SunnudagsMogginn - 23.01.2011, Blaðsíða 6
6 23. janúar 2011
Nejdra Nance eða Carlina White eins og hennar upp-
runalega nafn var fluttist frá Connecticut til Atlanta fyr-
ir nokkrum árum. Þar starfar hún sem sendill en dreymir
um að leggja fyrir sig fyrirsætustörf í framtíðinni.
Sjálf á hún fimm ára dóttur svo Joy White end-
urheimti ekki aðeins barnið sitt um síðustu helgi heldur
eignaðist dótturdóttur í leiðinni.
Hafa fjölmiðlar vestanhafs það eftir fjölskyldunni að
unga konan óski eftir því að taka upp nafnið sem for-
eldrar hennar gáfu henni við fæðingu.
Af samtölum fjölmiðla við White-fjölskylduna má
merkja að hún er í sjöunda himni yfir að hafa end-
urheimt Carlinu. Engu líkara sé en að hún hafi verið í
fjölskyldunni alla tíð. „Við tókum myndir og Joy eldaði.
Við skemmtum okkur vel saman.“
Carlina var í New York frá föstudegi til þriðjudags en
sneri svo aftur til Atlanta. Hún hefur hins vegar í hyggju
að flytja til New York, þar sem fjölskylda hennar býr, ef
marka má færslu á Twitter vef hennar.
Sjálf sagði hún í samtali við New York Post á dög-
unum að það væri draumi líkast að sameinast blóð-
fjölskyldu sinni. „Ég er svo hamingjusöm. Samtímis er
þetta undarleg tilfinning því allt er svo nýtt. Þetta er
eins og að fæðast á ný.“
Eins og að fæðast á ný
Carlina dreymir um að verða fyrirsæta en myndin er
úr árbók hennar úr menntaskóla.
Hún er alveg eins og mamma og mérfinnst eins og við höfum alltaf þekkst.“Þannig lýsir hin 18 ára gamla SheenaWhite nýfundinni hálfsystur sinni,
Carlinu White sem hún hitti í fyrsta sinn um síðast-
liðna helgi. Carlina sem er fimm árum eldri vissi
ekki fyrr en nýlega að hún ætti yfirhöfuð systur.
Ekki að furða. Alla sína ævi hefur hún verið alin
upp sem Nejdra Nance, hjá fólki sem rændi henni af
barnaspítala í Harlem í New York þegar hún var að-
eins 19 daga gömul. Alla tíð síðan hafa blóðforeldrar
hennar, Joy White og Carl Tyson, leitað hennar en
hið óvænta í málinu er að það var hún sjálf sem kom
sér til skila.
Sagan hófst árið 1987 þegar foreldrar Carlinu fóru
með hana inn á spítala eftir að ungbarnið hafið
fengið háan hita. Á meðan þau fóru heim að hvílast
var barninu rænt. Telur lögregla að þar hafi verið að
verki kona sem var klædd eins og hjúkrunarfræð-
ingur en síðar kom í ljós að var ekki í starfi hjá spít-
alanum. Í framhaldinu var hafin rannsókn á hvarfi
Carlinu sem engan árangur bar og var málinu því
lokað og það sett í bunka með öðrum óleystum ráð-
gátum lögreglunnar.
Eftir að Carlinu var rænt var hún flutt til Con-
necticut-ríkis þar sem hún var alin upp sem Nejdra
Nance hjá konu að nafni Ann Pettway. Að sögn fjöl-
skyldunnar var hún háð eiturlyfjum og fór illa með
stúlkuna, barði hana m.a. með skóm í andlitið.
Þegar Carlina varð svo þunguð á unglingsaldri flutti
hún að heiman.
DNA-próf staðfesti skyldleikann
Alla ævi hafði Carlina á tilfinningunni að hún væri
ekki dóttir konunnar sem hún kallaði móður sína
því hún líktist hvorki henni né nokkrum öðrum í
fjölskyldunni. Grunsemdir hennar vöknuð hins
vegar fyrir alvöru í kringum 16 ára afmælisdaginn
hennar, þegar móðir hennar gat ekki látið henni í té
fæðingarvottorð. Eftir það eyddi hún löngum
stundum við tölvuskjáinn í leit að vísbendingum
um uppruna sinn. M.a. skoðaði hún myndir af
týndum ungbörnum á heimasíðu sérstakra lands-
samtaka sem leita að börnum sem hafa horfið (the
National Center for Missing and Exploited Child-
ren).
Til að byrja með einskorðaði hún leitina við Con-
necticut en þegar hún kíkti á heimasíðu samtak-
anna 4. janúar síðastliðinn datt henni í hug að fletta
í gegnum myndir af börnum sem höfðu horfið í
New York. Þar sá hún mynd sem svipaði svo mikið
til ljósmynda af henni sjálfri sem kornabarni að hún
ákvað að hafa samband við samtökin, sem aftur
höfðu samband við Joy White, líffræðilega móður
hennar.
Mæðgurnar skiptust á myndum og meira þurfti
ekki til – þrátt fyrir að 23 ár væru liðin frá aðskiln-
aði þeirra var Joy sannfærð um að þarna væri hin
horfna dóttir komin í leitirnar, enda svipaði ungu
stúlkunni mjög til fjölskyldu hennar og hún hafði
aldrei misst vonina um að finna hana á lífi. Þær biðu
ekki boðanna heldur hittust áður en niðurstöður
erfðaefnisprófs lágu fyrir. Síðar staðfesti prófið það
sem þær mæðgur voru þegar sannfærðar um, að
Carlina væri hin horfna dóttir Joy.
Carlina var numin á brott á vöggudeild sjúkrahúss í Harlem á Manhattan.
Reuters
Unga konan sem
fann sjálfa sig
Yfir tuttugu ára mannshvarfs-
mál leystist á óvenjulegan hátt
Vikuspegill
Bergþóra Njála Guðmundsdóttir
ben@mbl.is
Carlina White sem er 23 ára er orðin gullfalleg ung
kona og móðir fimm ára gamallar stúlku.
ÞORRINN 2
011
Þorrahlaðborð
– fyrir 10 eða fleiri –
1.990
kr. á mann
www.noatun.is
Lögreglan í New York leit-
ar nú leiða til að fá alrík-
islögregluna til að taka
að sér mál Carlinu White
en líkur eru á að það sé
fyrnt skv. lögum New
York fylkis. Hins vegar
fyrnast mál horfinna
barna aldrei hjá FBI.
Lögreglan hefur hvorki
gefið upp hvort einhverjir
hafi stöðu grunaðra í
málinu, né hvort hún hafi
yfirheyrt Ann Pettway en
óljóst er hvort hún hefur
sjálf numið barnið á
brott.
Auglýsing með myndum af Carlinu, bæði
nýfæddri og eins og menn gerðu ráð fyrir
að hún liti út á táningsaldri.
Stúlkunnar var leitað í 23 ár