Skólablaðið

Volume

Skólablaðið - 20.12.1966, Page 38

Skólablaðið - 20.12.1966, Page 38
148 - RITDÓMUR? frh. af bls. 116. fágaÖur, en þó látlaus.; Björn fylgir gam- alli hefð og lýsir veðrinu af nákvæmni. Mer og fleirum, til dæmis jóni Braga, finnst fullmikil úrkoma 1 sögum hans. Hvernig væri að láta stytta upp og sjá til sólar í næstu sögu, Björn ? Á síðunni á móti kemur annað hljóð í strokkinn : Stikkprufa af sérstæðri kímni Ásgeirs Ásgeirssonar. Stíiiseraða teikningu af Ásgeiri má finna á síðu 93. Kem eg þá að grein Hrafns Gunnlaugs- sonar í Blekslettum. Greinin átti upp- haflega að vera í Quid novi, en ritstjóri tók sér það bessaleyfi að flytja hana, lik- lega til að geta birt svar sitt. Þar varð Vilmundi alvarlega á i messunni. Innan um hitt sluðrið hefði þessi þáttur tæplega vakið mikla athygli, en þarna verður hann að hvössu háði og ádeilu. Auk þess er svar Vilmundar afleitt. Af þessu getur hann ekki hreinsað sig nema með því að sýna iðrun á einhvern hátt. Siða 91 (martröð kynferðislegs ofstæk- ismanns ) er lítið fyndnara en samsvarandi síða í öðtu tölublaði. Aftur á móti eru tvær næstu síður með þeim snjöllustu í sögu blaðsins, þar er einkennileg sveita- saga eftir ólaf H. Torfason og teikning með. Ég byrjaði að hlæja að mynd þessari í strætisvagni númer 19 í Lækjargötunni, ( ég er fremur brosmildur, eins og jó- hannes í sjötta B hefur svo oft og ljúf- mannlega bent mér á ), og kimdi enn, þegar Halldór Halldórsson kom inn í vagnínn á Hagamelnum. Málfari sveitamannsins hefur ólafur náð furðuvel. Hér er dæmi um ódauðlega setningu : "Fallegur er hann Kolli en fallegra er nú sumt. . . . Og á ég þar við þig. " ólafur er óþreytandi tilraunamaður og í rauninni algjört fyrir- bæri, þvú að hann hefur alla túð skrifað öðru vúsi en annað fólk. Quid novi er að þessu sinni alveg laust við rætni, ( sem er sjaldgæft), og einn þátturinn meira að segja dálútið fyndinn, ( sem er ennþá sjaldgæfara ). Sigrún Guðnadóttir lætur móðan mása um andrúmsloftið innan veggja skólans. Hún kvartar undan gagnrýnisskorti, sem hlýtur að teljast furðulegt. Er ekki nój; af baknagi og slúðri (= gagnrýni i praxis ) \ þessum skóla? Annars er ýmislegt bæði satt og rétt í greininni, enda Sigrún skyn- semdarkona um margt. Ef einhverjum hefur ekki líkað við munarljoð Hrafns Gunnlaugssonar, ætti hann að lesa þau upp á nýtt í ró og næði, til dæmis yfir kvöldmatnum : lesa nokkrar línur, stinga upp í sig bita, tyggja og kingja, lesa nokkrar linur til viðbótar. . . . Annars hefur Hrafn gert betur (hér á ég við ágæta sögu hans í fyrsta tölublaði ). Synu bezt fundust mér númer tvö og fjög- ur. í númer tvö örlar á skáldaleifum. Þýðing Dóru Sigrúðar á sögu Wolfgangs Borcherts er prýðisvel unnin. Að vísu hefði hú:i mátt láta strákinn segja "á næt- urnar" í stað "um nætur", sem mér finnst o£ hátíðlegt. Og endilega breyta "tjáir" í* "tjóar". Allt um það er vand- virkni DÓru lofsverð. Þa kemur af þeim þáttum, sem opin- bera lesendum hugsanif ritstjóra á kaffi- húsum. Á þætti þessa ber mér tæplega skylda að leggja dóm fremur en Quid novi, en hvað gera ekki ritdómarar til að svala vandfysni sinni? Hér er ein setning : "Varla hefur Sölvi verið merkilegur mað- ur, en þó hefur verið gaman að honum í hófi, eins og gjarnan vill verða um svona menn. " Þessarar dómhörku gætir þarna víðar,einnig í ritstjórnargreininni : "Hann ( Stefán Zweig ) hafði nú sínar skoð- anir á þessum málum, maðurinn sá, en barasta rangar. " Það vill svo einkennilega til, að ævin- týrið um Lummuna sá ég með eigin augum fæðast og verða til. Það var þá fært inn í stilabok skapara sms, Gunnars Ægissonar. ( þá einustu, sem hann hefur átt, síðan hann hóf göngu í Menntaskólanum ). Ein- hver stráksskapur mun hafa valdið því”, að sagan slæddist inn i Skólablaðið. Annars hefur Gunnar gert margt betur, til dæmis "Historien om Töffe, den tapre dreng". HÚn er skrifuð á dönsku. Og hver er svo útkoman? Prýðisgott blað, sem tokst að fæða löngu fyrir tím- ann, sakir dugnaðar ritstjóra og ritnefndar. Það er kraftur í þessu fólki. Þótt við ým- islegt sé að athuga, er ég mjög bjartsýnn á framtfðina. Helztu forsendur fyrir góðu skólablaði er gott skáldalið. - Það hefur sjaldan verið betra en einmitt nú. r desember 1966. - Ágúst Guðmundss.

x

Skólablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.