Skólablaðið

Ukioqatigiit

Skólablaðið - 20.12.1966, Qupperneq 28

Skólablaðið - 20.12.1966, Qupperneq 28
NÚ þegar svartasta skammdegi stend- ur yfir, höldum við eina af okkar árlegu hátxðum, jólahátiöina. Þetta er forn siö- ur hérlendur og hefur, að þvi er ég hygg, tiðkast allt frá tímum fyrstu landnáms- mannanna. Þeir voru flestir heiðnir og héldu á þessum tima árs jólablót, til að fagna þvú að sól skyldi á ný vera farin að hækka á lofti og degirnir að lengjast, eiginlega að fagna sigri birtunnar og end- urfæðingu náttúruaflanna. Svipaðar fagn- aðarhátiðir þessari voru haldnar um allan indó-evrópskan heim á jólunum löngu fyrir daga Krists. En tímarnir breytast og mennirnir með. Nu erum við kristnir og höldum jólin hátíð- leg af allt öðrum ástæðum, eða svo álxtum við að minnsta kosti. Við erum að halda upp á fæðingu þess góða og bjarta í þennan syndanna heim, þ.e.a.s. fæðingu Jesú Krists. Ekki er vitað með vissu hvenær árs Jesúbarnið fæddist, en kirkjan ákvað að haldið skyldi uppá fæðinguna á hinni ævafornu jólahátið. Þessi ákvörðun kirkj- unnar var vissule^a skynsamleg. Og nú stendur jolaundirbúningurinn sem hæst. Við viljum gefa hvert öðru gjafir, sem mestar og dýrastar, honum til minn- ingar. Við viljum halda veizlur, honum til heiðurs. Allt fer af stað með tilheyr- andi látum nútíma þjóðfélags,og verzlunar- heimurinn er uppspenntur og þrútinn, eins og þunguð kona. Húsmæðurnar kaupa sér farmiða hjá flugfélagi, ef eiginmaðurinn hefur fiskað vel, og fljúga til útlandsins til að kaupa alls kyns góss í tilefni að fæðingu frelsarans. Já, við hömumst við að minn- ast hans, á allan mögulegan og ómögulegan hátt. Nú er svo komið, að jólaaðveptan er aðal innkaupatimi ársins, aðal hreingern- ingatími, aðal saumatimi. Allt skal gert fyrir jól. Það á að mála eldhúsið, það á að gera við biluðu ljósakrónuna, það á að setja hurðir í nýju xbúðina, svo hægt verði að flytja^þangað fyrir jól. Hvað er svo sjálfri jólahátxðinni eftirskilið? t mörg- um tilfellum örmagna sálir og lémagna lxkamar, - ef þá ekki liðin lík. En fyrir þá, sem lifa áðventuna af svo til skakka- fallslaust, eru jólin afskaplpga ljúf og indæl og algerlega ómissandi, þar eð þau eru einu sinni til. Hugsið ykkur ár án jóla. Ég er hræddur um, að það yrði þunnur þrettándi. Að fara á mis við jól og jólahald er að fara á mis við þá gleði og tilhlökkun, sem ætíð fylgir þessari fagnaðar hátið. Þetta er háti'ð haldin á ákjósanlegum árstíma fyrir okkur fslend- inga. Þá er dimmt og kalt úti fyrir, en hibýli okkar fyllum við af birtu og yl, sem ef til vill mætti búa í aðeins rikari mæli innra með okkur. Þá skiptumst við á gjöfum, nýtum vömbina og reynum að safna kröftum eftir ósköpin við jólaundir- búninginn. Þá hætta bræður okkar 1 Viet- Nam um stundar sakir að drepa hvorn annan. Allt i minningu frelsarans. Aðeins ef það mætti alltaf vera þannig. Við þyrftum að hafa þennan Jesús frá Nazaret oftar í huga en á jólunum. Og þó að jólahaldið sé ef til vill ekki alveg eins og það ætti að vera, þá er ég ekki frá því, að honum myndi hlýna ofurlitið um hjartaræturnar, ef hann vissi, hvernig við höldum upp á afmælið hans. Jón Bragi Bjarnason

x

Skólablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.