Skólablaðið - 01.12.1963, Qupperneq 26
- 86 -
HANN situr á bekk og bíður eftir vagninum. Það fer hrollur um hann því
að golan er nöpur, og ekki að fullu ljóst af degi. Hann ber hendina upp að augun-
um til að nudda burt stírurnar. "O. ...hvað það hefði verið gott að fá að sofa
svolítið lengur. " "Nei, það er ekki því að heilsa. " "Það þýðir víst ekki annað en
gera eitthvað. " "Vinna, já nú er langur vinnudagur fyrir höndum, og í kvöld kem- (|
ur maður heim alls uppgefinn, nokkrum krónum ríkari, að vísu, jú, vfst er um það.'
"Hvernig er þetta með vagninn, ætlar hann ekki að fara að koma? "
Pilturinn rís á fætur, og rýnir út eftir götunni. "Jú, þarna kemur hann. " "Nú
ekur hann inn á hringtorgið, stanzar síðan við verzlunina niður frá, og svo kemur
hann hingað. " Hann setur í axlirnar, snýr upp á sig og geispar lítillega. "Þarna
kemur einhver másandi. " "Já, það er sá með húfuna, hann er alltaf jafn seinn. "
Þá er vagninn loksins kominn. Pilturinn
stígur upp í, réttir vagnstjóranum kortið,
sem hann tekur við með vinstri hendi o^ gat-
ar síðan með töng, sem hann heldur á 1
þeirri hægri. Pilturinn gengur aftur eftir
vagninum. í næst fremsta sæti situr stelpan
með "heysátugreiðsluna", og þarna situr
feiti karlinn, eins og vanalega. "já, allt er
eins og vanalega. " Hann fær sér sæti aftar-
lega í vajjninum, og um hann hríslast velnota
kennd þvx að hægur er sessinn. Vagninn er
lagður af stað og þýtur áfram eftir veginum.
Von bráðar er pilturinn kominn á áfangastað.
Hann stígur út og gengur hröðum skrefum
upp í hverfið. Hann kemur að húsinu, sem
þeir eru að vinna við. "Nú, þeir eru ekki
komnir, " hugsar pilturinn, um leið og hann
gengur inn.
Er hann hefur beðið góða stund, koma þeir
akandi, lærlingurinn og "meistarinn", þegar
þeir snara sér út úr bflnum segir "meistar-
inn" : "Hvað er betta, ertu ekki farinn að
hræra, drengur? " og síðan, öllu lægra,
"góðan daginn. "
Pilturinn tekur til við starf sitt, segir
ekki neitt, hann nennir ekki að rífast við
karlinn, eða lesa yfir honum reglur um það,
að verkamenn eigi ekki að hefja vinnu fyrr
en verkstjóri er mættur á vinnustað. Karlinn
má rffast ef hann vill.
Dagurinn silast áfram. Hrærivélin skrölt-
ir stanzlaust, en allir eru mennirnir þegjan-
legir við vinnu sína, nema stöku sinnum gellur
Frh. á bls. 90.