Skólablaðið - 01.12.1966, Síða 27
- 93 -
hljóða við þá suma. Mer finnst alltaf sem Þóra hafi gætur á mór, og þegar eg gef henni
hornauga, horfir hán einhvern veginn svo skemmtilega þrjózkulega brosandi á mig.
Gnithamra-bræður, þeir Borki og Hlerkur, sögðu mikinn fisk 1 Hnuðskaflavíkinni, og
kastaði Bjarni í Kollsgili þá fram þessari hendingu.
"Ætli þeir séu ekki bara,
alltaf að plata'okkur? "
Fránklín á Gruglu ætlaði að botna, og varð það svona :
"Ætli við verðum ekki að fara
að ná í stykki nokkur. "
Varð þá Bjarna að orði : "Slítur engan feigan tönn, hrakin verða blómstur, "
Fránklín æstist við þessa sneið og kallaði : "Ætli hún hefði drepizt hún Frimmka þrn,
ef þú hefðir alið hana á orðskviðum, trýnið þitt! " Gerrekur á Grundarstúg dró Fránklín
niður í sætið og sagði honum að þegja, og lægði heldur 1 Gruglubóndanum við það, en ösku-
grár var hann og óttuðust sumir, að hann þrifi sykurkarið og þeytti þvú 1 Bjarna, eins og
Björgólfur 1 Kvosinni gerði við Ásgrím feita 1 Búldkoti í fyrra, og tók Haraldur ( Halli
Gumm ) sykurkarið og færði það til á borðinu. Þóra tók saman á borðinu á eftir, og
hittist þannig á, að ég var að ganga frá nyrðri glugganum og 1 átt til dyra, þegar mór
varð litið á Þóru, en minntist ég þá hjúskaparheitsins og vatt mór fram hjá henni og út
á hlað, þar voru þeir með næsta, Kollbjörn, son Glóklukku úr Fannarlaut og Geira áf
Fálkatröð, eigandi Þóra.
Mikið falleg skepna.
Veit óg ekki fyrri til en
Þóra kemur aftan að
mér og segir : " Hvern-
ig lizt þér nú á hann
Kolla minn? " .Ég lít á
djöfsa og segi sem svo:
"Fallegur er hann Kolli
en fallegra er nú sumt."
( Hún brosir og vottar
fyrir roða. ) "Og á óg
þar við þig. "
Nú roðnaði hún.
Ég þóttist sjá, að það
væri ekki fyrir andskot-
ann haldandi þetta hel-
vítis hjúskaparheit og
gaf henni snjallan sel-
bita.
"Ætli það sé nokkuð 1
hlöðunni? Annað en hey,
á ég við ? " "Nei," hviskr-
aði hún og varð svo ó-
sköp ámátleg.
\< Næstir komu vist Fjúk-
andi, undan Birkisnót
frá Hrappsþúfu og Sklýfi
í Steinólfshlíð, eigandi Þórður á Litla-Stórhól, næstur Kumringi, foreldrar Strykja 1
Oggunesi og Leðurhosi Gunnars á Útispýtumýri, eigandi Kláus í Festi, svo tveir
hrútar, sem ég þekki ekki, og svo var verið að leiða burt Hnausgrýtni, undan Lyðnu
frá Spillitúni og Kroppi frá Steinku 1 Neðsta-Horni, eigandi Björn Magnússon.
ölfur H. Torfason