SunnudagsMogginn - 23.01.2011, Qupperneq 31
23. janúar 2011 31
Unnur Ösp Stefánsdóttir er fædd 6. apríl á þvíherrans ári 1976. Foreldrar hennar eru StefánBaldursson óperustjóri og Þórunn Sigurðar-dóttir, stjórnarformaður tónlistarhússins
Hörpu. Eldri bróðir Unnar er Baldur Stefánsson, verk-
efnastjóri hjá Arctica Finance.
Unnur Ösp ólst upp í Breiðholtinu og Vesturbænum og
gekk í Melaskóla og Hagaskóla sem barn, en á þeim tíma
átti hún sér þann draum að verða skáld. Hún endaði þó í
leiklistinni, með viðkomu í Mennta-
skólanum við Hamrahlíð og Leiklistar-
skóla Íslands þaðan sem hún útskrif-
aðist 2002.
Síðan hefur hún starfað við leikhús
og kvikmyndir, bæði sem leikstjóri og
leikari en nýjasta afrek
hennar á því sviði er
hlutverk móð-
urinnar Donnu
McAuliffe í leik-
ritinu Elsku barn
sem frumsýnt var
í Borgarleikhús-
inu 14. janúar síð-
astliðinn við ein-
dregið lof
gagnrýnenda.
Eiginmaður Unnar
er Björn Thors leikari
og eiga þau saman
drenginn Dag Thors
sem er þriggja ára.
„Við Bjössi gengum í hjónaband eftir
12 ára sambúð 1. janúar 2009.“
„Með Nínu Dögg Filippusdóttur í London þegar
Vesturport setti upp Faust þar í borg í fyrra.“
Við Selma Björns (sem er ein af mínum bestu vinkonum) og fleiri settum upp söngleikinn
Hárið 2004 og tróðum upp með atriði úr sýningunni á Menningarnótt sama sumar.“
„Í Young Vic-leikhúsinu í London en Baldur bróðir og Þóra
mágkona komu ásamt pabba að sjá mig í Faust.“
„Ég og Ragnar Kjartansson myndlistarmaður, æskuvinur minn. Þetta var
eitt af mínum fyrstu hlutverkum, í Iðnó í Land míns föður árið 1985.“
„Fagnað með tengdafjölskyldunni á sextugsafmæli tengdaforeldra minna sumarið 2010.“
Litríkur
leikur og
fjölskyldulíf
Unnur Ösp Stefánsdóttir, leikari
og leikstjóri, opnar myndaal-
búmið sitt að þessu sinni.
„Dagur tiltölulega nýbakaður haustið 2007
en við fluttum vetrarlangt til Lundúna til að
leika í Hamskiptum Vesturports.“
„Líklega á fyrsta árinu að þrjóskast við að hafa slaufu á sköllóttu
höfðinu og að kíkja út um bílgluggann, alltaf forvitin frá upphafi.“
„Ég sem fjallkonan með mömmu og ömmu
Unni á þjóðhátíðardaginn í fyrra.“
„Á tröppunum hjá afa Baldri og ömmu Margréti á Hjalteyri en
ég ólst þar upp með annan fótinn sem krakki.“
Myndaalbúmið
Fjögurra ára
pabbastelpa.