SunnudagsMogginn - 23.01.2011, Blaðsíða 38
38 23. janúar 2011
’
Stjörnurnar
líta síðan
alltaf vel út
óléttar enda
myndaðar við há-
tíðlegar verð-
launaathafnir en
ekki liggjandi
ómálaðar í
sófanum
heima í stofu.
Meðan Listamannaskálinn við Tjörnina stóð voru mynd-listarsýningar þar taldar til meiriháttar viðburða. Flestiraf helstu listamönnum síns tíma sýndu þar verk sín og áengan er hallað þótt Jóhannes Kjarval sé nefndur sér-
staklega. Sýningar hans voru vinsælar og „listaskáld litanna“ eins og
Kjarval hefur verið nefndur var sjálfur jafnan nokkurt aðdráttarafl.
Eins og segir á vefsetri Listasafns Reykjavíkur skipar Kjarval sér-
stakan sess í íslenskri menningar- og listasögu. Hann var goðsögn í
lifanda lífi og í augum margra persónugervingur hins rómantíska
listamannabóhems. Rætur hans lágu í hinu íslenska bændasamfélagi,
en líf hans og listsköpun tengist órjúfandi böndum menningarlegri
viðreisn þjóðarinnar á fyrri hluta 20. aldar. Í gegnum verk hans hafa
Íslendingar lært að skoða á nýjan hátt náttúru landsins, fólkið og þann
ævintýraheim, sem er að finna í landslaginu og huga þjóðarinnar.
Verkum Kjarvals hefur oft verið skipt í þrjá meginflokka: Landslags-
myndir, teikningar og táknræn málverk. Eins og gerist með áhrifa-Kjarval og Jónas frá Hriflu, til hægri, við opnun málverkasýningar í Listamannaskálanum vorið 1961.
Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon
Jónas og lista-
skáld litanna
Myndasafnið 18.2. 1961
F rægð og furður
Það er ekki eins og það ætti að koma áóvart að fólki fjölgi í heiminum en einsog svo margt annað er það bara ennþámerkilega ef Hollywood-stjörnurnar
gera það. Fréttirnar af óléttum úr Hollywood hafa
verið óstöðvandi síðustu misseri og bætist enn í
sarpinn. Tíðindin eru talin upp rétt eins og úrslit
fótboltaleikja og best að fara nánar yfir stöðuna.
Natalie Portman upplýsti um óléttu sína í blálok
síðasta árs en hún á von á barni með unnusta sín-
um Benjamin Millepied, dansahöfundi Black
Swan, þar sem Portman fer með burðarhlutverkið.
Janúar er ekki búinn og búið er að tilkynna fjórar
óléttur í viðbót. Victoria og David Beckham (engr-
ar kynningar þörf) eiga von á sínu fjórða barni, og
leikkonan Kate Hudson öðru sínu. Hudson á fyrir
hinn sex ára gamla Ryder með rokkaranum Chris
Robinson. Barnsfaðir hennar nú er annar rokkari,
Matt Bellamy úr Muse, og verður Ryder stóri bróð-
ir einhvern tímann í sumar.
Grínleikkonan Jane Krakowski úr 30 Rock stað-
festi í mánuðinum að hún væri þunguð. Þetta
verður fyrsta barn leikkonunnar, sem er 42 ára
gömul, og unnusta hennar Roberts Godleys.
Stjörnurnar þyngjast enn því franska stjarnan
Marion Cotillard er með barni. Rétt eins og
hjá Krakowski verður það hennar fyrsta
en barnsfaðirinn er franskur leikari,
Guillaume Canet.
Svo má ekki gleyma söngkon-
unni Jewel sem á líka von á
sínu fyrsta barni með eig-
inmanninum, ródeóstjörn-
unni Ty Murray.
Til viðbótar tilkynnti
Nicole Kidman í vik-
unni að hún og Keith
Urban hefðu nýverið
eignast barn með hjálp
staðgöngumóður.
Ólétta virðist vera í tísku
sem aldrei fyrr og
greint er frá þungunum
í Hollywood eins og
úrslitum fótboltaleikja.
Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is
Þokkalega
þungaðar
Jane Krakowski sýndi bumbuna
á Golden Globe-verðlaunahátíðinni.
Kim Kardashian er ekki sátt við fjölda
táningsmæðra í Bandaríkjunum.
Kate Hudson gullslegin á glamúrhátíð. Natalie Portman klæðist þægilega.
Reuters