sýslu hverri.
Þingeýingum hefur löngum verið
tamt að gera sig breiða. Heimir
Þingeyingur Pálsson er mönnum að
góðu kunnur, en hann hefur haldið
uppi merki Þingeyinga hér í skóla
um nokkurt skeið og tekizt vel.
En nú er svo komið að breikkun
Heimis er komin á hástig, en dreng-
urinn er ekki af baki dottinn. Hefur
Heimir tekið til þess ágæta ráðs að
gera sig langan. Sýnir nú Þingey-
ingurinn "spaniolu" sína á strætum
og torgum og vegnar vel. Hefur
hann í þessu augnamiði orðið sér
úti um mjög tilkomumikið höfuðfat,
sem á góðri íslenzku kallast pottlok.
Fyrirbæri þetta er kolsvart og situr
á rauðbólgnu höfði Þingeyingsins
með sæmilegum skíðabrekkuhalla.
A miðjum kolli pottloksins er lítill
dúskur og ætla menn að húsbóndi
Heimis í næsta jarðlífi ætli að nota
dindil þennan til að kippa honum til
síns heima.
De smá profeter .
Nýr spámaður hefur uppgötvað
sjálfan sig fyrir skemmstu. Er það
hinn oftheyrði Þorsteinn "Hugo"
Helgason. "Hugo" lagði nýlega bók-
menntadeild undir sig, og þykir
mönnum sem þungt farg hvili á
þeirri deild. Auk alhliða þekkingar
á listum og annarar snilligáfu mun
Reynir Axelsson hafa krýnt fyrr-
nefndan Hugo sem réttborinn arftaka
sinn að sígildri tónlist s.l. vor.
Gefur nú að heyra rödo snillingsins
annan hvern mánudag ásamt öðrum
hljóðum, sem Þorsteinn kynnir sem
tónlist. En fátt er svo með öllu
illt...... Sjá menn nú einn kost
þess að hafa Hugo baulandi f útvarp-
inu, því að það er þó alltént hægt að
loka fyrir hann. _ , , . .
J Frh. a bls. 85.