SunnudagsMogginn - 23.01.2011, Blaðsíða 32

SunnudagsMogginn - 23.01.2011, Blaðsíða 32
32 23. janúar 2011 Margt gerðist fróðlegt í vikunni stórtog smátt. Úr fjölmiðlaskýringu Við-skiptablaðsins á fimmtudag má lesaað Morgunblaðið hefur yfirburði í flutningi frétta yfir aðra prentmiðla og Mbl. yfir vefmiðla. Þeir sem ekki hafa aðgang að þessum fréttauppsprettum ganga því ólesnir inn í dæg- urumræðuna. Sölumaður deyr Sjóvársalan verður sífellt undarlegri. Hún byrjaði í einhvers konar hálfgagnsæju ferli en endaði í niðamyrkri nætursvörtu og var afgreidd í því. Og svo hrópleg var tilviljunin að Steingrímur J. Sig- fússon stóð þá í ræðustól Alþingis og lofaði (ekki hlæja) að bæta úr eftir pukursölu á helstu eignum Landsbankans. Það framferði hefði ekki verið eins og að var stefnt. Vægt til orða tekið um svik við öll fyrirheit og hátíðleg loforð. Á sama augnabliki var gamall flokksbróðir hans að selja rúman helmings eignarhlut í Sjóvá og eigandinn, þjóðin, hafði sömu möguleika til að fylgjast með því og djúp- svæfður sjúklingur á skurðarborði í sjúkrahúsi. Það eru minni en engar líkur á því að Steingrímur J. hafi ekki vitað um þá sölu á þessari eign rík- isins, þar sem hann stóð í ræðustól þingsins og gaf þingheimi sín loforð um bót og betrun. Og sölu- maðurinn í Seðlabankanum, sem gert hefur 48 prósentin í Sjóvá verðlaus með því að selja 52 pró- sentin sér, leyfir sér þó að margfalda söluupp- hæðina með tæpum tveimur og segja að þetta hafi því verið bærileg sala. Verður ekki séð annað en að með þessari sölu sé niðurstaðan orðin sú að ríkið hafi tapað tíu milljörðum á inngripum sínum í málefni Sjóvár. Það er mikið alvörumál, en sú al- vara margfaldast þegar litið er til þess að Ríkis- endurskoðun fullyrðir að fjármálaráðherrann hafi ekki haft neina heimild til þess að verja hinum miklu fjármunum með þeim hætti sem hann gerði. Endurskoðunin hefur gengið á ráðuneytið og það hefur ekki í svörum sínum getað vísað til neinnar heimildar frá Alþingi til aðgerða sinna. Þetta fjármálalega valdarán ráðherrans hlýtur að verða rannsakað, og embætti Umboðsmanns Al- þingis getur naumast trúverðugleika síns vegna látið það framhjá sér fara. Og svo vill til að Alþingi hefur nýverið opnað landsdómsfarveginn, sem lokaður hafði verið í rúma öld, og blasir við að óhjákvæmilegt er að mál af þessari stærðargráðu komi þar til skoðunar. Það er a.m.k. margfalt upplagðara til ákæru en það mál sem saksóknari á vegum Alþingis er nú að basla með gegn fyrrver- andi forsætisráðherra. Njósnamálið Almenningur fékk í vikunni upplýsingar um stór- mál, sem helstu talsmenn nýs gagnsæis á nýju Ís- landi höfðu með öllum tiltækum ráðum reynt að fela. Tölvuvarnir Alþingis miða flestar við að verj- ast utanaðkomandi árás. Ekki er hægt að áfellast Alþingi fyrir það. Þannig haga flestir sínum vörn- um. Það á ekki aðeins við um tölvur og varnir þeirra heldur nánast hvaðeina þar sem hugað er að vörnum, jafnt að fornu sem nýju. Þannig verja menn heimili sín. Lásar útidyra eru öllum að- gengilegir innan frá. Þannig vernda menn lönd sín og ríki og hafa alltaf gert. Þess vegna var Trojuhesturinn smíðaður. Ef óvinurinn komst inn fyrir varnarmúrana varð eftirleikurinn auðveld- ur. Þingforsetinn og forsætisráðherrann virðast vera einu ábyrgðarmenn ríkisvaldsins sem fengu að vita um þessa atlögu að öryggi þingsins og per- sónulegum hagsmunum þingmanna. Þeir ákváðu að leyna málinu. Það sýnir ótrúlegan dómgreind- arskort. Og þeim tókst að fela hið alvarlega mál í næstum því ár þar til að Morgunblaðið svipti af því hulunni. Þingmenn voru furðu lostnir. Nú eru allir sammála um að rannsaka þurfi þetta mál til botns. Það er þó orðið miklu óaðgengilegra en verið hefði fyrir ári. Nauðsynlegt hefði verið að leita upplýsinga um alla þá sem fengu aðgang að þessum sérstöku húsakynnum þingsins meðan slíkt var enn í fersku minni þingmanna og starfs- manna. Það er ekkert óeðlilegt við það, þótt sér- staka athygli veki að helstu spírur hins heims- fræga lekavefs voru á Íslandi um þessar mundir og reglubundnir gestir í þessum húsakynnum, svo sérstætt sem það er. En það gefur á hinn bóginn ekki neina heimild til þess, án frekari rannsóknar og sannindamerkja, að varpa sök á þá. Það er þannig ekki endilega fráleitt sem nefnt hefur ver- ið að stórir og öflugir aðilar gætu haft af því hags- muni að varpa grun á þessa aðila. En upp úr stendur að forsætisráðherrann og þingforsetinn höfðu í raun ekki frumkvæði að neinu öðru í mál- inu en að fela það fyrir almenningi og alþingis- mönnum. Það er vissulega í góðu samræmi við pukuráráttu núverandi stjórnvalda. En þetta mál er svo sérstaks eðlis að engin afsökun er fyrir leyndinni og hún hefur að auki stórskaðað mögu- leikana á að komast til botns í því. Valdamenn vilja frið fyrir augum almennings Það er ekki nýtt að stjórnvöld vilji fá að vinna sín verk án þess að almenningur sé að horfa yfir axlir þeirra. Þannig er það hvarvetna. Verst er þetta auðvitað í einræðis- og alræðisríkjum. Þar eru kostir fólks fáir og fjölmiðlar í böndum eða í traustum taumi. Lýðræðisríki eiga auðvitað að haga sér með öðrum hætti. Þó er rík tilhneiging í slíkum ríkjum og hefur alltaf verið að segja ekki frá meiru en menn þurfa og þó einkum að fá að veita upplýsingarnar þegar stjórnvöldum hentar og þegar þeim kemur það best. Ísland hefur ekki verið mjög frábrugðið öðrum að þessu leyti. Þó er það svo að hér eru hvorki her né leyniþjónusta, en leyndarhjúpur er iðulega einkum tengdur slíkum í stærri löndum. Og fámennið og nálægðin ýtir einnig undir ríkari upplýsingadreifingu. En fram- ganga núverandi ríkisstjórnar í pukri hefur þó Reykjavíkurbréf 21.01.11 Vikan sem var fréttavæn

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.