SunnudagsMogginn - 23.01.2011, Qupperneq 13
23. janúar 2011 13
Glöggir íþróttaáhugamenn hafasjálfsagt höggvið eftir því íviðtölum við Guðmund Guð-mundsson og leikmenn ís-
lenska handboltalandsliðsins að þar er
gjarnan talað um að liðið hafi verið vel
undirbúið, unnið heimavinnuna sína og
þar fram eftir götunum. Líklega er óhætt
að fullyrða að fá handboltalandslið í
heiminum, ef nokkur, eyði jafn mikilli
orku og tíma í að leikgreina andstæðinga
sína og íslenska landsliðið gerir. Þar leika
Óskar Bjarni og Gunnar lykilhlutverk og
hefur það heldur betur skilað árangri.
Auðveldara er hins vegar um að tala en í
að komast á stórmóti eins og HM, því þá
líður stundum ekki nema tæpur sólar-
hringur á milli leikja.
„Við höfum bölvað þeim leiktímum
þar sem leikið er seint á kvöldin eins og
gegn Japan og Austurríki en þá var leikið
klukkan 21.30 að staðartíma. Þessir leikir
voru tvo daga í röð og strax eftir leikinn
á móti Japan fórum við eins fljótt og
hægt var upp á hótel og biðum fyrir
framan skrifstofuna og reyndum að fá
dvd-diskinn sem fyrst með nýjasta
leiknum sem Austurríki spilaði. Um leið
og við fáum leikina keyrum við þá í gegn
og byrjum að klippa þá og greina en það
tekur klukkutíma að keyra þá inn í for-
ritið sem við notum áður en við getum
byrjað að vinna. Gummi þarf að fá efnið
um morguninn en við leggjum áherslu á
að hann hvílist yfir nóttina. Við getum
svo sem verið þreyttir en leggjum
áherslu á að hann haldi sönsum. Efnið
þarf að vera tilbúið klukkan átta eða níu
um morguninn. Við erum auðvitað búnir
að forvinna hluta af efninu en nýjustu
leikina erum við að klippa til fram á
nótt,“ sagði Gunnar og Óskar bætti því
við að upplýsingarnar sem Guðmundur
fengi væru einnig á pappírsformi.
Mappan tilbúin þegar þjálfarinn vaknar
„Við reynum að hafa þetta í möppu og
hafa þetta aðgengilegt. Við reynum að
merkja við þau atriði sem við teljum að
skipti máli varnar- og sóknarlega,“ benti
Óskar á og Gunnar heldur áfram: „Þegar
Gummi vaknar á morgnana fær hann
möppu með næstu andstæðingum. Þar er
að finna öll leikkerfi sem þeir hafa notað
í sókninni og á móti öllum varnaraf-
brigðum sem þeir hafa spilað á móti.
Sama má segja um varnarleikinn en þar
er að finna öll varnarafbrigði sem þeir
hafa spilað. Auk þess eru tilbúnar möpp-
ur með leikmönnunum sjálfum sem
varnarmennirnir geta skoðað og mark-
menn geta séð hvernig andstæðingarnir
skjóta. Jafnframt geta leikmenn skoðað
atriði úr okkar leikjum þar sem búið er
að klippa til plúsana og mínusana í okkar
leik. Mest af þessu er vídeó en einnig er
um að ræða hefðbundna tölfræði.“
Gunnar keypti sér áskrift
Þeir félagar voru byrjaðir að hugsa fyrir
því hvernig væri hægt að komast yfir
upplýsingar um andstæðinga Íslands í
milliriðlinum fyrir nokkrum dögum. Úr
varð að Gunnar keypti sér áskrift að
sjónvarpsútsendingum á netinu og tók
þannig upp leiki í riðlakeppninni hjá
væntanlegum andstæðingum Íslands í
milliriðlinum. „Við getum ekki beðið því
hver dagur skiptir okkur miklu máli.
Skipulagið er ekki sérlega gott hjá móts-
höldurum þannig að við fáum leikina hjá
andstæðingum okkar ansi seint. Klukku-
tíma eftir að okkar leik lýkur þurfum við
að byrja undirbúning fyrir næsta leik,“
sagði Gunnar og blaðamanni leikur for-
vitni á að vita hvort sögurnar af svefn-
leysi þeirra félaga á stórmótum eigi við
rök að styðjast. „Þegar þessi vinna er í
gangi erum við oft á tíðum til svona fjög-
ur á nóttunni. Við erum hins vegar
heppnir með að vera tveir í þessu og það
munar svakalega miklu. Við getum skipt
með okkur verkum og getum einnig
skoðað meira. Ef einn maður væri í þessu
þyrfti viðkomandi að velja og hafna upp-
lýsingum. Þegar á líður mótin geta kom-
ið tímar þar sem vinnan er enn meira
krefjandi. Þá getur komið upp sú staða
að við mætum andstæðingi t.d. í undan-
úrslitum og séum þá ekki búnir að gera
ráðstafanir þar sem það liggur fyrir með
litlum fyr-
„Leggjum
áherslu á að
Guðmundur
haldi sönsum“
Íslenska landsliðið í handknattleik yljar nú Ís-
lendingum með frábærri frammistöðu í svartasta
skammdeginu eins og stundum áður og hefur
unnið alla fimm leiki sína á HM í Svíþjóð. Á bak
við landsliðsstrákana stendur góður hópur af
traustu fólki sem leggur nótt við dag til þess að
þeir megi ná sem mestum árangri. Í þeim hópi
eru meðhjálparar Guðmundar Guðmundssonar
landsliðsþjálfara, Óskar Bjarni Óskarsson og
Gunnar Magnússon.
Kristján Jónsson kris@mbl.is
Hershöfðinginn Guðmundur Guðmundsson líflegur að vanda á hliðarlínunni.
Reuters
Gunnar Magnússon og Óskar Bjarni Óskarsson vinna ómælda vinnu bak við tjöldin.
Ljósmynd/Hilmar Þór Guðmundsson