Skólablaðið - 01.04.1988, Síða 15
Sumarnótt (röddin), 1893.
liggur í kjöltu hennar. Hún
umlykur hann örmum og blóð-
rauðu hári. Nafnið gefur myndinni
tvíræða merkingu. Viðhorf Munch
til kvenna var sérstakt eins og við-
horf hans yfirleitt. Hann var
hræddur um að týna eigin sál sinni,
gæfist hann konu, og gat því aldrei
elskað, en átti í mörgum stuttum
samböndum um ævina. Myndin
Vampíran lýsir einmitt þessum
ótta hans.
Frá París til Berlínar
Tengsl Munchs við bóhemska
lifnaðarhætti höfðu mikil áhrif á
hann, en hann steyptist þó ekki í
það far sem margir listamenn fylgj-
andi þessari stefnu gerðu. Hann
þróaði áfram sinn stíl. Áriö 1889
fluttist Munch til Parísar. Þar
afneitaði hann realisma og sagði
i'pp frægum kennara af svipuðum
ástæðum og franski málarinn
Manet hafnaði sínum með orðun-
um: „Ég mála það, sem ég sé, en
ekki það sem þú vilt að ég sjái.“ í
París öðlaðist Munch einnig
reynslu sína af impressionisma.
Stúderaði hann þá einkum myndir
Pissaro og Monet. Þarna sá Munch
einnig djarfa liti Toulouse-
Lautrecs. Hann varð fyrir miklum
áhrifum af myndum Gaugin og ein-
faldleika japanska stílsins. Af
kraftmiklum myndum Van Gogh
hreifst hann sérstaklega. Af
gömlum meisturum, sem hann
dáði, má nefna Goya, Rembrandt
og Velasquez. Allt, sem hann upp-
lifði í París, stuðlaði að því að
móta sérstakan stíl hans.
En listamannahópurinn í París
var lokaður utanaðkomandi
mönnum og myndum hans var illa
tekið. Hann hélt til Berlínar 1892
og var í fyrstu talinn sérvitur og
stórri sýningu hans lokað. En þó
fann hann þar jarðveg fyrir list
sína. Menn voru næmari á
nýjungar en í París. Smám saman
kom Munch myndum sínum á
framfæri, hann eignaðist marga
vini og kynntist öðrum
bóhemskum heimi.
Livsfrisen - taugaáfall
í dagbók sína skrifaði Munch
eitt sinn eitthvað á þá leið að hann
vildi ekki að meira yrði málað af
uppstillingum, fólki að lesa eða
konum að prjóna, „heldur lifandi
manneskjur sem anda, finna til,
þjást og elska“. Petta er einmitt
rauði þráðurinn í myndaseríunni
sem hann hóf að mála um þetta
leyti. Á norsku nefnist hún Livs-
frisen sem mætti útleggja sem lífs-
stigin eða lífsferillinn. Til þessarar
seríu teljast myndir s.s. Vampíran,
15