Skólablaðið

Årgang

Skólablaðið - 20.12.1966, Side 40

Skólablaðið - 20.12.1966, Side 40
150 - þá er þetta vafalíítið bréytt. Um nátt- urufraeði er líkt á komið, þó svolítið skárra. Ef rétt er, að rökrétt hugsun auki eitthvað þroska, þá eru stærðfræði og eðlisfræði þroskavænlegustu náms- greinarnar fyrir nemendur, en það er aðeins, ef þær eru kenndar vel. En nú er ég kominn í mótsögn við sjálfan mig, þvi að samkvæmt þessu síðastnefnda er það bæði undir andlegum hæfileikum kennarans (þ. e.a. s. sá hæfileiki aðvera góður kennari ) og námsgreininni komið, hvort nám er þroskandi, en þannig hlýt- ur þetta að vera og læt ég þetta vera niðurstöðu mína, 1 sambandi við, hvort skólinn geti aukið þroska nemenda. En um aukningu á aukningu andlegs þroska gæti verið að ræða, ef teknir væru upp nýir kennsluhættir og viðhorf til námsins hjá kennurum, t. d. með þvi að kenna nemendum rétt vinnubrögð við- vrkjandi náminu. jón Stefán Rafnsson SKÓLASKÁLDAVAKA, frh. af bls. 131. fyrir hinn ákveðna ramma. Sagan gefur enn til kynna hæfileika Péturs og finnst mér sem aðrir hér í skóla mættu læra af Pétri - en Pétur skrifar um eitthvað, sem hann ræður við og er skiljanlegt, Þykir mér sem sögur t. d. Þorarins Eldjárns séu of tormeltar til skilnings, en ÞÓrarinn er pennafær, og einmitt, þar sem hann notar lettan stil, finnst mer honum takast bezt. Síðast las Ásgeir Ásgeirsson smá- sögu eftir sig og var upplestur hans lé- legur og háði það mjög. ~ Skáldakvöldið fannst mér takast vel og langt umfram þær vonir, sem ég hafði gert mér. Lélegur upplestur háði þó oft, en slíkt mætti fyrirbyggja. Þeir, sem hafa eitthvað fram að færa, ættu að ,:eyða" svolitlum tfma í vöndun flutnings verka sinna fyrir skáldavökur. Þ. H. H. SKÓLABLAÐIÐ SPYR, frh. af bls. 139. mikinn hluta þjóðarinnar kaupaóðan. jólahald þessa fólks styðst ekki við erfðavenjur heldur tízku. í stað þess að fara í kirkju á jólum, horfir öll fjöl- skyldan á "cowboy-myndir" í dátasjón- varpinu og við þær geiningar hverfur þa ekki alltaf su heimasætan, sem minnst- ur söknuður var að. í stað hangikjöts og laufabrauðs er hátíðamaturinn brezk- ur kalkún og dönsk terta. í stað þess að gefa börnum kerti og spil, er þeim nú gefnir skriðdrekar og sjálfvirkar vel- byssur, svo að þau geti nægjanlega fljótt fengið innsýn og skilning á því*, hvernig á að drepa annað fólk. Það virðist vissulega eiga litið skylt við lif trésmiðssonarins frá Nazaret, sem gekk um meðal fátækra og kúgaðra og færði þeim boðskap sameignar og frið- ar á jörðu. í fáum orðum sagt eru séreinkenni jólahaldsins nú í landi "allsnægtanna" kaupmennska, kappát og ofdrykkja, og hefur okkur þvi svo sannarlega tekizt að snúa faðirvorinu upp a fjandann. jóhann Bjarni Kristjánsson SÖNN gleði hefur ætið verið í sam- bandi við jólahátiðina. Við erum þa glöð og þakklát fyrir þá gjöf, sem við trúum, að guð hafi sent okkur a smum tíma til þess að gefa okkur tækifæri til að eignast eilíft lif, en við viljum flest lifa öðru lifi eftir þetta, og þá með reynslu þá að baki, sem við höfum orð- ið fyrir í þessu lífi. JÓlin ættu að vera helguð minningunni um þessa gjöf. Nú er jólahald á fslandi nokkuð af- vegaleitt, og auðvitað frábrugðið þvi, sem áður var. Aðalmunurinn er sá, að við erum meiri efnum búin nú, og get- um því veitt okkur meira á jólum.jafnt sem allan ársins hring. Af þessu leið- ir, að sú hamingja, sem menn finna til um jolin, vill gjarnan hverfa bak við allsnægtirnar. Tel ég að það sé aðal- lega vegna þess, að við hrúgum gjöfum hvort í annað og jafnvel sjálf okkur, og höldum að við verðum sæl á eftir sem

x

Skólablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.