SunnudagsMogginn - 23.01.2011, Page 43
23. janúar 2011 43
Önnur hús eru í betra standi. „Mörg af
þessum húsum, þó þau líti barin út, þá er
í grunninn ekkert að þeim. Það væri ekk-
ert mál að endurnýja þau,“ segir hann þó
ekki sé víst að slík örlög liggi fyrir þeim.
Eyðibýli í tísku?
Eyðibýli koma einmitt við sögu í tveimur
nýjum íslenskum spennusögum, Harð-
skafa Arnaldar Indriðasonar og Ég man
þig eftir Yrsu Sigurðardóttur. Líklegt er
að ein bók til viðbótar, þó af öðrum toga,
bætist í hópinn en Orri er alveg ákveðinn
í því að koma myndunum út í bók. „Ég
vissi það fljótlega að mig langaði að gera
bók,“ segir ljósmyndarinn, sem er að
vinna í því með útgefanda einum.
Orri undirbjó sýninguna að hluta til í
New York. Hvorki er hægt að kaupa film-
urnar hérlendis né framkalla þær en hon-
um finnst þetta aukna umstang sann-
arlega þess virði.
Orri er ekki við eina list kenndur því
hann tekur upp og útsetur tónlist og er í
tvíeykinu Slowblow ásamt Degi Kára
Péturssyni kvikmyndaleikstjóra. Slow-
blow hefur jafnframt samið og útsett
tónlist við allar myndir Dags Kára. Líkt
og í ljósmynduninni kýs Orri að vinna
ekki stafrænt í tónlistinni. „Ég hef prófað
að taka upp á tölvu en fæ enga ánægju út
úr því,“ segir hann og útskýrir að það sé
allt önnur tilfinning að hafa eitthvað í
höndunum. „Fyrir mig skiptir það miklu
máli að hafa filmuna og vökvana, setja
filmuna í stækkarann, vera með pappír
og lýsa þetta í höndunum. Þessi handa-
vinna heillar mig mjög mikið og er stór
hluti af ánægjunni af því að sjá loka-
útkomuna, að vita hvernig ég komst
þangað. Ég fæ enga ánægju út úr því að
sitja fyrir framan tölvuskjá og klikka á
einhverja pixla og vita að ég gæti gert það
endalaust til að búa til eitthvað sem verð-
ur „fullkomið“.“
’
Stundum labbar
maður inn, finnst allt
rosa notalegt og
mann langar að taka af sér
og leggjast í sófann. Á öðr-
um stöðum stend ég mig að
því af einhverjum sökum að
vera alltaf að líta um öxl og
athuga hvort einhver sé
þarna.