Skólablaðið

Volume

Skólablaðið - 01.04.1988, Page 4

Skólablaðið - 01.04.1988, Page 4
Ritdómur Sennilega er fátt launað með eins miklu vanþakklæti og það að rit- stýra Skólablaði Menntaskólans í Reykjavík, nema þá vera skyldi að leikstýra og semja áramótaskaup sjónvarpsins. Skólablaðsins er ætíð beðið með nokkurri eftirvæntingu og vonast flestir nemendur til að finna þar ljósmyndir af sér, slúðursögur um sig eða í minnsta lagi eitthvað annað við sitt hæfi. Skólablaðið á að vera vettvangur nemenda til að koma hugverkum sínum og skoðunum á framfæri og það á að endurspegla lífið í skólanum. Einnig á það að vera nemendum til einhverrar ánægju og skemmtunar. Og nú er ég farinn að alhæfa, því að eftir lestur síðasta tölublaðs hlýtur sú spurning að vakna hver sé tilgangur Skólablaðsins. Er hann sá, sem ég gat um hér áðan, eða er hann sá að gefa ritnefnd kost á að troða eigin áhugamálum upp á nemendur? Eigi tilgangur blaðsins að vera hinn fyrrnefndi, hefur síð- asta tölublað að nokkru leyti brugðist hlutverki sínu. Mér er til efs að blaðið höfði til hins almenna nemanda og þá er spurningin: Fyrir hverja er það þá gert? Ég þekki af eigin reynslu að nemendur eru jafntregir til að skrifa í Skóla- blaðið og þeir eru fúsir að gagn- rýna það. Því lendir það oft á rit- nefnd að skrifa meginhluta blaðsins. Hefur hæstvirtur ritstjóri áttað sig á þessu, því að hann á hvorki meira né minna en 12 ljóð í blaðinu og geri aðrir betur. En ekki virðist hafa vakað fyrir rit- 4 nefnd að gera Gróu á Leiti til hæfis því að Qvid novi er látið lönd og leið og er að því nokkur eftirsjá. í staðinn sýna ritnefndarmenn, hve þeir eru víðlesnir og vel að sér í heimsbókmenntunum, með því að hafa tilvitnanir í þær og merka menn á víð og dreif. Eru þessar til- vitnanir sannkallaður gleðigjafi. En virða verður það við ritnefnd og telja henni til málsbóta að hafa gert tilraun til að gefa út menning- arlegt blað og huga jafnvel að smærri vaxtarbroddur heimsbók- menntanna með því að birta viðtal við samíska skáldkonu. Hins vegar er ekki laust við að nokkurs hroka gæti í þessari viðleitni ritnefndar. Vísa ég um það til klausu frá henni á fyrstu síðu. Ég er líka hræddur um að sé menningunni troðið oní fólk án þess að það geti skolað henni niður með einhverju létt- meti, kunni hún að standa í ein- hverjum sem muni svo spýta henni upp úr sér og ekki bragða á framar. Ekki held ég að það sé menning- unni til góðs. Tuttugu fyrstu síður blaðsins eru Iagðar undir smásagna- og ljóða- samkeppni sem ritnefnd stóð fyrir. Verðlaunaljóðið er eftir ritstjór- ann, Baldur A. Kristinsson, og ber nafnið Kyrrstaða, sem er andstætt efni þess sem er túlkun á hverful- leika. Allt eins og blómstrið eina, sagði sálmaskáldið. Þetta ljóð er smekklega gert, en útnefning þess til fyrstu verðlauna vekur hjá manni nokkrar grunsemdir um að hin hafi ekki verið ýkja-rismikil. Annað kemur þó á daginn þegar lengra er lesið. Verðlaunasagan er eftir Hróðmar Dofra og heitir Esóp lét þess ekki getið. Hún er lipurlega skrifuð, hugmyndin gamalkunn og úrvinnsla hennar með þeim hætti að aðdáun vekur. Orðfæri höfundar er líka betra en almennt gerist meðal „mennta- skólaskálda“. Saga þessi er því bæði höfundi og blaði til sóma. Saga Baldurs A. Kristinssonar, Af Sólu, er líka góð, hugmyndin sniðug og vel unnið úr henni. Ljóð Urðar Njarðvík eru nokk- urs konar „náttúrulýrík“ í jákvæð- asta skilningi þess orðs. Þau eru einlæg, tær og greinilega ort beint frá hjartanu. Þrátt fyrir það að þau beri þess merki að höfundur er að stíga fyrstu spor sín, er í þeim sönn tifinning sem lyftir þeim hátt yfir alla meðalmennsku. Annað er upp á teningnum í ljóðum Baldurs A. Kristinssonar. Þau bera þess merki að höfundur leitast við að hylja tilfinningar þeirra svo að þau teljist ekki væmin. Eitthvað sagði víst chileska skáldið Pablo Neruda um það að við mættum aldrei glata væmninni. Sökum þessarar væmnisfælni fer ekki hjá því að ljóðin verði ögn til- gerðarleg og fljótt á litið mætti ætla að sum þeirra séu aðeins tilraunir höfundar til að vera frumlegur. Ekki vil ég þó alhæfa það og bera ljóð eins og Bið, Orfeus og Sjálfs- mynd þess merki að undir niðri blundar heilmikil skáldgáfa. Meist- ari Megas hefur verið hafður með í ráðum í síðustu línu ljóðsins Sjálfs- myndar og í öðrum ljóðum gætir

x

Skólablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.