SunnudagsMogginn

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

SunnudagsMogginn - 23.01.2011, Qupperneq 41

SunnudagsMogginn - 23.01.2011, Qupperneq 41
23. janúar 2011 41 Lífsstíll Þó að mörgum finnist gaman að ferðastgetur verið jafn leiðinlegt að þurfa aðpakka niður. Þetta finnst mér sérstaklegaeiga við þegar kemur að því að pakka niður eins litlu og maður mögulega kemst af með. Á meðan ég bjó erlendis var þetta nokkuð sem mér ætlaði bara ekki að takast að læra. Í hvert skipti sem ég stóð sveitt á brautarpallinum eða flugvellinum bölvaði ég sjálfri mér fyrir að hafa pakkað niður svona mörgum bókum. Eða minnti sjálfa mig á að ég myndi aldrei þurfa öll þessi föt. Svo fékk ég harðsperrur í hendur og axlir daginn eftir og ef lyftan var biluð á brautarstöðinni var mér oft skapi næst að leggjast niður og fara að grenja. Í gegnum árin lærði ég samt smám saman mikilvæga lexíu. Í fyrsta lagi þarf maður ekki að pakka niður allri búslóðinni sinni þó að maður skreppi í vikuferð. Það er nefnilega flest til úti í hinum stóra heimi sem má kaupa ef maður hefur gleymt einhverju heima. Í öðru lagi notar maður yfirleitt í mesta lagi helminginn af fötunum sem maður pakkar niður. Maður þarf oftast ekki nema segjum tvennar buxur, góða peysu og yf- irhöfn en svo nokkra boli í nokkra daga ferð. Svo er minnsta málið að kaupa sér eina flík eða tvær ef til þess kemur. Í þriðja lagi er síðan ekki sniðugt að burðast með bækur landa á milli. Þær eru nefnilega þungar og telja fljótt í kílóum. Kiljur eru miklu betri og taktu bara eina eða tvær og ekki fimm. Ef þig vantar meira að lesa eru bókabúðir um allan heim og yfirleitt til eitthvað á ensku. Þegar þetta er allt komið heim og saman er líka ágætt að huga að ferða- töskunni sjálfri. Hún þarf ekki að kosta þig aleiguna en það er betra ef hún er með sæmilegum hjólum því það getur létt lífið til muna. Svo er gott að merkja töskuna með litríku bandi eða einhverju þannig að þú þekkir hana um leið og hún birtist á töskubandinu. Nú, þá er alveg eftir að tala um næsta stig og það er að geta farið í bakpokaferðalag. Mig dreymir um fjarlægar slóðir og slíkt ferðalag. Þá er nú betra að geta pakkað litlu og léttu og spurning um að æfa sig fram að brottför. Byrja á hrúgu og vinna sig smátt og smátt í gegnum hana. Sjá þannig hvað manni finnist mikilvægast að taka með og hvað megi bara alveg verða eftir heima. Gaman er að fara í ferðalag. En hverju pakkar maður og hverju pakkar maður ekki áður en lagt er í’ann á framandi slóðir? María Ólafsdóttir maria@mbl.is Gott getur verið að kæla sig niður í sjónum á sjóðheitum baðströndum á suðlægum slóðum. Reuters ’ Í fyrsta lagi þarf maður ekki að pakka niður allri búslóðinni sinni þó að maður skreppi í vikuferð. Hvað fer í ferða- töskuna? Nú er einnig farið að tala um svokallaða flashpacker sem segja má að sé næsta stig fyrir ofan bakpokaferðalanga. Þessir ferðalangar eru skilgreindir þannig að þeir eru oftast aðeins eldri, frá ca 25 ára og upp úr. Þeir vilja að vissu leyti ferðast eins og bakpokaferðalangar en hafa meira handanna á milli og vilja aukin þægindi á ferðum sínum. Þá mætti kalla sýndarferðalanga á íslensku. Því bæði vilja þeir sýna að þeir eigi nóg af tæknidóti en eins að geta sýnt fólki myndir og brot af ferðum sínum strax. Nú er pakkað niður alvöru myndavél sem þú getur tekið myndir á næstum eins og atvinnuljósmyndari. Upptökugræjan fær líka að fljóta með og munar engu um hvað hún telur mörg kg svo lengi sem þú getir sett vídeó af þessu brjálaða strandpartíi beint á Facebook daginn eftir. Það gerir þú auðvitað í gegnum eigin tölvu því tölv- urnar á kaffinu eru svo hægar og þú verður að koma þessum myndum í loftið hið snarasta. Auka tölvudrif tekur þú líka með til að taka afrit af myndunum og myndböndum til öryggis. Síð- an er Itouch nauðsynlegt í allar þessar löngu lestar- og rútu- ferðir. Loks fær líka að fljóta með ýmiss konar vellyktandi dót. Þú bara getur ekki verið þekktur fyrir að lykta illa á ferðalaginu! Skemmtilegar pælingar sem kannski sýna í raun hvernig bak- pokaferðalangurinn hefur breyst og/eða verður í framtíðinni. Tæknin fær að fjóta með Nútímaferðalangurinn skilur tæknina ekki við sig á ferðalagi. Því getur líka fylgt óþarfa kostn- aður að pakka of miklu niður. Mörg flugfélög eru ströng á því hversu mikið hver ferðalangur má hafa með sér um borð. Eins rukka mörg lággjaldaflugfélögin fyrir hverja tösku og jafnvel handfar- angur. Áður en lagt er af stað í ferðalag er því best að kynna sér alla slíka skilmála og reyna síðan að pakka niður samkvæmt því. Þú vilt jú örugglega líklegast gera eitt- hvað annað við peninginn í útlönd- um en eyða honum í yfirvigt! Dýr aukakíló Vigtaðu farangurinn fyrir ferðina. Skemmtilega lýsingu fann greinarhöf- undur á netinu þar sem bakpoka- ferðalöngum er lýst líkt og einhvers konar þjóðflokki. Segir í textanum að bakpokaferðalög séu eins konar jað- armenning lífsglaðra ungmenna sem vilji skoða heiminn á sem ódýrastan máta. Þau séu kölluð bakpokaferða- langar þar sem stóran bakpoka sé að finna á bakinu á þeim, frekar en þau dragi á eftir sér ferðatösku. Þeir leiti gjarnan í að tjalda og klífa fjöll á ferð- um sínum og sækist eftir ódýrum leið- um til að ferðast eins og að leigja nokk- ur saman bíl. Loks segir að gjarnan megi finna bakpokaferðlanga á fal- legum stöðum þar sem ódýrt sé að lifa, t.d. í Taílandi og á Indlandi. Hljómar jú dálítið eins og gamaldags lýsing á þjóð- flokki þó að nokkuð sé til í þessari lýs- ingu innan um alhæfingar. Jaðarmenning ungmenna Bakpokaferðalangar njóta lífsins.

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.