Skólablaðið - 01.12.1966, Side 38
ÞAÐ ER SAGT, að menn séu misjafn-
lega fúsir til vinnu. Gömul ferskeytla
segir :
Hálfdán kembdi í holunni
húsfreyjan var að spinna
biskup svaf 1 sænginni
sitt hefur hver að vinna.
HÉRNA FYRIR eina tíð var lands-
hornaflakkari einn og þúsundþjalasmiður,
að nafni Sölvi Helgason. Hann sagðist
vera listamaður og bætti þvú gjarnan við,
að þjóðin skildi sig ekki. Varla hefur
Sölvi verið merkilegur maður, en þó hef-
ur verið gaman að honum 1 hófi, eins
og gjarnan vill verða með svona menn.
Davíð heitinn skrifaði sína einu skáld-
sögu um Sölva, og jón Helgason notaði
Sölva sem symbol :
Aumingja Sölvi minn ! ’ '
Ógæfa þín var sú
að aðeins þú lifðir vors
þjóðfrelsis byrjandi vor
en ekki þess sumar með
vaxandi virðing og trú
á vfsindamönnum sem frömuðu
sig eins og þú.
NÚ stígum vér orðið svo
merkileg menningarspor.
Nú mundi landsstjórnin
gera þig prófessor.
JÓN HELGASON HEFUR jú ort
skemmtilega og sum kvæði hans eru oft-
ast tímabær og segja meira en frá því
einu, sem jón hefur kannske att við :
Meðan alþingismaðurinn
unir sem bezt
1 ágætu virðingarsæti
er dónanum hrundið með
hark og með brest
úr berbergi sínu út á stræti.
Meðan alþingismaðurinn
hneigir sig hljótt
fyrir heilagleik morgunroðans
þá endar dóninn sína óværu nótt
hjá æpandi kvensniftum Hroðans.
Hroðinn ér knæpa ein 1 Kaupmannahöfn
og þetta kvæði fjallar um einn og sama
manninn.
KVÆÐI er ekki eitthvað, sem snill-
ingi dettur \ hug á kaffihúsi og skrifar
síðan hjá sér. Kvæði ereinnig vinna,
vinna, þar sem meðfæddir hæfileikar
eru þroskaðir og þjálfaðir.
Skýr dæmi um þetta á Islandi 1 dag,
sem jafnframt sýnir mismuninn, eru
þeir Þorsteinn frá Hamri og Hannes
Pétursson. Hannes skildi þetta, Þor-
steinn ekki. Hannes hefur unnið, og
vinnan hefur borið árangur. Þorsteinn
hefur slæpzt, og einnig það hefur komið
í ljós.
En þeir byrjuðu jafnir.
EN ÞORSTEINN FRÁ HAMRI hefur
ort vel :
Hin týndu
ÞÚ sem áttalaus reikar
veizt að einhvers ég bið
sem ég eitt sinn hef trúað
eða unnað um hrið
falin hafi og snævi
út á hjaranum yzt
kannski þar geíi dulizt
hitt sem þú hefur misst. . .
ÞAÐ KOM BERLEGA 1 ljós við að
hlusta á Ólaf jónsson kynna Guðberg
Bergsson á Iþökulofti nýverið, að Ólafur
virðir hann heldur meira sem lista-